Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

HEIMA-SKAGI í fyrsta sinn

Ólafur Páll Gunn­ars­son, útvarps­maður á RÚV, hefur síð­ast­liðin sex ár haldið tón­list­ar­há­tíð­ina HEIMA í Hafn­ar­firði ásamt fleiri aðilum. Þann 1. nóv­em­ber mun hann halda sam­bæri­lega hátíð í fyrsta sinn á Akranesi.

HEIMA-SKAGI í fyrsta sinn
Óli Palli og Hlédís halda tón­list­ar­há­tíð­ina HEIMA-SKAGI.|Friðrik Dór

„Hug­myndin að Heima í Hafn­ar­firði fædd­ist á Iceland Airwaves árið 2011 eða 2012 þegar ég og Kiddi kan­ína í Hljóma­lind hittum þar fær­eyskan vin okkar, Jon Tyril, sem var í hljóm­sveit­inni Clickhaze með Eivör. Hann sagði okkur að hann væri að starta nýrri hátíð í Gøtu í Færeyjum helg­ina á eftir sem heitir HOYMA,“ segir Óli Palli um til­urð hátíð­ar­innar í Hafn­ar­firði.

„Ég og Kiddi horfðum hvor á annan: „Þetta er geggjuð hug­mynd, við ætlum að stela þessu og setja upp í Hafn­ar­firði,“ sem við gerðum vorið eftir, fyrsta vetr­ar­dag.“ Þeir félagar héldu hátíð­ina fyrst saman, en síð­ustu ár hafa Tómas Ragn­ars­son og Henný María Frí­manns­dóttir séð um hana ásamt Óla Palla.

„Þetta er svo skemmti­legt konsept, svo mikil nánd og öðru­vísi en allir aðrir tón­leikar sem maður fer á.“

Hátíðin fær útibú á Skaganum

Fyrir tæpum tveimur árum flutti Óli Palli ásamt fjöl­skyldu sinni upp á Skaga og fór þá að hugsa um að halda sam­bæri­lega hátíð þar. „Þegar ég flutti hugs­aði ég að það væri svo gaman að halda þetta hér líka, svona útibú sem er minna í sniðum. Þetta er svo skemmti­legt konsept, svo mikil nánd og öðru­vísi en allir aðrir tón­leikar sem maður fer á,“ segir hann og bætir við að HEIMA í Hafn­ar­firði muni að sjálf­sögðu halda áfram. „Já, það er móð­ur­skipið.“

Óli Palli fékk Hlédísi Sveins­dóttur til liðs við sig. „Hún er ansi dug­leg og gerir allt mögu­legt frá því að setja upp mat­ar­mark­aði að tækni­messum. Hún býr líka rétt hjá mér og mér fannst til­valið að fá hana með mér í þetta, enda líka leið­in­legt að vera einn að brasa í svona.“

Friðrik Dór er á meðal lista­manna sem koma fram á hátíð­inni.

Eitt kvöld, 12 tónleikar, sex heimahús

HEIMA-SKAGA­há­tíðin fer fram föstu­dag­inn 1. nóv­em­ber og er haldin í tengslum við menn­ing­ar­há­tíð Skaga­manna, Vökudaga. Sex lista­menn/hljóm­sveitir koma fram sem spila tvisvar sinnum hver í jafn­mörgum húsum. Þeir sem koma fram eru Friðrik Dór, Högni Egilsson, Jónas Sig, Ragn­heiður Gröndal, Valgeir Guð­jóns­son og Úlfur Úlfur. Þeir fyrstu stíga á stokk klukkan 20 og þeir síð­ustu enda um klukkan 23.

„Þú kaupir miða á Tix.is, skiptir svo mið­anum í arm­band og færð kort og dag­skrá og ferð svo bara og sérð það sem þú vilt,“ segir Óli Palli. „Aðallega er spilað í HEIMA-húsum (Vest­ur­gata 32, Vest­ur­gata 71b, Skóla­braut 20 og Grund­ar­tún 8.) Svo erum við í Akra­nes­kirkju líka og á litlu brugg­húsi, Báran, sem er nýopnað, og þetta er allt á gamla Skaganum sem er líka skemmti­legt.“

Er ekk­ert mál að fá fólk til að opna heim­ili sín fyrir blá­ó­kunn­ugu fólki? „Það hefur nú verið minna mál en margur myndi halda. Það var svo­lítið erfitt fyrsta árið í Hafn­ar­firði og líka svo­lítið erfitt að selja fólki mið­ana, sumir voru feimnir við að koma heim til fólks. Við kveiktum strax á per­unni hvað þetta var skemmti­legt konsept, og vorum vissir um að við myndum rokselja strax, sem gerð­ist svo ekki. En síðan hefur þetta bara gengið vel og sífellt betur, og upp­selt var á síð­ustu hátíð. Fólk þekkir konseptið úr Hafn­ar­firði, þannig að þetta var ekki mikið mál. Vinir mínir og skyld­fólk opna heim­ili sín og það var auð­sótt.“

Að dag­skrá lok­inni í heima­hús­unum er svo „eft­irpartí“ á Gamla Kaup­fé­lag­inu sem er opið öllum og frítt inn. Þar getur fólk hist og borið saman bækur sínar og heyrða tóna eftir kvöldið. Þess má geta að ekki spila allir á sama tíma og þeir sem eru dug­leg­astir að rölta á milli sjá flest atriði.

Miða má fá á Tix.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina