Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Leikdómur: Húh! Best í heimi – „Hreinskilnin var í senn nístandi og hræðilega fyndin“

Silja Aðal­steins­dóttir, íslensku- og bók­mennta­fræð­ingur, þýð­andi og rit­stjóri skrifar á heima­síðu Tímarits Máls og Menn­ingar leik­dóm um Húh! Best í heimi sem frum­sýnt var á Litla svið­inu í Borg­ar­leik­hús­inu föstu­dag­inn 4. októ­ber.

Leikdómur: Húh! Best í heimi – „Hreinskilnin var í senn nístandi og hræðilega fyndin“

Höfundur: RaTaTam
Leik­stjóri: Charlotte Bøving
Leikarar:  Albert Hall­dórs­son, Guð­mundur Ingi Þor­valds­son, Guðrún Bjarna­dóttir, Halldóra Rut Bald­urs­dóttir og Hildur Magn­ús­dóttir.
Leikmynd, leik­gervi og bún­ingar: Þórunn María Jóns­dóttir
Lýsing: Björn Berg­steinn Guð­munds­son
Tónlist og hljóð: Helgi Svavar Helgason og RaTaTam
Drama­t­úrg: Stefán Ingvar Vig­fús­son

Myndir af skuggahliðinni

Leik­hóp­ur­inn RaTaTam frum­sýndi í gær­kvöldi verk sitt HÚH! Best í heimi á litla sviði Borg­ar­leik­húss­ins undir stjórn Charlotte Bøving. Þar skoða þau sjálfs­mynd Íslend­inga í gegnum sögur úr eigin lífi og sínar eigin sjálfs­myndir og eru ekki mis­kunn­söm í sinn garð eða okkar hinna. Við erum kannski glæsi­leg á að líta, vel klædd, glað­leg í fasi, með flotta fer­il­skrá, dáð og öfunduð, en bak við fram­hlið­ina erum við svekkt á að vera ekki metin að verð­leikum; við erum jafn­vel feit og ólögu­leg þótt það sjá­ist ekki utan á okkur; kannski erum við í raun og veru bara ljótir og klunna­legir apar ef vel væri að gáð.

Þátt­tak­endur eru fimm að þessu sinni, öll gam­al­kunnir RaTaTam-leik­arar: Albert Hall­dórs­son, Guð­mundur Ingi Þor­valds­son, Guðrún Bjarna­dóttir, Halldóra Rut Bald­urs­dóttir og Hildur Magn­ús­dóttir. Erfitt á ég með að trúa því að allt sem þau segja úr lífi sínu sé satt en það er þá eflaust satt í lífi ein­hverra ann­arra. Albert dró sjálfan sig sundur og saman í nöpru háði og seint verður grát­brag­ur­inn hans topp­aður. Guð­mundur Ingi kynnti sig sem „made in sveitin“ og sagði átak­an­lega sögu af ósigri ungs drengs við smölun. Guðrún tal­aði svo nið­ur­lægj­andi um eigin fal­legu per­sónu að maður setti upp skeifu og þegar Halldóra Rut lýsti líf­inu eins og það var þegar hún var lítil stúlka fékk ég hrein­lega andnauð af van­líðan! Hildur kynnti sig í fyrstu sem glimmerpíu sem væri ævin­lega glöð og hress en innan í grönnum glitr­andi kroppnum leynd­ist annar sem kepp­irnir héngu utan á og tróð sér í hvert bik­iníið utan yfir annað … Ofbeld­is­fullur leikur hennar að trompet­inum sínum var sjón að sjá! Charlotte kallar þetta „nútíma Íslend­inga­sögur“ í við­tali í Morg­un­blað­inu og það er ágæt­lega orðað. Þetta eru sög­urnar sem við segjum engum en læð­ast kannski að okkur þegar við birtum myndir úr okkar sig­ur­sæla lífi á net­inu.

Þó að drama­tíkin byrj­aði snemma í sýn­ing­unni var góður og stöð­ugur stíg­andi í henni sem negldi mann fastan í sætið. Hrein­skilnin var í senn nístandi og hræði­lega fyndin. Þórunn María Jóns­dóttir skap­aði sýn­ing­unni skemmti­lega umgjörð og bún­ing­arnir voru marg­vís­legir og margir óvæntir. Helgi Svavar Helgason og RaTaTam eru skrifuð fyrir tón­list­inni en allir þátt­tak­endur eru mjög mús­íkalskir og bein­skeyttir söng­text­arnir eru leik­hóps­ins eins og leiktext­inn að öðru leyti. Loks má bæta því við að lýs­ing Björns Berg­steins Guð­munds­sonar tók virkan þátt í afhjúp­un­inni.

Albert Hall­dórs­son í hlut­verki sínu.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina