Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sá hluti neyðarlánsins sem var endurgreiddur fór til eigenda og stjórnenda Kaupþings

Sá hluti neyðarlánsins sem var endurgreiddur fór til eigenda og stjórnenda Kaupþings
Arion banki

Kaupþing stóran hluta neyð­ar­láns­ins end­ur­greiddan frá Deutsche Bank. Sú upp­hæð rann þó ekki til Seðla­banka Íslands, heldur til eig­enda Kaup­þings ehf., og að mestu skamm­tíma­sjóða. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í umfjöllun Kjarnans í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Þótt stöð­ug­leika­samn­ingar hafi verið und­ir­rit­aðir og höftum lyft voru enn tæki­færi til staðar hér­lendis fyrir skamm­tíma­sjóð­ina sem sótt­ust eftir ágóða á Íslandi. Nauða­samn­ing­arnir hleyptu þeim beint að eignum sínum. Það gerði þeim kleift að vinna enn betur úr þeim og auka hagnað sinn umtals­vert frá því sem áður var áætlað. Í nýlegri bók eftir Norð­mann­inn Svein Harald Øygard, sem var seðla­banka­stjóri á Íslandi frá febr­ú­ar­lokum 2009 og fram til 20. ágúst sama ár, sem ber heitið „Í víg­línu íslenskra fjár­mála“ kom fram að hægt væri að auka þann hagnað um allt að 65 pró­sent. Það útskýrir að þessir aðilar voru enn að bæta við nýjum sjóðum á Íslandi á árinu 2017, tæpum tveimur árum eftir að nauða­samn­ingar voru hand­sal­aðir. Í bók­inni er rætt við umsjón­ar­mann eins sjóð­anna sem vildi ekki láta nafns síns getið né fyrir hvaða sjóð hann starf­aði. Hann segir þar: „Við keyptum svo­lítið síðla árs 2011 og sóttum í okkur veðrið í árs­byrjun 2012 […] Árið 2012 keyptum við í nafni aðal­sjóðs­ins okkar. Árið 2013, stofn­uðum við sjóð þar sem fjár­festar gátu fjár­fest beint í þrota­búum Glitnis og Kaup­þings. Árið 2016 bætt­ist við sjóður sem átti hluta af ábat­anum af upp­gjör­inu. Árið 2017 bættum við enn einum sjóði við, hann átti einn nýju bank­anna að hluta.“ Sami við­mæl­andi sagði síðar í bók­inni að hans sjóður hafi ráðið um 40 pró­sent í einu þrota­bú­anna snemma árs 2018. Líklegt verður að telja að sjóð­stjór­inn sem um ræðir starfi hjá Taconic Capital, sem átti 46 pró­sent í Kaup­þingi ehf. í byrjun árs í fyrra og 47,7 pró­sent í byrjun yfir­stand­andi árs.

Deutsche Bank endurgreiddi hluta neyðarlánisins

Dæmi um það hvernig var hægt að vinna úr eignum er mála­rekstur sem Kaupþing stóð í gagn­vart þýska stór­bank­anum Deutsche Bank vegna fjár­muna sem höfðu runnið frá Kaup­þingi til Deutsche Bank síð­ustu vik­urnar fyrir fall íslenska bank­ans vegna hins svo­kall­aða CLN-strúkt­úrs. Alls nam heild­ar­upp­hæð þeirra fjár­muna sem fóru frá Kaup­þingi til þýska bank­ans vegna þessa 510 millj­ónum evra. Ekki hafði verið reiknað með að hægt yrði að end­ur­heimta féð, sem rann frá Kaup­þingi á tíma­bil­inu 22. sept­em­ber til 7. októ­ber 2008. Síðustu greiðsl­urnar fóru því til Deutsche Bank eftir að Seðla­banki Íslands hafði veitt Kaup­þingi neyð­ar­lán, og tveimur dögum áður en að bank­inn fór á haus­inn.

Nánast níu árum upp á dag frá því að Kaupþing féll, eða snemma í októ­ber 2016, náð­ist skyndi­lega sam­komu­lag, sem síðar var form­gert í des­em­ber sama ár þegar dóm­stólar stað­festu það. Deutsche Bank vildi greiða stóran hluta þeirrar upp­hæðar sem Kaupþing hafði beint og óbeint fal­ast eftir að fá greidda, eða 425 millj­ónir evra.
Því fékk Kaupþing stóran hluta neyð­ar­láns­ins end­ur­greiddan frá Deutsche Bank. Sú upp­hæð rann þó ekki til Seðla­banka Íslands, heldur til eig­enda Kaup­þings ehf., og að mestu áður­nefndra skamm­tíma­sjóða.

Fámennur hópur fékk svimandi háa bónusa fyrir innheimtu

Greint var frá því fyrir þremur árum síðan að um 20 manna hópur lyk­il­starfs­manna Kaup­þings gæti fengið allt að 1,5 millj­arð króna til að skipta á milli sín ef hámörkun á virði eigna Kaup­þings myndi nást.

Næðust mark­miðin átti að greiða út bón­us­greiðsl­urnar eigi síðar en í apríl 2018.
Kjarninn greindi frá því í októ­ber síð­ast­liðnum að greiðslur til starfs­manna félags­ins, sem voru 17 tals­ins, hefðu í heild numið rúm­lega 3,5 millj­örðum króna á árinu 2018 og hækk­uðu um 900 millj­ónir króna þrátt fyrir að starfs­fólki hefði fækkað. Frá árinu 2016 hafa greiðslur til starfs­fólks Kaup­þings auk­ist um 1,9 millj­arða króna en starfs­fólk­inu sjálfu fækkað úr 30 í 17.

Stjórn og for­stjóri Kaup­þings ehf., félags utan um eft­ir­stand­andi eignir þrota­bús hins fallna banka Kaup­þings, voru sam­tals með 1.216 millj­ónir króna í laun í fyrra. Í stjórn Kaup­þings sitja Allan Jeffrey Carr, Paul Copley, Óttar Pálsson og Piergi­orgio Lo Greco. Copley er einnig for­stjóri Kaup­þings. Það fækk­aði um einn í stjórn félags­ins á milli ára, en Benedikt Gíslason hætti í henni í ágúst 2018 og tók þess í stað sæti í stjórn Arion banka, sem þá var að stóru leyti enn í eigu Kaup­þings. Benedikt var svo ráð­inn banka­stjóri Arion banka í sumar. Því verður að gera ráð fyrir að greiðslur til Bene­dikts fram að þeim tíma sem hann hætti hjá Kaup­þingi telj­ist með í heild­ar­upp­hæð launa­greiðslna til stjórnar.

Launa­greiðslur til stjórnar juk­ust úr 544 millj­ónum króna í 1.216 millj­ónir króna á árinu 2018, eða um 672 millj­ónir króna.

Eini Íslend­ing­ur­inn sem var eftir í stjórn Kaup­þings, lög­mað­ur­inn Óttar Pálsson, hefur setið þar frá árinu 2016, að ósk helstu eig­enda Kaup­þings sem eru banda­rískir vog­unar- og áhættu­sjóðir. Hann starf­aði áður sem ráð­gjafi fyrir þá.

Ítarlega er fjallað um málið á vef Kjarnans og í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Texti / Þórður Snær Júl­í­us­son og Magnús Hall­dórs­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina