Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Gaman að hitta íslenska aðdáendur

Midgard-ráð­stefnan hefst í dag í Fífunni í Kópavogi og stendur yfir alla helg­ina. Heið­urs­gestur hátíð­ar­innar að þessu sinni er eng­inn annar en nýsjá­lenski leik­ar­inn og Íslands­vin­ur­innn Manu Bennet sem hefur meðal ann­ars farið með hlut­verk í sjón­varps­þátt­unum Spartacus og Arrow og þrí­leik Peter´s Jackson um Hobbit­ann.

Gaman að hitta íslenska aðdáendur
|Manu Bennet er heið­urs­gestur Midgard í ár

„Þetta er kannski pínku yfir­drifið, eins og per­sóna mín úr þátt­unum Arrow segði, en ég hef gaman af þessu,“ segir Manu, spurður að því hvernig sé að vera heið­urs­gestur hátíð­ar­innar.

Fyr­ir­myndin að Midgard er banda­ríska Comic Con-ráð­stefnan sem gestir víðs vegar að úr heim­inum sækja árlega til að hlusta á pall­borðsum­ræður með leik­stjórum, mynda­sagna­höf­undum, leik­urum og fleirum og hitta á átrún­að­ar­goðin sín og fólk með nör­da­leg áhuga­mál, stundum upp­á­klæddir í alls kyns skraut­lega bún­inga sem end­ur­spegla áhuga­málin. Þetta er í annað sinn sem Midgard fer fram á Íslandi og í fyrsta sinn sem heið­urs­gest­ur­inn Manu mætir á svæðið.

„Þetta er kannski pínku yfir­drifið, eins og per­sóna mín úr þátt­unum Arrow segði, en ég hef gaman af þessu.“

„Já, þetta er í fyrsta skipti sem ég kem,“ segir hann auð­heyri­lega spenntur en flýtir sér að bæta við að þetta sé þó langt frá því að vera fyrsta hátíðin af þessu tagi sem honum er boðið á. „Mér er reglu­lega boðið á svona hátíðir um allan heim og ég hef mætt á þónokkrar enda ríma þætt­irnir og mynd­irnar sem ég hef leikið í vel við popp­kúlt­úr­inn sem þær hverf­ast um.“

Manu Bennet er heið­urs­gestur Midgard í ár, en Manu er best þekktur fyrir hlut­verk sín sem skylm­inga­þræll­inn Crixus í þátt­unum Spartacus, sem ill­mennið Slade Wilson/Death­stroke í Arrow, prest­ur­inn Allanon í The Shannara Chronicles og Azog, for­ingi Orka, í þrí­leiknum um Hobbit­ann.

Og hvað er það sem fær þig til að ferð­ast, jafn­vel á milli heilu heims­álf­ana, á svona hátíðir? „Ja, mér finnst til dæmis skemmti­legt að kynna mér inn­lenda lista­menn og skoða hvers konar myndir og þætti er verið að fram­leiða á staðnum. Það er nefni­lega margt líkt með þessum hátíðum þótt löndin séu ólík. Fókusinn er oft á banda­ríska fram­leiðslu vegna áhrifa frá Hollywood og Netflix. Þess vegna finnst mér gaman að skoða fram­leiðsl­una sem er í gangi á staðnum. Ég er nefni­lega þeirrar skoð­unar að meiri fjöl­breytni þurfi í hand­rits­gerð, svo sög­urnar verði ekki allar eins; allar undir ein­hverjum amer­ískum áhrifum.“

Hann bætir við að einna skemmti­leg­ast sé síðan auð­vitað að fá tæki­færi til að hitta aðdá­endur sína. „Sumt fólk mætir til að hitta átrún­að­ar­goðin sín og kynn­ast þeim aðeins. Aðrir eru kannski að vinna í ein­hverri list og vilja leita ráða, nú eða ein­fald­lega fá faðm­lag eða sjálfu með manni sem þeir geta birt á sam­fé­lags­miðlum. Þannig að maður þarf að búa sig undir að vera heið­ar­legur og mjög opinn,“ segir hann kím­inn.

Fær innblástur á Íslandi

Þótt þetta sé í fyrsta sinn sem Manu mætir á Midgard hefur hann komið til lands­ins áður, margoft reyndar, og eign­ast hér góða vini. Einn af þeim er hand­rits­höf­und­ur­inn Silla Berg en frá árinu 2017 hafa þau Manu verið að vinna saman að gerð mynd­ar­innar Over the Volcano, sem byggir að ein­hverju leyti á sjó­slysi frá árinu 1982 en þá fórst belgíski tog­ar­inn Pelagus austan við Vest­manna­eyjar. Myndin er ekki eina verk­efni Manu sem er með Íslands­teng­ingu því hann er einnig að skrifa hand­rit um raðmorð­ingj­ann ill­ræmda Axlar-Björn. Spurður út þennan mikla áhuga á Íslandi, seg­ist hann ein­fald­lega vera heill­aður af landi og þjóð. Ísland kveiki í sögu­mann­inum í sér og hann ætli einmitt að verja hluta heim­sókn­ar­innar núna í skrif.

En ætlar hann ekk­ert að gera annað en að taka þátt í Midgard og vinna meðan á heim­sókn­inni stendur? „Jú, jú, ég ætla meðal ann­ars að hitta einn af bestu vinum mínum, Víking Heiðar Arn­órs­son, við æfum í sömu rækt­inni hérna og svo ætla ég að skella mér út að borða á Sushi Social,“ segir hann og eft­ir­vænt­ingin leynir sér ekki.

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina