Siguratriðið úr Hlíðaskóla, Þið eruð ekki ein, fjallaði um kynsegin og hinsegin tilfinningar unglinga og viðbrögð samfélagsins við einstaklingum sem skilgreina sig utan tvíhyggju kynjakerfisins.

Átta skólar kepptu til úrslita á lokakvöldinu Árbæjarskóli, Breiðholtsskóli, Hagaskóli, Háteigsskóli, Hlíðaskóli, Laugalækjarskóli, Réttarholtsskóli og Seljaskóli. Vel á þriðja hundrað unglingar stigu á svið á lokahátíðinni þar sem Skrekkur var haldinn í 30. sinn.

Dómnefnd skipuðu stjórnendur menningarhúsa í borginni; Borgarleikhússins, Þjóðleikhússins, Hörpu, Íslenska dansflokksins og ungmenni úr ungmennaráði Samfés. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti nemendum Hlíðaskóla verðlaunin.
Horfa má á siguratriðið hér.































Athugasemdir