Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Við höfum drukkið þessa tónlist í okkur frá blautu barnsbeini“

Dúnd­ur­fréttir munu flytja lögin af Abbey Road, plötu Bítlana, í heild sinni á tón­leikum í Eld­borg­ar­sal Hörpu föstu­dag 27. sept­em­ber, en þann 26. sept­em­ber eru 50 ár liðin frá því að þetta meist­ara­verk Bítlanna leit dags­ins ljós.

„Við höfum drukkið þessa tónlist í okkur frá blautu barnsbeini“
Dúnd­ur­fréttir ásamt Haraldi og ömmu í Hraunbæ

Dúnd­ur­frétta­menn eru allir sannir Bítla­að­dá­endur og sönn­uðu enn og aftur snilli sína þegar þeir tóku nokkur lög Bítlanna fyrir troð­fullu húsi í Eldborg árið 2017 á Classic Rock tón­leikum þeirra.

„Abbey Road var í raun síð­asta plata Bítlanna. Let It Be kom út seinna en upp­tökum á þeirri plötu var lokið áður en vinnan hófst við Abbey Road,“ segir Pétur Örn Guð­munds­son. Abbey Road fór rak­leiðis á topp­inn í flestum löndum heims og var til dæmis í 17 vikur í efsta sæt­inu í Bret­landi. Platan hefur nú selst í yfir 30 millj­ónum ein­taka og er enn að selj­ast gríð­ar­vel.

Það verður því eng­inn sannur Bítla­að­dá­andi svik­inn af að mæta í Eldborg föstu­dag­inn 27. sept­em­ber þar sem andi Bítlanna mun svífa yfir.

„Við höfum allir verið, eins og þorri jarð­ar­búa, miklir Bítla­að­dá­endur og höfum drukkið þessa tón­list í okkur frá blautu barns­beini,“ segir Pétur Örn. „Þegar tón­leika­hald­ar­inn okkar hann Guð­bjartur stakk upp á því að við spil­uðum þessa plötu á 50 ára afmæli hennar þá hugs­uðum við okkur um í 14,5 sek­úndur og sögðum svo allir í kór: „Auðvitað!“ Þessi plata er líka það allra síð­asta sem sveitin tók upp áður en hún lagði upp laupana.“

Fimmtíu ár eru frá því að Bítla­platan Abbey Road kom út og Dúnd­ur­fréttir munu flytja plöt­una í heild sinni.

„Alltaf best að lesa salinn hverju sinni“

Tón­leik­unum verður skipt í tvennt að sögn Péturs Arnars. „Fyrri hluti tón­leik­anna verða valin Bítlalög leikin sem við höfum sér­stakt dálæti á og eins og gefur að skilja er erfitt að velja lög úr þeim gríð­ar­stóra laga­bálki sem liggur eftir sveit­ina. Svo verða lögin af Abbey Road-plöt­unni spiluð í heild sinni eftir hlé í seinni hluta tón­leik­anna.“

„Á æfingum fyrir tón­leik­ana höfum við haft mikið dálæti á lagi George Harrison, Somet­hing.“

„Við höfum alltaf haft að leið­ar­ljósi að vera með létta stemn­ingu og alls ekki nið­ur­njörvað spjall á milli laga. Okkur finnst best að lesa sal­inn eins og það er kallað og spjalla við áhorf­endur eins og stemn­ing leyfir. En þetta verða mörg lög og því ekki til­gang­ur­inn að kjafta mikið á tón­leikum þar sem fólk er komið til að hlusta á Bítla­lögin fögur. En eflaust fær einn og einn fróð­leiksmoli að fljóta með. Platan verður þó flutt án þess að gjamma á milli laga.“

Haraldur Vignir Svein­björns­son og Helgi Reynir Jónsson verða Dúnd­ur­fréttum til aðstoðar við að gera hljóð­heim­inn sem mest sann­fær­andi og lög­unum sem best mögu­leg skil.

En hvaða Bítlalög skyldu vera í upp­á­halds hjá þeim sjálfum? „Það er erfitt að gera upp á milli lag­anna á þess­ari plötu, en á æfingum fyrir tón­leik­ana höfum við haft mikið dálæti á lagi George Harrison, Somet­hing og svo allri loka­syrp­unni hans Paul McCartney sem lýkur plöt­unni svo eft­ir­minni­lega. En eins og áður sagði er erfitt að finna eitt­hvert eitt lag frekar en annað því platan er svo fjöl­breytt.“

Miðasala á tón­leik­ana fer fram á Tix.is og Harpa.is 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina