Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Tók 24 ár að fá heilatengda sjónskerðingu greinda

Dagbjört Andr­és­dóttir fædd­ist tölu­vert fyrir tím­ann og vegna áfalls í fæð­ingu hefur hún verið með heila­tengda sjón­skerð­ingu alla sína ævi.

Tók 24 ár að fá heilatengda sjónskerðingu greinda
Hún spurði mikið um líf mitt og ég svar­aði auð­vitað og svo byrj­aði hún bara allt i einu að gráta. Mér brá svo­lítið

Skerð­ingin var þó ekki greind fyrr en 24 árum síðar og það var algjör­lega að frum­kvæði Dag­bjartar og móður hennar sem höfðu leitað sér upp­lýs­inga á Netinu. Nú berst Dagbjört fyrir því að auka þekk­ingu og skiln­ing á þess­ari skerð­ingu og verður á meðal fyr­ir­les­ara á fyrstu ráð­stefnu um heila­tengda sjón­skerð­ingu sem haldin er á Íslandi

„Ég hef verið með heila­tengda sjón­skerð­ingu, CVI, frá fæð­ingu en greind­ist ekki fyrr en fyrir þremur árum þegar ég var orðin 24 ára gömul,“ segir Dagbjört og hristir höf­uðið. „Ástæðan fyrir sjón­skerð­ing­unni er lík­leg­ast heilaskaði af völdum súr­efn­is­skorts í fæð­ingu, en ég fædd­ist um það bil tveimur mán­uðum fyrir tím­ann. Sá heilaskaði olli einnig hreyfi­hömlun, aðal­lega í fótum, og á vinstri hlið en það er þó heila­tengda sjón­skerð­ingin sem háir mér mest í dag.“

Spurð hvað það þýði að vera með heila­tengda sjón­skerð­ingu og hvernig það lýsi sér er Dagbjört fljót til svars.

„Einkenni CVI eru mjög ein­stak­lings­bundin, það eru engir tveir með nákvæm­lega sömu ein­kennin,“ útskýrir hún. „Hjá mér kemur hún meðal ann­ars fram þannig að ég er með mjög skert sjón­svið, svo skert að þó að sjón­skerpan sé í lagi er ég aðeins með fjög­urra til fimm pró­senta sjón. Ég sé alls ekki niður fyrir mig og aðeins að örlitlu leyti út til hlið­anna. Þessu hefur verið lýst fyrir mér af augn­læknum eins og ef ein­hver full­sjá­andi tæki rúllu af sal­ern­is­pappír og setti fyrir augun. Þrátt fyrir þetta get ég lesið texta, en ég get aðeins séð hluti sem eru beint fyrir framan mig. Til dæmis verð ég að halda bók alveg upp að and­lit­inu til að lesa. Það getur oft verið mjög erfitt fyrir mig að kom­ast um. Gang­stétt­ar­kantar, stigar, aðskota­hlutir og annað þess háttar eru mjög erf­iðir og ég dett oft, stundum klessi ég líka á. Ég finn oft ekki hluti þótt þeir séu beint fyrir framan mig, sér­stak­lega ef and­stæður í litum eru litlar eða ef margir hlutir eru á svip­uðum stað, það er til dæmis oft erfitt að finna upp­á­halds­leik­fang í dóta­kassa eða ákveðna bók í bóka­hill­unni. Ef ég er með gler­glas með vatni fyrir framan mig sé ekki að það sé fullt af vatni, því það eru engar and­stæður í lit.“

„Mig langar að kynna þessa skerð­ingu betur fyrir fólki. Það er til dæmis eng­inn skiln­ingur á þess­ari skerð­ingu í mennta­kerf­inu.“

Enginn vissi hvað þetta var

Dagbjört segir ástæð­una fyrir því hversu seint hún fékk grein­ing­una senni­lega vera þá að skerð­ingin hafi verið nán­ast óþekkt hér á landi og til að flækja málið þá sé eitt af ein­kenn­unum að þessi skerð­ing grein­ist ekki við venju­lega sjón­skoðun og því hafi hún verið skráð með átta­tíu pró­sent sjón á öðru auga og þrjá­tíu pró­sent á hinu aug­anu öll skóla­árin. Hún átti þó í erf­ið­leikum með ýmis­legt í nám­inu en segir að engum hafi dottið í hug að ástæðan fyrir því væri sjón­skerð­ing.

„Ég hafði sér­kenn­ara í grunn­skóla en það var ekki vegna þess að ég væri sjón­skert, heldur vegna ann­arra vanda­mála sem skað­inn olli, reikni­blindu meðal ann­ars. Það var ekki gengið út frá CVI ein­fald­lega vegna þess að eng­inn vissi hvað það var, og veit varla enn í dag. Því sem ég átti erfitt með var ein­fald­lega skellt á hreyfi­höml­un­ina hjá mér, ekki var fundin nein önnur ástæða. Mamma og pabbi vissu auð­vitað alltaf að ég væri eitt­hvað sjón­skert en lækn­ir­inn blés á það og sagði að ég væri bara treg og lengi að læra. Samt gekk mér vel í íslensku og erlendum tungu­málum en raun­grein­arnar voru mér alveg lokuð bók. Reikni­blindan gerir það að verkum að ég get ekki lesið á klukku og taln­ingar eru bara rugl fyrir mér, ég á til dæmis mjög erfitt með að telja pen­inga,“ segir Dagbjört og hlær.

„Íþrótta­tímar í grunn­skóla voru til dæmis martröð fyrir mig. Ég sá aldrei bolta og var alltaf skít­hrædd þar sem ég fékk bolt­ann oft­ast í mig, ég gat ekki gripið hann því ég sá hann ekki.“

Hrædd í íþróttatímum

Dagbjört segir að sjón­skerð­ingin hafi haft mjög mikil áhrif á líf hennar í upp­vext­inum. „Íþrótta­tímar í grunn­skóla voru til dæmis martröð fyrir mig. Ég sá aldrei bolta og var alltaf skít­hrædd þar sem ég fékk bolt­ann oft­ast í mig, ég gat ekki gripið hann því ég sá hann ekki. En svo fór ég í sund og þar fann ég mig ágæt­lega. Ég þurfti reyndar að hætta að synda vegna floga­veiki sem ég greind­ist með sem ung­barn en lá í dvala fram á ung­lings­árin þegar hún bloss­aði upp aftur. Í dag er ég á góðum lyfjum sem halda henni niðri en ég þarf að vera á þeim það sem eftir er ævinnar.“

Það eru hins vegar engin lyf til við heila­tengdri sjón­skerð­ingu og Dagbjört segir að sér­fræð­ingar í skerð­ing­unni hafi sagt henni að til þess að hægt væri að laga ástandið þyrfti hún bók­staf­lega að vera með linsur í heil­anum þar sem vanda­málið liggur þar en ekki í aug­unum sjálfum. En sú tækni sé ekki enn þá til.

Söngurinn bjargar sjálfsmyndinni

Dagbjört fór ung að æfa söng og hefur bók­staf­lega blómstrað í tón­list­inni, lauk fram­halds­prófi í söng 2018 frá Söng­skóla Sigurðar Demetz en sækir enn nám þar. Það er sjálf Diddú sem er kenn­ar­inn hennar. Hvernig kom það til að hún fór að syngja? „Ég hef haft mjög gaman af tón­list alveg síðan ég var barn,“ segir hún. „Var alltaf sísyngj­andi eitt­hvað bull heima hjá mér. Mamma og pabbi sáu fljótt að ég þyrfti að kom­ast í kór og þegar ég var ell­efu ára byrj­aði ég í Stúlkna­kór Reykja­víkur hjá Margréti Pálma­dóttur. Þegar ég óx upp úr honum fór ég yfir í Vox Feminae sem Margrét stjórn­aði líka. Með því ákvað ég að fara í söng­nám og byrj­aði í því þegar ég var fjórtán ára og sem sagt lauk því í fyrra, en er nú í fram­halds­námi.“

Heila­tengda sjón­skerð­ingin hefur þó háð Dag­björtu í söng­nám­inu líka því hún getur ekki lesið nótur. „CVI lýsir sér þannig að þótt augun séu í flestum til­fellum í lagi þá vinnur heil­inn rangt úr upp­lýs­ing­unum sem ber­ast til augn­anna. Það gerir þær óskýrar, skrýtnar eða jafn­vel óskilj­an­legar. Ég hef verið í söng­námi í mörg ár en hef aldrei getað lesið nótur almenni­lega. Það er örugg­lega vegna þess að lín­urnar fimm á nótna­streng liggja of þétt saman og renna saman í eina línu fyrir mér. Þá liggja nót­urnar þar ofan á líka of þétt saman sem gerir nán­ast ómögu­legt að lesa úr þeim. Það að geta ekki séð og lesið nót­urnar hefur háð mér veru­lega í bók­legu söng­námi þótt ég reyni að láta það ekki stoppa mig. Ég upp­lifi ekki mik­inn skiln­ing á þessu, nem­endur með sér­þarfir eru fáir í tón­list­ar­skólum. Og þó að skól­inn sé allur af vilja gerður og kenn­ar­arnir frá­bærir, eins og hjá mér, eru það ekki þeir sem setja regl­urnar og verða að fara eftir reglum prófa­nefndar, sem sýnir mjög lít­inn skiln­ing. Ég hef þurft að berj­ast mjög mikið út af þessu. En söng­ur­inn hefur styrkt sjálfs­mynd­ina hjá mér mjög mikið, hún er ekki mjög mikil á öðrum sviðum nefni­lega, og ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki söng­inn. Ég hefði örugg­lega bara verið lögð inn á geð­deild eða eitt­hvað,“ segir Dagbjört og hlær.

Ástin og ítalskan

Auk þess að vera í söng­nám­inu fór Dagbjört í BA-nám í ítölsku og á ein­ungis eftir að skila BA-rit­gerð til að útskrif­ast. Það var reyndar ástin sem leiddi hana á fund ítölsk­unnar, ekki ítalskir óperu­textar eins og fyrst kemur upp í hug­ann.

„Upp­haf­lega voru það ítölsku óperu­text­arnir sem kveiktu áhuga minn á ítölsk­unni, jú, en svo kom fleira til. Ég eign­að­ist sko ítalska tengda­fjöl­skyldu,“ segir Dagbjört leynd­ar­dóms­full. „Maðurinn minn er ítalskur, við kynnt­umst á Netinu og höfum verið saman lengi. Fyrst töl­uðum við mikið saman, allt voða­lega róm­an­tískt, og svo fór ég út til að hitta hann. Eftir það varð ekki aftur snúið, hann flutti hingað, lærði íslensku með því að tala hana og lesa, fór í háskóla­nám og er nú með góða vinnu hér. Þegar hann kom og ég sá að það var alvara í þessu hjá okkur ákvað ég að ég yrði að læra ítölsku. For­eldrar hans tala nefni­lega ekki orð í ensku og mér fannst alveg nauð­syn­legt að geta talað við þau. Hann er far­inn að tala fína íslensku og við tölum yfir­leitt íslensku saman, nema þegar við viljum ekki að fólkið í kringum okkur skilji það sem við erum að segja. Þá svissum við yfir í ítölsk­una,“ bætir Dagbjört við og skelli­hlær.

Tilviljun að skerðingin var greind

Það hefur breytt mjög miklu fyrir Dag­björtu að fá loks­ins grein­ingu á heila­tengdu sjón­skerð­ing­unni, en það var nán­ast fyrir algjöra til­viljun að hið sanna kom í ljós. „Það var ekki fyrr en mamma, sem vann í grunn­skóla, hitti barn sem var greint með CVI og hag­aði sér nán­ast alveg eins og ég gerði: fann ekki hluti, klessti á, sá ekki hluti og svo fram­vegis, sem það kvikn­aði á per­unni hjá henni og hún varð viss um að þetta væri það sem hrjáði mig. Við fórum að gúgla ein­kennin og sáum að þetta pass­aði nákvæm­lega við mig. Þá fórum við til augn­lækn­is­ins og hann stað­festi að það væri einmitt þetta sem væri að hjá mér. Það kom reyndar í ljós að hann hafði alltaf vitað að þetta væri málið en aldrei sagt okkur frá því eða klárað grein­ingu. Þegar grein­ingin var fengin fórum við auð­vitað að leita meira á Netinu og komumst í sam­band við frá­bært fólk, eins og Christine Roman Lantzy sem er svona álíka nafn í CVI-heim­inum og Elvis Presley er í rokk­heim­inum.“

Færasti sérfræðingurinn fór að hágráta

Hvernig kom það til að þú komst í sam­band við hana? „Þetta byrj­aði með því að ég komst í sam­band við grúbbu á Facebook þar sem aðstand­endur barna sem eru greind með CVI spjalla saman,“ útskýrir Dagbjört. „Í þessum hópi var mér tekið alveg ofboðs­lega vel og fólk fór að spyrja mig alls konar spurn­inga sem ég reyndi að svara eftir bestu getu. Svo kom að því að ein móð­irin sendi mér skila­boð og og spurði hvort ég þekkti konu sem héti doktor Roman Lantzy. Ég þekkti hana auð­vitað ekki, hvernig hefði ég átt að kynn­ast banda­rískum pró­fessor? En hún sagði mér að þetta væri stærsta nafnið í þessum geira. Hún sendi mér net­fangið hennar en ég not­aði það auð­vitað ekk­ert og hafði ekki sam­band. Fimm mán­uðum seinna sendi þessi móðir mér aftur skila­boð og sagði mér að Roman Lantzy væri að koma í frí til Íslands. Mér fannst það eig­in­lega ekki geta verið til­viljun þannig að ég setti mig í sam­band við hana og við ákváðum að hitt­ast. Þar mætti hún með bók og blý­ant, spurði mig spjör­unum úr og skrif­aði og skrif­aði á meðan ég svar­aði. Það var eig­in­lega hún sem greindi mig form­lega og stað­setti mig á skala sem hún hefur búið til og stað­setur alvar­leika skerð­ing­ar­innar. Hún spurði mikið um líf mitt og ég svar­aði auð­vitað og svo byrj­aði hún bara allt í einu að gráta. Mér brá svo­lítið, hélt ég hefði gert eitt­hvað rangt en mað­ur­inn hennar sem var með henni sagði mér þá að hann hefði farið með henni að tala við sjúk­linga um allan heim en hann hefði aldrei fyrr séð hana gráta. Hún varð greini­lega bara svona snortin og bauð mér í fram­hald­inu að koma út til Banda­ríkj­anna. Ég fór þangað í fyrra­sumar og var með henni á ráð­stefnu um CVI í Nebraska. Þar sagði ég frá lífi mínu sem þótti mik­ill fengur því flestir sem eru með þessa sjón­skerð­ingu eru það mikið fatl­aðir að auki að þeir geta lítið tjáð sig. Ég hélt þarna þennan fyr­ir­lestur sem sagt og ég hef aldrei fengið eins margar spurn­ingar á ævinni.“

Fyrsta ráðstefna um CVI á íslandi

Nú hefur dæmið snú­ist við því Christine Roman Lantzy og mað­ur­inn hennar, Alan Lantzy barna­læknir sem hefur sér­hæft sig í sjúk­dómum nýbura, eru á leið­inni til Íslands og munu halda fyr­ir­lestra á ráð­stefnu um CVI á vegum Blindra­fé­lags­ins þann 10. októ­ber. Ráð­stefnan stendur frá kl. 14 til 18 og er öllum opin sem hafa áhuga á að kynna sér heila­tengda sjón­skerð­ingu. Dagbjört verður líka með erindi þar og ýmsir fleiri. Sér hún kannski fram á nýjan feril sem fyr­ir­les­ari á CVI-ráð­stefnum víða um heim? „Já, ég stefni á að gera eitt­hvað af því,“ segir Dagbjört hóg­vær. „Mig langar að kynna þessa skerð­ingu betur fyrir fólki. Það er til dæmis eng­inn skiln­ingur á þess­ari skerð­ingu í mennta­kerf­inu. Ég hef þurft að berj­ast mjög mikið fyrir mínu námi. Í reglum skól­anna er dæmið sett upp þannig að til þess að fá þjón­ustu sem sjón­skertur nem­andi verður við­kom­andi að vera algjör­lega blindur. Sjón­skerð­ing hefur ekk­ert vægi í því. Þessu þarf að breyta og von­andi tekst mér að opna augu ein­hverra fyrir því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina