Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Guðbjörg og Ingi flýja undan barnaníðingi og dýrtíð til Spánar: „Við höfum verið heppin síðan við tókum saman“

Parið Guðbjörg Sig­ur­laug Gunn­ars­dótir og Ingi Karl Sig­ríð­ar­son eru flutt til Spánar með börn sín. Ástæðan er þrí­þætt að sögn pars­ins, en ein þeirra er sú að erfitt er fyrir öryrkja með stóra fjöl­skyldu að lifa af öryrkja­bótum hér á landi.

Guðbjörg og Ingi flýja undan barnaníðingi og dýrtíð til Spánar: „Við höfum verið heppin síðan við tókum saman“
Ingi og Guðbjörg.|Ingi og Guðbjörg

Parið segir sögu sína á Facebook-síð­unni: Við erum hér líka, en það eru hjónin Alda Lóa Leifs­dóttir og Gunnar Smári Egilsson sem skrifa þar sam­tíma­sögur öryrkja á Íslandi.

Guðbjörg og Ingi eiga sam­tals sex börn á aldr­inum átta til átján, hún þrjú og hann þrjú.

„Það eru einkum þrjár ástæður fyrir að við erum að flytja til Spánar. Í fyrsta lagi er mat­ur­inn þar 80 pró­sent ódýr­ari en hér. Ef Ingi væri ekki með byssu pabba síns og færi á skytt­erí, ef hann fengi ekki fara á skak með vini sínum til að fiska í soðið og ef hann væri ekki bæði nýt­inn kokkur og klár í að búa til góðan mat úr litlu; þá gætum við ekki gefið börn­unum okkar að borða, ekki þegar liðið er á mán­uð­inn. Örorku­bæt­urnar duga ekki fyrir fram­færslu. Ef við hefðum ekki gæs og fisk í fryst­inum myndum við svelta síð­ustu daga hvers mán­aðar.“ segir Guðbjörg.

Getur öryrki leyft sér að elska?

Ingi skyldi við barns­móður sína, missti vinnu, missti heim­ili sitt, var veg­laus og alls­laus, afl­laus og vilja­laus, en sam­þykkti að flytja til vina sinna á Akureyri. Þar bjó barns­móðir hans með börnin. Ingi gat umgeng­ist þau og hafið hæga bata­göngu. Þar kynnt­ist hann Guð­björgu, en þau segj­ast fyrst hafa verið í afneitun með sam­band sitt.

Var eitt­hvert vit í því? Hvað hafði hann að gefa þess­ari þriggja barna ein­stæðu móður?,” segir Ingi. Hann, sem gat varla staðið undir sjálfum sér? Getur öryrki leyft sér að elska? Og vera elsk­aður? Verður honum ekki bara refsað? Getur það endað vel?

„Við höfum verið heppin síðan við tókum saman. Við stöndum saman, leynum hvort öðru engu og tölum saman um allt. Saman getum við margt. Og með smá heppni getum við nán­ast allt. Nema lifað á Íslandi. Þar getur eng­inn lifað hér sem er svo óhepp­inn að vera öryrki.“

Bjuggu í tveimur íbúðum og á biðlista eftir félagslegu húsnæði

Fjöl­skyldan bjó áður í tveimur íbúðum á Akureyri, þar sem engin íbúð fékkst þar nógu stór fyrir fjöl­skyld­una sem þau höfðu efni á að greiða fyrir og telur parið að félags­leg íbúð sé ekki til sem er nógu stór fyrir alla. Einnig sé dýrt að fá börn Inga til þeirra, en þau eru búsett í Noregi.

„Í öðru lagi erum við að flýja hús­næð­iskrepp­una á Akureyri. Við fáum ekki nógu stóra íbúð fyrir okkur öll, enga sem við höfum efni á. Við erum sex í heim­ili og átta þegar yngri börnin hans Inga koma til Íslands. Við búum í tveimur litlum íbúðum í dag, komust ekki fyrir í annarri og getum eig­in­lega ekki búið svona lengur. Hvernig á fjöl­skylda að búa í tveimur íbúðum? Við erum á biðlista eftir stærri íbúð, en gætum verið þar enda­laust. Ég held að það sé engin íbúð í félags­lega kerf­inu á Akureyri sem er nógu stór fyrir sex til átta manna fjöl­skyldu. Svo er of dýrt fyrir okkur að fá yngri börnin frá Noregi. Það kostar meira um 140 þús­und krónur að fá þau í heim­sókn, jafn­vel þótt við fáum lán­aðan bíl til að sækja þau suður til Kefla­víkur. Þegar við erum flutt til Spánar geta þau komið til okkar fyrir fimm­tíu þús­und krónur. Og búið með okkur í ein­býl­is­hús­inu. Við leigjum hús með mörgum svefn­her­bergjum, þremur bað­her­bergjum og með hús­gögnum fyrir sama verð og við borgum fyrir aðra íbúð­ina hér á Akureyri.“

Áralangar ofsóknir af hálfu barnsföðurs

Þriðja ástæðan er þó af per­sónu­legum, ekki fjár­hags­legum aðstæðum, því fjöl­skyldan er að flytja vegna ára­langra ofsókna barns­föður Guð­bjargar.

„Þriðja ástæðan er að við erum að flýja barn­a­níð­ing og elti­hrelli sem hefur ofsótt okkur og börnin síð­ustu árin. Þetta er barns­faðir Guggu, faðir tveggja yngri barn­anna. Eftir margra ára bar­áttu vann Gugga loks for­ræð­is­málið í sumar. En það stoppar hann ekki. Hann situr um okkur. Einu sinni kom til mín hand­rukk­ari sem sagði að mað­ur­inn hefði borgað honum fyrir að berja mig svo ég lenti á spít­ala. Ég var hepp­inn að hand­rukk­ar­inn þekkti mig og vildi ekki gera mér illt. En það er sama þótt við kærum svona eða látum vita, við fáum enga vernd. Við, og ekki síður börnin, erum í hættu hér á Akureyri. Þetta er dæmdur maður, hættu­legur maður. Þess vegna erum við að flýja, til að losna frá honum. En síðan vill svo til að við getum líka átt betra líf á Spáni, búið betur, búið öll saman, borðað betur. Búið börnum okkar heim­ili. Tryggt þeim öryggi og frið. Það getum við ekki hér, ekki sjens,” segir Ingi.

Öryrkjar vegna fæðingargalla og slyss

Parið er bæði öryrkjar. Guðbjörg er með fæð­ing­argalla, lá þver­legu í fæð­ingu og fædd­ist með hrygg­skekkju. Þegar hún var sautján ára lenti hún í slysi þegar snjó­ýta keyrði aftan á kerru sem var aftan í bílnum sem hún ók, hún fékk þungt högg á hrygg­inn og þoldi það illa þar sem hrygg­ur­inn var ekki sterkur fyrir. 25 ára var Guðbjörg orðin óvinnu­fær vegna stoð­kerf­is­vanda.

Ingi var á sjó sem ung­lingur og ungur maður þar til hann varð fyrir slysi, skipa­fé­lagi hans hafði blandað saman klór og sápu og við það mynd­að­ist klór­gas sem Ingi and­aði að sér og skað­aði lungun. Hann hefur ekki enn náð sér, hvorki í lung­unum né hnjánum. En þarna varð hann þó ekki öryrki, röð áfalla olli því að hrundi saman mörgum árum seinna og sökk niður í þung­lyndi og von­leysi.

Unnu bæði forræðismál í sumar

Guðbjörg var ein­stæð móðir með eitt barn þegar hún kynnt­ist seinni barns­föður sínum og eign­að­ist tvö börn með honum. Að hennar sögn hefur hún síðan reynt að losna við hann úr lífi sínu, barn­anna og Inga.

Maðurinn var hand­tek­inn stuttu eftir að þau slitu sam­vistum fyrir að nauðga tólf ára stúlku, var dæmdur og sat í fang­elsi í nokkra mán­uði. Þrátt fyrir ákæru og dóm vegna barn­a­níðs hélt mað­ur­inn umgengn­is­rétti yfir börn­unum. Þegar Guðbjörg neit­aði að leyfa dæmdum barn­a­níð­ing að hitta börnin fékk hann dæmdar á hana dag­sektir fyrir umgeng­is­hindrun. Hún barð­ist gegn mann­inum, en hljóp alls staðar á veggi, fann hvergi stuðn­ing. Hún þurfti að berj­ast við mann­inn og kerfið í leið­inni, fannst kerfið alltaf taka stöðu með honum.

Gugga krafð­ist þess að fá fullt for­ræði yfir börnum sínum og rétt til að neita föður þeirra um umgengni. Hún fékk gjaf­sókn og fékk aðstoð lög­manns með mikla reynslu sem sótti málið af krafti. En það gekk samt brös­ug­lega, dóm­ar­inn í mál­inu fór í leyfi og þá lenti málið aftur á byrj­un­ar­reit. Það leið langur tími í óvissu. Og ótta við mann­inn. Það var ekki fyrr en síðla sum­ars, eftir marga ára bar­áttu, að Gugga vann fullt for­ræði yfir börn­unum.

Ingi barð­ist einnig um for­ræði yfir elstu dóttur hans, sem flytur með fjöl­skyld­unni til Spánar. Yngri tvö börn hans búa í Osló. Vann hann for­ræði yfir dóttur sinni í sumar.

Lesa má sögu þeirra í heild á Facebook-síð­unni: Við erum hér líka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina