Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Ég tel að atvinnurekendur á almennum vinnumarkaði geti tryggt nafnleysi þolenda“

Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB, var í nefnd vel­ferð­ar­ráðu­neytis um end­ur­skoðun reglna um ein­elti og kyn­ferð­is­lega áreitni á vinnu­stöðum sem vann til­lögu að núgild­andi reglu­gerð þar um. Hún segir ástæðu þess að ekki er fjallað um nafn­leynd í reglu­gerð­inni vera þá að þegar reglu­gerðin var samin, árið 2015, hafi umræðan í þjóð­fé­lag­inu verið önnur en nú og taka þurfi til­lit til breyttra við­horfa í þjóð­fé­lag­inu þegar reglu­gerðin er túlkuð.

„Ég tel að atvinnurekendur á almennum vinnumarkaði geti tryggt nafnleysi þolenda“
Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir

„Meg­in­mark­mið reglu­gerðar nr. 1009/2015, um aðgerðir gegn ein­elti, kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bund­inni áreitni og ofbeldi á vinnu­stöðum er að koma í veg fyrir og stöðva slíka hegðun,“ útskýrir Sonja. „Í málum sem þessum þurfa atvinnu­rek­endur að upp­lýsa málið og kom­ast að nið­ur­stöðu um hvort áreitni hafi átt sér stað. Í kjöl­farið þarf þá að meta hvernig sé hægt að stöðva hegð­un­ina. Þó nokkur dæmi eru um að aðstæður séu með þeim hætti að atvinnu­rek­andi og þeir sem hafa lagt fram kvörtun telji að ekki sé hægt að stöðva hegðun með áfram­hald­andi nær­veru þess sem kvörtun bein­ist gegn.“

Í umræð­unni um mál Atla Rafns hefur því verið haldið fram að upp­sögnin hafi verið ólög­leg, hvernig metur þú það?

„Nið­ur­staða dóms­ins byggir á því. Að jafn­aði hafa atvinnu­rek­endur og launa­fólk á almennum vinnu­mark­aði heim­ild til þess að segja ráðn­ing­ar­samn­ingum upp,“ segir Sonja. „Ef staðið er rétt að upp­sögn og upp­sagn­ar­frest­ur­inn er virtur þá lýkur ráðn­ing­ar­sam­band­inu almennt án frek­ari eft­ir­mála. Ef upp­sögn er vegna meints brots launa­manns þarf atvinnu­rek­andi að sýna fram á að brotið hafi átt sér stað.“

Atvinnurekanda skylt að virða trúnað

Mála­rekst­ur­inn byggir að stórum hluta á því að Atli Rafn hafi ekki verið upp­lýstur um hverjir það voru sem sök­uðu hann um áreitni. Á sá sem vikið er úr starfi skil­yrð­is­lausan rétt á því að fá að vita nöfn þeirra sem hafa kvartað undan honum?

„Það er ekk­ert í lögum sem tryggir starfs­manni á almennum vinnu­mark­aði rétt­inn til að vita nöfn þeirra sem kvört­uðu undir þessum kring­um­stæðum,“ full­yrðir Sonja. „Heldur þvert á móti er atvinnu­rek­anda skylt að halda og virða trúnað sé þess óskað eins og Per­sónu­vernd komst að nið­ur­stöðu um.

Ástæða þess að ekki er fjallað um nafn­leynd eða skyldu atvinnu­rek­anda til að upp­lýsa um nöfn þeirra sem kvarta í reglu­gerð­inni varð­andi áreitni er að umræðan var ekki á sama stað í aðdrag­anda setn­ingar reglu­gerð­ar­innar. Umræðan sner­ist nán­ast ein­göngu um það hvernig mætti stuðla að því að þolendur leit­uðu sér aðstoðar og tryggt að það væri við­eig­andi ferli sem tæki við á vinnu­staðnum. Það voru engin dæmi um það þá að fólk óskaði eftir því að stíga fram án þess að nafns þess væri getið og almennt mjög fá dæmi um að þolendur væru að stíga fram yfir höfuð. Lög og reglur gera ekki ráð fyrir öllum mögu­legum aðstæðum og því þarf að túlka þau í sam­ræmi við mark­mið þeirra.“

„Það er ekk­ert í lögum sem tryggir starfs­manni á almennum vinnu­mark­aði rétt­inn til að vita nöfn þeirra sem kvört­uðu undir þessum kring­um­stæðum. Heldur þvert á móti er atvinnu­rek­anda skylt að halda og virða trúnað sé þess óskað eins og Per­sónu­vernd komst að nið­ur­stöðu um.“

Er atvinnu­rek­andi þá í fullum rétti að halda nöfnum ásak­enda leyndum? Hvað með rétt þess sem ásak­aður er til að verja sig?

„Ég tel að atvinnu­rek­endur á almennum vinnu­mark­aði geti tryggt nafn­leysi þolenda og stuðlað þannig að því að starfs­fólk treysti sér til að leita aðstoðar vegna áreitni eða ofbeldis á vinnu­stað,“ segir Sonja. „Markmið reglu­gerð­ar­innar er að tryggja að það sé far­vegur fyrir þolendur og að þeir geti treyst því að atvinnu­rek­andi bregð­ist við og hegð­unin verði stöðvuð. Atvinnu­rek­endur þurfa þá að rann­saka málið og kom­ast að nið­ur­stöðu um hvort áreitnin eða ofbeldið hafi átt sér stað eða ekki. Í kjöl­farið þarf svo að taka ákvörðun um fram­haldið byggt á heild­ar­hags­munum og því miður þarf oft að taka þá erf­iðu ákvörðun að vega saman hags­muni þess sem kvartar á við hags­muni þess sem kvartað er gegn. Opin­berir atvinnu­rek­endur geta hins vegar ekki tryggt nafn­leynd ein­stak­linga sem stíga fram þar sem ólíkar reglur gilda á opin­berum vinnu­mark­aði og því er mik­il­vægt að sam­talið um hver besta til­hög­unin sé fari fram.“

Ekki í samræmi við aukna þekkingu

Annað sem mikið hefur verið rætt er upp­hæð bót­anna sem Atla Rafni voru dæmdar, finnst þér sú umræða eiga rétt á sér?

„Í þeim starfs­manna­málum sem við höfum komið að varð­andi upp­sagnir hafa miska­bætur fyrir dómi oft verið í kringum 800 þús­und krónur,“ segir Sonja. „Mörg þess­ara mála hafa verið afar íþyngj­andi fyrir hlut­að­eig­andi, fólk verið í þeim aðstæðum að eiga erfitt með að finna aðra vinnu, mikið nei­kvætt umtal um við­kom­andi og þau jafn­vel útskúfuð úr sam­fé­lag­inu. Í máli Leik­fé­lags Reykja­víkur eru starfs­mann­inum fyrr­ver­andi dæmdar næstum tvö­falt hærri miska­bætur. Það er óvenju­legt.“

Þannig að þér finnst dóm­ur­inn á skjön við ríkj­andi við­horf í sam­fé­lag­inu?

„Þó nokkur dæmi eru um að nið­ur­stöður dóma séu ekki í takt við aukna þekk­ingu og við­horfs­breyt­ingar í sam­fé­lag­inu og má velta fyrir sér hvort þetta sé dæmi um slíkt,“ segir Sonja. „Það verður áhuga­vert að sjá nið­ur­stöðu Lands­réttar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina