Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Flöskuhálsinn í Fossvogi

Bráða­mót­taka Land­spít­al­ans er orðin eins og umferð­ar­mið­stöð og sífellt fleiri ílengj­ast lengur en heppi­legt getur talist. Starfs­fólkið er undir miklu álagi en hefur mestar áhyggjur af örygg­inu á vinnu­staðnum. „Maður er mjög oft hugsi. Gerðum við eins vel og við gátum?“

Flöskuhálsinn í Fossvogi
|„Atvikin geta verið mis­al­var­leg

„Þegar við erum að tala um hvað það er mikið álag og hvað það er mikið að gera hjá okkur þá veit ég ekki hvort fólk veit hvað við þurfum að eiga við. Bráða­móttakan er 36 rúma-deild og við getum komið fyrir 14 bekkjum á gang­inum hjá okkur. Við erum með 14 lazyboy-stóla, við erum með bið­stof­una frammi og venju­lega stóla og stundum er staðan þannig að öll þessi sæti eru upp­tekin. Og það geta verið snúnir dagar.“
Þetta segir Ágústa Hjördís Krist­ins­dóttir, hjúkr­un­ar­sér­fræð­ingur á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans í Fossvogi, en greint var frá því í vik­unni að föstu­dag­inn 13. sept­em­ber hefðu inn­lagðir sjúk­lingar á deild­inni verið 41. sEn þetta var langt í frá ein­stakur dagur, að sögn Hjör­dísar. Þetta var líka „mánu­dagur í mars … sunnu­dagur í júlí … það eru alltaf þessir svaka­legu álags­dagar og hversu marga svo­leiðis ætlum við að upp­lifa áður en við bregð­umst við?“ spyr hún.

„Okkur stendur ekki á sama; ekki um sjúk­ling­ana og ekki um kolleg­ana.“

Öðruvísi að liggja á bráða­deild
Álagið á Land­spital­anum hefur lengi verið í umræð­unni, ekki síst í tengslum við öryggi sjúk­linga og kjara­samn­inga hjúkr­un­ar­fræð­inga. Hvað bráða­mót­tök­una varðar er ljóst að fjölgun hjúkr­un­ar­fræð­inga þar, hvort sem er með fyr­ir­heitum um betri kjör eða annað, leysir ekki vand­ann. „Mönnunin á bráða­mót­tök­unni hefur, ótrú­legt en satt, hald­ist ótrú­lega vel. Þetta er öfl­ugur staður að vinna á,“ segir Hjördís. „Þú finnur svo vel áhrifin af hjúkrun þinni og störfum. Við eigum ekki í vand­ræðum með að manna okkar stöður en við höfum miklu meiri áhyggjur af því hvernig húsið er mannað af hjúkr­un­ar­fræð­ingum.“

Vanda­málið er, líkt og oft­sinnis hefur komið fram, að spít­al­inn er yfir­fullur þar sem illa gengur að útskrifa sjúk­linga, oft aldr­aða, í önnur úrræði. Þetta veldur því að flösku­háls mynd­ast í inn­lögnum inn á spít­al­ann af bráða­mót­tök­unni.

En hvernig blasir vand­inn við Hjördísi þegar hún mætir á vakt­ina?
Eitt af hlut­verkum hennar sem hjúkr­un­ar­fræð­ings á bráða­mót­tök­unni er vakt­stjórn. Þegar hún mætir, t.d. á morg­un­vakt, tekur hún við vakt­inni og fær upp­lýs­ingar um skjól­stæð­inga deild­ar­innar. Hjördís segir ekki óal­gengt að á morgn­ana séu um 50 sjúk­lingar á deild­inni, þar af helm­ingur sem bíður þess að leggj­ast inn. Þá séu jafnan ein­hverjar yfir­setur, þ.e. sjúk­lingar sem þarfn­ast auk­ins eft­ir­lits, og ein­hverjir sem þarf að hafa sér­staka gát á, þ.e. þarfn­ast tækni­lega flók­innar hjúkr­unar.

Aðrir eru ekki jafn­veikir en þarfn­ast engu að síður þjón­ustu, t.d. lyfja­gjafa á réttum tíma og að fá að borða og fara á sal­ernið. Hjördís bendir einnig á að það sé allt öðru­vísi að liggja inni á bráða­deild en öðrum deildum. „Ljósin á göng­unum eru til dæmis aldrei slökkt þótt þú liggir þar alla nótt­ina. Við getum það ekki, við erum að skoða sjúk­inga alla nótt­ina á gang­inum,“ segir hún. Þá sé hætt við að fólki finn­ist það vera fyrir. „Við erum kannski búin að færa sjúk­ling­inn fimm sinnum áður en hann fer upp á deild.“ Álagið á deild­inni bitni ekki síður á sjúk­ling­unum en starfs­fólk­inu.

Hjördís segir þennan mikla fjölda inn­lagðra sjúk­linga á bráða­mót­tök­unni hafa aukið álagið til muna. Þeir þarfn­ist þess að kom­ast áfram inn á spít­al­ann til að fá við­eig­andi þjón­ustu en eins og sakir standa sé ætl­ast til þess að starfs­fólk bráða­mót­tök­unnar veiti hana á sama tíma og það hleypur til við að taka á móti sjúkra­bíl­unum. Hún líkir bráða­mót­tök­unni við stoppi­stöð sem sé allt í einu orðin að risa­stórri sam­göngu­mið­stöð, þar sem hjúkr­un­ar­fræð­ing­arnir berj­ast við að afgreiða lestar áfram og hringja í leigu­bíla og svo fram­vegis.

Föst í umferð­inni
Hjördís seg­ist telja að þetta sé eitt­hvað sem fólk mis­skilur oft þegar talað er um í fjöl­miðlum að svo og svo margir liggi inni á bráða­mót­tök­unni. „Það eru ekki 40 manns á bráða­mót­tök­unni; það eru 100 manns á bráða­mót­tök­unni en 40 ættu a vera komnir í far­veg ann­ars staðar,“ segir hún. Því sé það nú stór partur af starf­inu að hafa yfir­sýn yfir ástandið á spít­al­anum almennt.

„Ég þarf að fara yfir það; ok, þetta er hjarta­deildin … hverjir passa inn þar? Þessi og þessi eru að fara þangað, þessir á skurð­deild­ina … þessir eiga að fara á lungna­deild­ina; ég er með tvo með lungna­sjúk­dóm, hvorn á ég að senda? Og svo erum við líka að horfa á hvar sjúk­ling­arnir búa; getum við sent þá á Selfoss, í Keflavík, á Akranes? Þannig að maður er mikið í umferð­ar­stjórn.“

„Maður er mjög oft hugsi. Gerðum við eins vel og við gátum? Þarf ástandið að vera svona?“

Að sögn Hjör­dísar er þrátt fyrir allt lúxus að vinna á bráða­mót­tök­unni. Störfin séu krefj­andi en jafn­ingja­stuðn­ing­ur­inn mik­ill. En hvernig er fólk statt and­lega og lík­am­lega eftir vakt­ina?
Hjördís þarf aðeins að hugsa sig um áður en hún svarar. „Maður er mjög oft hugsi. Gerðum við eins vel og við gátum? Þarf ástandið að vera svona? Manni finnst alltaf verið að krefj­ast þess að við setjum við­miðin okkar á nýja staði. Það var hræði­legt að vera með 5 inn­lagða sjúk­linga. Við vorum miður okkar þegar þeir voru orðnir 15. Allir voru brjál­aðir þegar þeir urðu 20 og ég veit ekki hvert fólk ætl­aði þegar þeir voru orðnir 30. Núna eru þeir 40.“

Hún segir álagið vissu­lega hafa áhrif. „Okkur stendur ekki á sama; ekki um sjúk­ling­ana og ekki um kolleg­ana,“ segir Hjördís. Hún segir hjúkr­un­ar­fræð­inga upp­lifa að það sé ekki hlustað á þá. „Það fer heill hell­ingur af fjár­munum í heil­brigð­is­kerfið en við þurfum að nýta þá betur,“ segir hún. Heil­brigð­is­starfs­menn séu að hætta en ekki vegna þess að það sé bók­staf­lega að bug­ast. „Fólk er að hætta því það vill ekki veita þá þjón­ustu sem núna stendur til boða.“

Fá ekki að blómstra í starfi

Greint var frá því í Morg­un­blað­inu í vik­unni að það sem af er þessu ári hefur 481 atvik átt sér stað á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans þar sem eitt­hvað hefur farið úrskeiðis við með­höndlun sjúk­linga. Hefur þeim farið fjölg­andi síð­ustu ár. Samkvæmt rann­sóknum má oftar rekja atvikin til aðstæðna frekar en mis­taka ein­stakra starfs­manna.
„Atvikin geta verið mis­al­var­leg,“ segir Hjördís. „Þau geta snú­ist um það að lyfja­gjöfin á sér ekki stað á réttum tíma eða að lyfja­gjöfin er röng,“ tekur hún sem dæmi. „En þetta eru atvik sem verða af því að við erum ekki að sinna þjón­ust­unni eins og lagt er upp með.“

„Atvikin geta verið mis­al­var­leg,“ segir Hjördís. „Þau geta snú­ist um það að lyfja­gjöfin á sér ekki stað á réttum tíma eða að lyfja­gjöfin er röng,“ tekur hún sem dæmi. „En þetta eru atvik sem verða af því að við erum ekki að sinna þjón­ust­unni eins og lagt er upp með.“

Hún segir örygg­is­málin vera eitt af því sem sé efst á for­gangs­lista hjúkr­un­ar­fræð­inga.
„Það er tvennt sem mér finnst ég heyra; það eru hærri laun og betra starfs­um­hverfi. Betra starfs­um­hverfi snýst um að hver hjúkr­un­ar­fræð­ingur sé með færri sjúk­linga svo við getum tryggt þeirra öryggi og okkar öryggi. Betra starfs­um­hverfi eru tækni­lausnir sem við getum nýtt okkur þannig að við séum ekki að vinna með gamla tækni og vera eftir á í þess­ari tækni­bylt­ingu.“

Þá segir Hjördís mik­il­vægt að hjúkr­un­ar­fræð­ingar fái rými til að vinna að umbótum og sinna öðrum verk­efnum á borð við kennslu. Í dag sé starfs­kröftum þeirra mest­megnis varið í enda­lausan „mokstur“, eng­inn tími gef­ist til að finna út úr því hvernig gera megi mokst­ur­inn auð­veld­ari.
Ástandið skili sér í mik­illi streitu

„Það er mikil hætta á kulnun meðal hjúkr­un­ar­fræð­inga, sér­stak­lega þegar það er svona mikið yfir­flæði og fólk fer af vakt­inni með þá til­finn­ingu að það hafi ekki náð að klára verk­efnin sín. Þú ert alltaf að moka skurð­inn en færð ekki að blómstra í starfi; nýta styrk­leika þína sem best.“

  • Á hefð­bund­inni morg­un­vakt eru um 13-14 hjúkr­un­ar­fræð­ingar á vakt á bráða­mót­tök­unni, 6 sjúkra­liðar og 4-6 starfs­menn Eflingar. Hjúkr­un­ar­fræð­ing­arnir vinna 8-12 tíma vaktir.
  • Um þessar mundir er með­al­inn­lagn­ar­tími á bráða­mót­tök­unni 22 tímar, þ.e. tím­inn sem inn­lagðir sjúk­lingar bíða á deild­inni eftir að kom­ast áfram inn á spít­al­ann. Hjördís segir gæða­við­miðið á heims­vísu 4-6 tíma.
  • Auk ann­arra veikra sjúk­linga er alltaf eitt­hvað um yfir­setur á hverri vakt en það eru sjúk­lingar sem ein­hverra hluta vegna þurfa aukið efir­lit, t.d. vegna and­legs ástands. Þá er einnig talað um gát­sjúk­linga en þeir þarfn­ast mik­illar þjón­ustu veik­inda sinna vegna, t.d. eft­ir­lit með lífs­mörkum, blóð- og lyfja­gjöf.
  • Bráða­móttakan tekur á móti 100 til 200 skjól­stæð­ingum á dag en um 86% þeirra útskrif­ast heim til sín sam­dæg­urs.
  • Klukkan 12 á fimmtu­dag­inn voru 49 sjúk­lingar á bráða­deild­inni í Fossvogi og 24 sjúk­lingar á bráða- og göngu­deild­inni í Fossvogi.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina