Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Það lýgur enginn á sig harmi“

Guðrún Ögmunds­dóttir hefur alla sína ævi barist fyrir rétt­indum minni­hluta­hópa og þeirra sem minna mega sín. Í sumar hlaut hún fálka­orð­una og á sunnu­dag­inn verður hún sæmd heið­urs­merki Sam­tak­anna ’78 fyrir bar­áttu sína. Þótt hún glími nú við útbreitt krabba­mein seg­ist hún full þakk­lætis og stolt af því sem áunn­ist hefur.

„Það lýgur enginn á sig harmi“
|Guðrún Ögmunds­dóttir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son|Guðrún Ögmunds­dóttir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son|Guðrún Ögmunds­dóttir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son||

Guðrún er á for­síðu nýjasta Mannlífs.

Afreka­skrá Guðrúnar er löng, miklu lengri en hér kemur fram, hvað er það sem hún er stolt­ust af að hafa gert í líf­inu?

„Ég er nátt­úr­lega alveg ótrú­lega stolt af vinn­unni í mál­efnum sam­kyn­hneigðra, mál­efnum kvenna og mál­efnum þeirra sem minna mega sín, eins og í til­fell­inu með sann­girn­is­bæt­urnar,“ segir hún. „Þannig að ég get verið mjög stolt og ég held ég megi alveg vera það. Þetta þrennt stendur upp úr ásamt mál­efnum barna, ég hef alltaf verið með börn á heil­anum. Ég var for­maður Unicef og aðbún­aður barna og aðstæður hefur alltaf verið eitt af því sem mér finnst mestu máli skipta að berj­ast fyrir að séu góðar. Ég sá það mjög vel í vinn­unni við sann­girn­is­bæt­urnar hvað það skiptir ótrú­lega miklu máli fyrir fram­tíð­ina að búa vel að börnum.“

Margir hafa áhyggjur af því að nú séu blikur á lofti í póli­tík­inni, við séum að fara aft­urá­bak en ekki áfram, en Guðrún hefur ekki miklar áhyggjur af því.

„Það ger­ist alltaf,“ segir hún ákveðin. „Það er við­tekið að fólk fer þrjú skref áfram og eitt aft­urá­bak. Aðal­at­riðið er að vera alltaf á vakt­inni og það þarf að vera á vakt­inni á mörgum plönum. Gras­rótin er mis­virk en um leið og eitt­hvað fer að bjáta á verður hún virk, það er lög­mál. Ég hef ekki miklar áhyggjur af fram­tíð­inni þegar ég horfi á allt þetta unga fólk í kringum okkur. Ég hef aldrei séð svona stóran hóp af ungu, flottu fólki, í hvaða geira sem er. Sjáðu til dæmis lista­geir­ann, sjáðu lofts­lags­mót­mælin. Ég verð alveg ótrú­lega bjart­sýn á fram­tíð­ina þegar ég sé þetta fólk, ég bara játa það, og við eigum ekki að tala það niður. Við eigum einmitt að hafa trú á þessu unga fólki og vera stolt af því.“

„Ég hef ekki miklar áhyggjur af fram­tíð­inni þegar ég horfi á allt þetta unga fólk í kringum okkur.“

Annað sem vekur Guðrúnu bjart­sýni um fram­tíð­ina er #metoo-bylt­ingin, sem hún seg­ist hafa tekið þátt í alveg á fullu.

„Það var eitt­hvert flottasta sjálf­sprottna fyr­ir­bæri síð­ustu ára­tuga,“ segir hún ákveðin, „en það var auð­vitað búið að und­ir­búa jarð­veg­inn. Það var búið að taka mörg sam­töl, búið að ræða þetta fram og til baka. Ég vil til dæmis meina að sann­girn­is­bóta­verk­efnið sé mik­ill und­an­fari þessa alls út af umræð­unni um kyn­ferð­is­of­beldi sem fylgdi því verk­efni. Þegar ég byrj­aði á því verk­efni fyrir tíu árum lagði ég áherslu á að það mik­il­væg­asta af öllu í svona vinnu væri að trúa því sem fólk segði. Og ég lagði það bara á borðið að ég tryði fólk­inu. Allt svona smitar út frá sér og allt í einu var kom­inn far­vegur fyrir #metoo. Það er nefni­lega þannig að það lýgur eng­inn á sig neinum harmi, nóg er nú samt. Það er mjög mik­il­vægt að hafa það að leið­ar­ljósi. Það hefur eng­inn hug­mynda­flug í það að ljúga svona hlutum upp á sig.“

Spurð hvort hún hafi engar áhyggjur af því bakslagi sem „metoo“ hefur fengið, segir Guðrún að það sé ekki áhyggju­efni.

„Ég held að það ger­ist alltaf ósjálfrátt þegar svona rosa­lega mikil opnun hefur verið,“ segir hún. „Ég held að það sé ekk­ert sem við eigum að hafa áhyggjur af. Ég hef aldrei verið mjög svart­sýn, hvorki fyrir hönd kvenna­bar­átt­unnar né ann­arrar bar­áttu. Þetta kemur allt saman, allt hefur bara sinn tíma eins og segir ein­hvers staðar á vísum stað.“

Lestu við­talið við Guðrúnu í heild sinni í Mannlífi sem kom út í dag.

Myndir / Hákon Davíð Björns­son
Förðun / Emil­í­anna Valdi­mars­dóttir, förð­un­ar­fræð­ingur hjá Urban Decay

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina