Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eftirminnileg ummæli sem féllu á árinu

Landinn lá ekki á skoð­unum sínum á árinu sem er að líða, ekki frekar en fyrri ár. Mannlíf tók saman nokkur væg­ast sagt áhuga­verð ummæli sem féllu á árinu sem er að líða.

Eftirminnileg ummæli sem féllu á árinu

„Ég er ekki hand­taska manns­ins míns, sem má grípa í þegar hann hleypur út um dyrnar og stilla á upp hljóð­lega við hlið hans við opin­bera við­burði.“
-Eliza Reid, for­seta­frú Íslands, um hlut­verk sitt sem for­seta­frú Íslands í grein í The New York Times í vik­unni. Eliza er með BA-gráðu í alþjóða­sam­skiptum og meist­ara­próf í sagn­fræði. Hún hefur meðal ann­ars starfað við rit­stjórn og blaða­mennsku, hefur unnið mikið í þágu rit­höf­unda og er vernd­ari ýmissa sam­taka á Íslandi svo fátt eitt sé nefnt.

„Þetta mútu­hneyksli Samherja í Afríku, sem hefur þegar kostað tvo ráð­herra starfið, ætti að vekja yfir­völd á Íslandi af værum blundi. Nú er komið nóg.“
– Þor­valdur Gylfason hag­fræð­ingur.

„Þessi karla­klúbbur íslensks við­skipta­lífs og stjórn­mála mun aldrei deyja og mun aldrei lúffa, þeir standa saman fram í rauðan dauð­ann, og það skiptir í raun engu máli hvað menn gera mikið af sér, þeir munu alltaf kasta sér á bálið hver fyrir annan.“
– Hall­grímur Helgason rit­höf­undur um sama mál.

„Vá, fólk er reið­ara yfir Samherja en jafn­rétt­is­stefnu Íslands­banka.“
– Margrét Gauja Magn­ús­dóttir.

„Mér finnst að þessum árásum á ykkur og annað starfs­fólk Samherja á Íslandi, sem hefur staðið sig vel, því verði að linna.“
– Þor­steinn Már Bald­vins­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Samherja, á starfs­manna­fundi með starfs­mönnum Samherja, um frétta­flutn­ing fjöl­miðla um Samherja og Sam­herj­a­skjölin svoköll­uðu.

„Fyrst heimtum við að heim­ur­inn hætti að þagga niður kyn­ferð­is­of­beldi en nú viljum við hafa rétt­inn til að þagga sjálfar kyn­ferð­is­of­beldi í hel og rétt­inn til að bera menn sökum án þess að þurfa að standa fyrir máli okkar? Það er ofbeldi af verstu skúffu eins og dóms­úr­skurður í máli Atla ber vitni um.“
– Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir leik­kona um við­brögðin við nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í máli Atla Rafns Sig­urðs­sonar gegn Borg­ar­leik­hús­inu.

„Orðræða sem þessi sendir alvar­leg skila­boð út í sam­fé­lagið og hefur að engu trú­verð­ug­leika brota­þola kyn­ferð­is­of­beldis.“
– Yfir­lýs­ing frá tæp­lega hund­rað konum vegna skrifa Stein­unnar Ólínu.

„Sví­virði­legar aðferðir í valda­tafli.“
Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri sagði aðför í gangi til að hrekja hann úr emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra.

„Það er eins og honum líði eins og hann sé hafður einn úti í horni og eng­inn vilji lengur leika við hann.“
Arin­björn Snorra­son, for­maður Lög­reglu­fé­lags Reykja­víkur, um ummæli Haralds.

„Ég myndi frekar saga af mér höf­uðið en hætta að borða kjöt. Ekki af ein­hverri stæla­á­stæðu, bara því ég er sæl­keri og culinary-ævin­týri halda mér gang­andi. Hins­vegar þykir mér sjálf­sagt að taka kjöt alfarið úr skólum.“
– Halldór Hall­dórs­son, a.k.a. Dóri DNA, um fyr­ir­ætl­anir meiri­hlut­ans í Reykja­vík að draga úr fram­boði dýra­af­urða í grunn­skólum borg­ar­innar.

„Það er ekki lengur merki um ríki­dæmi að borða kjöt heldur eig­in­lega öfugt; alþýðan lifir á kjöt­farsi og kjúklingum á meðan hin betur settu eru vegan, enda kostar það sitt.“
– Gunnar Smári Egilsson athafna­maður og sós­í­alista­for­ingi.

„Ég þori að veðja að um helm­ingur þing­manna myndi frekar stinga höfði í sal­erni en að and­mæla styrkjum til bænda.“
– Guð­mundur Stein­gríms­son um íslenskan land­búnað og Alþingi sem hann upp­nefndi hags­muna­gæslu­stofu bænda.

„Hann er sér­stök blað­síða. Án þess að hans fer­ill hafi verið kann­aður sér­stak­lega mætti auð­veld­lega ætla að hann hefði átt erf­iða æsku.“
– Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, hædd­ist að Ágústi Ólafi Ágústs­syni, þing­manni Samylk­ing­ar­innar, í leið­ara sínum. Tilefnið er upp­nám sem varð á Alþingi fyrr í vik­unni þegar Bjarni Bene­dikts­son fjar­mála­ráð­herra rauk út úr þing­sal eftir ásak­anir um að hafa brotið lög um opin­ber fjár­mál.

„Við keyptan rit­stjóra, vil ég segja. Það er betra að vera sér­stök blað­síða sem tekur á slöppum við­brögðum rík­is­stjórn­ar­innar í Sam­herj­a­mál­inu en að vera lélegur pappír sem er ætlað að afvega­leiða þá mik­il­vægu umræðu.“
– Ágúst Ólafur Ágústs­son svar­aði fyrir sig.

„Hann er nátt­úr­lega bara krakka­skítur úr Garðabæ. Hann er fæddur 1975. Þetta er fárán­legt.“
– Sigurjón Kjart­ans­son, hand­rits­höf­undur og annar umsjón­ar­maður útvarps­þátt­ar­ins Tvíhöfði, um Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, for­mann Mið­flokks­ins.

„Það leggur ólykt frá Efsta­leiti. Fnyk af spill­ingu og fyr­ir­fram ákveð­inni nið­ur­stöðu.“
– Hólm­fríður Gísl­as­dóttir, frétta­stjóri Mannlífs sak­aði stjórn RÚV um að vilja velja í stól útvarps­stjóra bak við luktar dyr.

„Nú ætlar rík­is­stjórn Íslands að taka á móti Mike Pence, ræða kurt­eis­lega við hann um við­skipta­sam­ráð og efla með því tengslin við Banda­ríkin. Allar slíkar áætl­anir eru hrein og klár van­virð­ing við sam­fé­lag hinsegin fólks á Íslandi. Við munum ekki sitja undir því þegj­andi að hann sé boð­inn vel­kom­inn hingað til lands.“
– Þorbjörg Þor­valds­dóttir, for­maður Sam­tak­anna ´78, um komu Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna, til lands­ins en sá hefur leynt og ljóst staðið upp á móti rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks í Banda­ríkj­unum.

„Þótt ég sé ein­lægur stuðn­ings­maður rétt­inda sam­kyn­hneigðra (og allra ann­arra ein­stak­linga) þá er ég hér mjög ósam­mála þess­ari ágætis konu. Maður getur ekki kallað eftir opinni umræðu og viljað sam­tímis þagga niður í þeim sem eru manni mest ósam­mála.“
– Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Ölfusi, gagn­rýndi Þor­björgu fyrir að mót­mæla komu Pence.

„Á Íslandi líðum við ekki heim­il­is­of­beldi.“
– Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra.

„Nú þykir fínt að reynslu­lítið fólk, sem hefur fengið póli­tískt vægi með slíkt nesti langt umfram það sem áður tíðk­að­ist, tali niður til flokks­systk­ina sinna og leggi lykkju á leið sína til að vísa þeim sem eldri eru út úr umræð­unni með þótta sem fer öllum illa. Það kann ekki góðri lukku að stýra.“
– Davíð Oddson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, skaut oft föstum skotum á flokks­for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins á árinu sem er að líða.

„Hlutfall of feitra er hátt á Íslandi og neysla á syk­ur­ríkum vörum eykur líkur á offitu.“
– Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra.

„Það er sann­ar­lega göf­ugt mark­mið að fækka feita­bollum þessa heims en til­gang­ur­inn má ekki helga með­alið, ekki í þessu fremur en almennum lyfja­rann­sóknum. Að auka álögur á fólk vegna neyslu lög­legrar vöru er ekki rétt­læt­an­leg til að ná þessu mark­miði.“
– Stefán Einar Stef­áns­son blaða­maður um syk­ur­skatt­inn.

„Miðaldra, hvítur, krist­inn karl­maður, helst reffi­legur og pen­inga­legur, er for­maður. Glæsi­leg­asta konan er vara­for­maður og sæt­asti krakk­inn rit­ari. Þetta er afleið­ing af valda­til­færslu próf­kjör­anna.“
– Ragnar Önund­ar­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri, setti út á flokks­for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Bjarna Bene­dikts­son, Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur og Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur.

„Það er alveg ljóst að Ragnar Ön hefur ein­hvern óeðli­legan áhuga á að gramsa í myndum á fb hjá mér.“
– Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þáver­andi rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

„Það eru c.a. átján mán­uðir síðan þér tókst að koma þér í alla fjöl­miðla Ragnar, fyrir að velta fyrir þér á þessum vett­vangi útliti og ljós­myndum Áslaugar Örnu. Er það virki­lega leið­angur sem þú vilt end­ur­taka?“
– Stefán Pálsson sagn­fræð­ingur.

„Með skrílslátum og húrra­hrópum af pöllum, eins og á vel heppn­uðum fót­bolta­leik en ekki atkvæða­greiðslu sem varðar líf og dauða ófæddra barna, var gengið frá þung­un­ar­rofs­frum­varp­inu í þing­inu.“
– Ólína Þor­varð­ar­dóttir.

„Það er eins og ég hafi farið inn á mjög heil­agt yfir­ráð­ar­svæði kvenna þar sem fötlun mín ógnar hug­myndum um yfir­burði ófatl­aðs kven­lík­ama þegar kemur að móð­ur­hlut­verk­inu.“
– Freyju Har­alds­dóttur, þroska­þjálfa og fötl­un­ar­aktí­vista, sem hefur barist fyrir því að fá að ger­ast fóst­ur­for­eldri sárn­aði að finna ekki fyrir stuðn­ingi úr röðum femínista á Íslandi.

„Þegar við erum að tala um að íslenskum börnum gangi illa í að skilja það sem þau lesa, þá læð­ist að manni sá grunur að íslenskir krakkar kunni að vera ekki eins vel gefnir og krakkar í öðrum löndum.“
– Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, um nið­ur­stöðu PISA- könn­un­ar­innar.

„Það verður sífellt erf­ið­ara fyrir dýra­vini, vegna þessa aukna upp­lýs­inga­flæðis sem tals­maður FESK kýs að kalla „offram­boð af upp­lýs­ingum“, að loka aug­unum fyrir þeim við­bjóði sem fer gjarnan fram í kringum verk­smiðju­fram­leitt kjöt.“
– Guðný Hrönn, blaða­maður á Mannlífi, lét Sigmar Vil­hjálms­son heyra það.

„Hvert manns­barn veit að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og full­trúar hans eru frægir fyrir spill­ingu og sér­hags­muna­gæslu.“
– Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata í borg­ar­stjórn og for­manni mann­rétt­inda-, nýsköp­unar- og lýð­ræð­is­ráðs Reykja­víkur, í pistli á Mannlíf.

„Sama Dóra Björt og reynir að gerir lög­lega og rétt skráða hluti tor­tryggi­lega sér ekk­ert athuga­vert við að borgin hafi brotið á starfs­mönnum.“
– Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn svarar Dóru.

„Nýleg dæmi eru um að í umræðu í sam­fé­lag­inu sé gert lítið úr and­stæð­ing­unum vegna þess að þeir séu „rugluð gam­al­menni“. Er ekki nóg að segja að þeir séu rugl­aðir, ef velja þarf niðr­andi lýs­ingu?“
– Benedikt Jónsson, stofn­andi Við­reisnar, deildi á ald­urs­for­dóma.

„Ég neita því ekki að ég hrökk svo­lítið í kút.“
– Magnúsi Geir Þórð­ar­syni, þáver­andi útvarps­stjóra brá þegar Hatarar veif­uðu palest­ínsku borð­unum í Eurovision-keppn­inni.

„Ef áætl­unin var alltaf sú að snið­ganga keppn­ina í Hollandi að ári, mis­bjóða og móðga almenn­ing, minnka traust skatt­greið­enda á þess­ari rík­is­reknu stofnun allra lands­manna og vera Íslandi til skammar – þá virð­ist allt enn vera sam­kvæmt áætlun.“
– Fjöl­miðla­mað­ur­inn Ívar Hall­dórs­son skamm­að­ist út í útvarps­stjóra fyrir að hafa ekki hlustað á sig og bannað Hatara.

„Ég get ekki annað en litið á leik­þátt Hatara sem ekk­ert annað en enn eina til­raun­ina til þess að taka fram fyrir hendur Palest­ínu­manna og velja hvenær og hvernig þau mega og eiga að mót­mæla.“
– Bryndís Silja Pálma­dóttir, vara­for­maður Félags­ins Ísland-Palest­ína.

„Nennirðu í alvör­unni að láta ekki eins og þú sért í Kar­dashian-fjöl­skyld­unni. Eða Elon Musk. Elít­urugl.“
Eva H. Bald­urs­dóttir, pistla­höf­undur á man.is, var hneyksluð á Dorrit Moussaieff, fyrr­ver­andi for­seta­frú Íslands, fyrir að láta klóna hund sinn Sám.

„Skírskotun í klám og kyrk­ingar.“
-Sigga Dögg var ekki par hrifin af lag­inu Freðinn eftir tón­list­ar­mann­inn Auð.

„Þessi frétt Mannlífs er röng.“
– Haraldur Guðni Eiðsson, upp­lýs­inga­full­trúi Arion banka, um frétt á man.is þar sem full­yrt var að fyr­ir­hugað væri að segja upp átta­tíu starfs­mönnum hjá Arion banka fyrir næstu mán­aða­mót. Fáeinum dögum síðar var 100 starfs­mönnum sagt upp hjá bank­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi