Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Leikdómur: Shakespeare verður ástfanginn – „Snjöll leið til að kynna þennan mikla orðsins listamann fyrir nýjum kynslóðum“

Silja Aðal­steins­dóttir, íslensku- og bók­mennta­fræð­ingur, þýð­andi og rit­stjóri skrifar á heima­síðu Tímarits Máls og Menn­ingar leik­dóm um Shakespe­are verður ást­fang­inn sem frum­sýnt var í Þjóð­leik­hús­inu föstu­dag­inn 4. októ­ber.

Leikdómur: Shakespeare verður ástfanginn – „Snjöll leið til að kynna þennan mikla orðsins listamann fyrir nýjum kynslóðum“
|||

Leikverk byggt á kvik­mynda­hand­riti eftir Marc Norman og Tom Stoppard, aðlagað að leik­sviði af Lee Hall
Leik­stjóri: Selma Björns­dóttir
Þýðandi: Kristján Þórður Hrafns­son
Leikarar: Aron Már Ólafsson, Lára Jóhanna Jóns­dóttir, Stefán Hallur Stef­áns­son, Edda Björg­vins­dóttir, Örn Árnason, Jóhanna Vigdís Arn­ar­dóttir, Jóhanna G. Jóhanns­son, Guðjón Davíð Karlsson og fleiri
Leikmynd: Finnur Arnar Arn­ars­son
Búningar: María Th. Ólafs­dóttir
Lýsing: Ólafur Ágúst Stef­áns­son
Tón­list­ar­stjórn og útsetn­ingar: Karl Olgeir Olgeirs­son
Tónlist: Jón Jónsson og Friðrik Dór

Vegir hug­verk­anna eru margir og marg­vís­legir. Oftast fara þó skáld­sögur upp á svið eða í bíó en líka kemur fyrir að bíó­myndir fara upp (eða niður) á leik­svið. Shakespe­are verður ást­fang­inn byrj­aði með hand­riti eftir Marc Norman og Tom Stoppard í kvik­mynd sem naut mik­illa vin­sælda og hlaut ótal verð­laun og við­ur­kenn­ingar. Þessa bíó­mynd lag­aði Lee Hall að leik­sviði og sú leik­gerð var frum­sýnd í Þjóð­leik­hús­inu fyrir viku undir stjórn Selmu Björns­dóttur. Kristján Þórður Hrafns­son þýddi, bæði nýjan texta og til­vitn­anir í verk Shakespe­ares sjálfs.

Hug­myndin í verk­inu er skemmti­leg en kjarni hennar er að skýra það hvers vegna gam­an­leik­ritið um Rómeó og Júlíu fékk svo ein­stak­lega átak­an­legan endi. Ástæðan, vilja höf­undar meina, er per­sónu­leg sorg Shakespe­ares og sú saga opin­ber­ast á svið­inu. Varla er nokkur fótur fyrir sög­unni en um það veit eng­inn fyrir víst og þetta er spenn­andi efni. Ég þýddi einu sinni óskap­lega skemmti­lega ung­linga­bók sem gerð­ist á 16. öld og sner­ist að hluta um Shakespe­are og Rómeó og Júlíu; Cue for Treason hét hún á frum­mál­inu en ég kall­aði hana Á flótta með far­and­leik­urum. Þar var líka leikið að flækj­unni sem verður til þegar stúlka dul­býr sig sem strák til að fá hlut­verk á tíma þegar stúlkur máttu ekki leika á sviði og leikur svo strák sem er dul­bú­inn sem stúlka …!

Hér er Will Shakespe­are (Aron Már Ólafsson) ungt og upp­renn­andi leik­skáld í Lund­úna­borg, skuld­ugur upp fyrir haus enda leik­hús­stjór­arnir Henslowe (Guðjón Davíð Karlsson) og Burbage (Björn Ingi Hilm­ars­son) tregir til að borga fyrir leik­rit. Helst þyrfti hann að afhenda báðum leik­ritið sem hann er að reyna að semja og á að fjalla um unga mann­inn Rómeó og ástir hans og dóttur sjó­ræn­ingj­ans. Meðan verkið er varla hálf­skrifað heldur Henslowe prufur til að velja í hlut­verk og þangað kemur ungur maður, Thomas Kent (Lára Jóhanna Jóns­dóttir), sem er val­inn í hlut­verk Rómeós. Will hrífst af unga mann­inum sem hrósar texta hans meira en hann er vanur að heyra og leyfir hrifn­ing­unni að vaxa frjálst þegar í ljós kemur að Thomas er í raun­inni auð­manns­dóttirin Víóla de Lesseps. Þau eiga í stuttu ást­ar­æv­in­týri og fyrir röð til­vilj­ana fær Víóla að leika á frum­sýn­ing­unni – ekki hlut­verk Rómeós heldur Júlíu – og verkið slær í gegn. Síðan er hún leidd eða öllu heldur toguð með handafli út úr leik­hús­inu af band­óðum eig­in­manni sínum, jarl­inum af Wessex (Stefán Hallur Stef­áns­son), sem ætlar með hana á tóbaks­ekrur sínar í Virginíu, en eftir situr Will með blæð­andi hjarta­sár. Engin ham­ingja fyrir þau en ódauð­legt lista­verk handa okkur hinum.

Utan um þessa fjör­miklu en hryggi­legu ást­ar­sögu iðar borgin með sitt lit­ríka lið, leik­ara, skáld, bar­þjóna, vænd­is­konur, okur­lán­ara og hand­rukk­ara, klæð­skera, kaup­menn og tón­list­ar­fólk svo eitt­hvað sé nefnt, og yfir öllu saman trónir drottn­ing Eng­lend­inga, Elísabet I (Jóhanna Vigdís Arn­ar­dóttir) sem skiptir sér af stóru sem smáu. Á svið­inu er tutt­ugu manna leik­hópur auk fimm manna hljóm­sveitar. Það leiðir af sjálfu að ekki fá allir stór hlut­verk en nokkrir ná að skapa eft­ir­minni­legar per­sónur. Til dæmis er Edda Björg­vins­dóttir í ess­inu sínu sem fóstra Víólu og Sigurður Sig­ur­jóns­son líka þegar hann leikur fóstr­una í leik­rit­inu inni í leik­rit­inu. Gói fer horn­anna á milli á harða­hlaupum í bar­átt­unni fyrir lífi sínu þegar okur­karl­inn Fennyman (Þröstur Leó Gunn­ars­son) ætlar að drepa hann upp í skuld. Hilmir Jensson var góður í öllum sínum hlut­verkum en bestur þegar hann reri Will og Víólu yfir Themsá í einu besta atriði sýn­ing­ar­innar. Ragn­heiður Stein­dórs­dóttir var mynd­ar­legur vert á kránni og Jóhann G. Jóhanns­son naut þess að stinga hverri fínu hug­mynd­inni af annarri að Will í skemmti­legu hlut­verki Christophers Marlowe.

Ég var svo heppin að vera á sýn­ingu með stórum hópi af á að giska fjórtán ára ung­lingum og þeim fannst ekk­ert vanta upp á ást­ar­hit­ann milli aðal­leik­ar­anna, Arons Más og Láru Jóhönnu. Þau skræktu, hróp­uðu og hvíuðu af gleði yfir koss­unum og kel­er­í­inu sem líka var vel úti látið á svið­inu. Aron Már er fal­legur ungur maður og fór lengst af ágæt­lega með hlut­verkið, ekki síst ást­ar­sen­urnar. Lára Jóhanna var svo­lítið feimn­ari í þeim (eins og stúlku ber) en naut sín betur þegar Víóla sýnir skap­styrk sinn og ástríðu fyrir fal­legum texta. Hún bar líka afar vel fal­legu kjól­ana sem María Th. Ólafs­dóttir hann­aði handa henni (sá grái var meist­ara­verk) og það gerði Jóhanna Vigdís sann­ar­lega líka.

Leikmynd Finns Arnars Arn­ar­sonar var gíf­ur­lega viða­mikil á hringsvið­inu sem sner­ist og sýndi okkur inn í alls kyns skúma­skot borg­ar­innar og leik­húsin, bæði framsviðs og bak­sviðs. Stúk­urnar hvorum megin sviðs voru líka ágæt við­bót við sviðið og vel not­aðar. Það er mik­ill hraði í sýn­ing­unni og erill sem aðeins dettur niður stöku sinnum þegar texti meist­ar­ans þarf að njóta sín. Tón­listin er eftir þá bræður Jón og Friðrik Dór Jónssyni, flutt af hljóm­sveit undir stjórn Karls Olgeirs Olgeirs­sonar og söng­kon­unni Guðrúnu Ýri Eyfjörð. Mér þótti hún helst til hávær en það er ald­ur­inn, býst ég við. Ung­ling­arnir á bak við mig hefðu ekki tekið undir þessi orð. Ólafur Ágúst Stef­áns­son hannar lýs­ingu og er heldur spar á hana en er sjálf­sagt að kalla fram hug­mynd um aðstæður á sögu­tíma þegar híbýli voru lýst upp með því að brenna hákarla­lýsi á kveik.

Shakespe­are verður ást­fang­inn er prýði­legt verk fyrir ung­linga og snjöll leið til að kynna þennan mikla orðs­ins lista­mann fyrir nýjum kyn­slóðum. Þær fá að vita að hann var mann­legur. Jafnvel er ýjað að því að hann hafi hrif­ist af eigin kyni. Sýnt er hvernig atburðir hvers­dags­lífs­ins geta umbreyst í und­ur­fal­legar ljóð­myndir en líka að jafn­vel meist­arar eiga stundum erfitt með að koma orðum að hugsun sinni. Dæmi um það er barn­ingur Wills við að setja saman sonn­ett­una sem sonn­ettu­skáldið Kristján Þórður þýðir svo ynd­is­lega: „Má segja að þú sért sum­ar­degi lík? / Svo svipul er ei hin ljúfa feg­urð þín …“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina