Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fer að hægjast á innflytjendum frá Póllandi

Miklar breyt­ingar hafa orðið á íslensku sam­fé­lagi á síð­ustu ára­tugum og er ein breytan þar gíf­ur­legur fjöldi inn­flytj­enda sem hefur ákveðið að taka sitt haf­urtask, söðla um og flytj­ast landa á milli. Stærsti hópur inn­flytj­enda sam­anstendur af Pól­verjum og hafa þeir eins mis­jafna reynslu af dvöl sinni á Íslandi og þeir eru margir.

Fer að hægjast á innflytjendum frá Póllandi

Gerard Pokruszyński er fyrsti pólski sendi­herr­ann á Íslandi en hann tók við stöð­unni í lok árs 2017. Hann segir í sam­tali við Kjarnann að erfitt geti verið að reikna út nákvæman fjölda Pólverja á Íslandi því þrátt fyrir að sam­kvæmt Þjóðskrá séu þeir rúm­lega 20.000 þús­und tals­ins þá sé lík­legt að þeir séu fleiri. „Inni í þess­ari tölu eru til dæmis ekki þeir sem einnig eru orðnir Íslend­ingar en þeir eru á bil­inu fjögur til fimm þús­und tals­ins.“

Sendi­herr­ann segir að Pól­verjum fjölgi um 2.000 á hverju ári hverju. „Ég tel að þessi þróun muni halda áfram næstu ár. Vegna þess að efna­hags­á­stand í Póllandi er að verða mun betra munu færri koma hingað til lands, að mínu mati. Atvinnu­leysi er um fimm pró­sent núna í Póllandi og það er á stefnu­skrá nýrrar rík­is­stjórnar að hækka lægstu launin. Ef þau mark­mið nást þýðir það að lægstu launin, sem og miðl­ungs, verða á við helm­ings­laun á Íslandi. Og vegna þess að það kostar mjög mikið að lifa hér á landi verða launin svipuð fyrir sömu vinnu hér og í Póllandi,“ segir hann.

„Hinn hefð­bundni Pólverji dvelur hér á landi í tíu til tólf ár en á ein­hverjum tíma­punkti ákveður hann hvort hann vilji halda áfram að vera hér eða fara til baka.“

Á næstu fjórum til átta árum mun fólk því halda áfram að flytja frá Póllandi til Íslands, að hans mati, en eftir það mun fjöld­inn snar­minnka. „Sumir munu auð­vitað ákveða að halda áfram að búa hér á landi en aðrir munu óhjá­kvæmi­lega flytja aftur til Póllands.“

Margir sneru til baka í og eftir hrun
Gerard bendir á að oft dvelji Pól­verjar hér á landi og vinni í nokkur ár og fari síðan til baka. „Hinn hefð­bundni Pólverji dvelur hér á landi í tíu til tólf ár en á ein­hverjum tíma­punkti ákveður hann hvort hann vilji halda áfram að vera hér eða fara til baka.“ Þar skipti miklu máli hvort börn séu í spil­inu, hvort fólk vilji að afkom­end­urnir alist upp á Íslandi eða í Póllandi. „Ef börnin fara í íslenska skóla er það ákveðnum vand­kvæðum bundið að fara til baka.“

Lang­flestir Pól­verjar fluttu hingað til lands fyrir efna­hags­hrunið 2008. Þeim fjölg­aði í kjöl­far þess að Pólland gekk í Evr­ópu­sam­bandið árið 2004 og þegar tak­mörk­unum á frjálsu flæði launa­fólks frá nýjum ríkjum ESS var aflétt á Íslandi vorið 2006. Efna­hags­upp­gangur hér á landi á þessum árum hafði mikið að segja og ekki var vöntun á atvinnu í aðdrag­anda hruns­ins.

Í og eftir hrunið sneru aftur á móti um 7.000 manns aftur til heima­lands­ins og fór þá fjöldi Pólverja á Íslandi niður í rúm­lega 9.000 manns árið 2012.

Tungumálakennsla númer eitt, tvö og þrjú

Þegar hann er spurður út í það hvort íslensk stjórn­völd geti gert eitt­hvað til að taka betur á móti Pól­verjum svarar hann að þau í sendi­ráð­inu leggi áherslu á aðeins einn hlut: Að bæta aðstöðu fyrir pólsk börn í skólum. „Fyrir þá sem ákveða að dvelja á Íslandi til lengri tíma er mik­il­vægt að huga að pól­skri tungu­mála­kennslu fyrir börnin. Það er nauð­syn­legt að geta við­haldið móð­ur­mál­inu því þegar börn eru vel stödd þar þá eiga þau auð­veld­ara með læra önnur tungu­mál.“

Auðvitað verði þau að læra íslenska tungu­málið en til þess að þau geti gert það vel sé mik­il­vægt fyrir þau að fá góða kennslu í pólsku einnig. „Ef þau velja síðan að búa hér áfram aukast tæki­færi þeirra ef þau eru góð í íslensku. Þetta hef ég einnig rætt við mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herr­ann, Lilju Alfreðs­dóttur, að börnin læri pólsku og íslensku. Það er auð­vitað eðli­legt að þau læri tungu­málið í land­inu þar sem þau búa.“

Lesa má umfjöll­un­ina í heild í nýjasta tölu­blaði Mannlífs og á vef­síðu Kjarnans.

Texti / Bára Huld Beck

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina