Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Ég sýndi engin merki um að ég yrði þessi gaur“

Hlynur Kristinn Rún­ars­son ját­aði sig sigr­aðan eftir ára­langa neyslu og sölu stera, fíkni­efna og fang­els­is­dóm, fór í með­ferð og nýtir edrú­mennsk­una og annað tæki­færi sitt í líf­inu vel. Hann er nýlega orð­inn þrí­tugur og hefur stofnað góð­gerða­sam­tökin Það er von, þar sem hann ætlar að vinna að for­vörnum og sýna öðrum að það er alltaf von.

„Ég sýndi engin merki um að ég yrði þessi gaur“

Hlynur var alla tíð góður náms­maður og mikið í íþróttum, hann kláraði stúd­ents­prófið á tveimur árum og ætl­aði að læra fjár­mála­verk­fræði. Hann er jafn­framt lærður einka­þjálf­ari en hann byrj­aði að æfa og keppa í fit­ness að und­ir­lagi föður síns. „Ég ætl­aði að sýna gamla að ég gæti unnið hann í fit­nesskeppni sem ég svo gerði en það var ekki nóg af því ég var ekki nógu sáttur við sætið sem ég lenti í. Gríð­ar­legt keppn­is­skap mitt tók við og ég fór að taka stera til að bæta árang­ur­inn. Siðferði mitt breytt­ist mikið við notkun þeirra en mér finnst ekki næg umræða um hvaða áhrif sterar hafa. Neyslu þeirra fylgir mikið þung­lyndi og mikið gervi­sjálfs­traust. Sterar hafa áhrif á horm­óna­starf­semi og þeir geta valdið ófrjó­semi. Þeir hafa mjög nei­kvæð áhrif sem ég átt­aði mig ekki á og vissi ekki af á þessum tíma,“ segir Hlynur.

„Fyrir þennan tíma sýndi ég engin merki um að ég yrði þessi gaur og þeir sem muna eftir mér fyrir 18 ára aldur segja að þeir hefðu aldrei trúað að ég færi þessa leið.“

Til að afla sér tekna hóf Hlynur að selja stera og seinna fíkni­efni. „Ég var í alls­konar „biss­ness“. Ég var þessi yfir­borðs­kennda glans­mynd með allan pakk­ann: flottan bíl, dýra fylgi­hluti og fal­lega kær­ustu. Áður en ég vissi af var ég kom­inn í alls konar við­skipti sem voru bara ömur­leg. Þessu fylgdi stöðug para­noja, miklir pen­ingar, gríð­ar­lega mikið rugl og stans­laus ótti um hverjum væri treystandi; ver­andi umkringdur fólki í neyslu og lög­reglu. Þetta var gríð­ar­lega lýj­andi.“

„…finn­ast ég ekki vera nóg, ég hef alltaf glímt við þá til­finn­ingu.“

Eftir sex ár byrj­aði Hlynur sjálfur að nota efnin sem hann hafði hingað til bara selt öðrum. „Mér fannst þetta ekk­ert mál, ég var búinn að umgang­ast þau svo lengi. Ég tók mjög með­vit­aða ákvörðun, las mér til um efnin og vissi allt um þau, samt fór ég að nota þau, það var ákveðin sjálfseyð­ing­ar­hvöt sem fylgdi stera­notk­un­inni og að finn­ast ég ekki vera nóg, ég hef alltaf glímt við þá til­finn­ingu,“ segir Hlynur og seg­ist hafa verið karl­inn sem leit út fyrir að vera fullur sjálfs­trausts, en ekk­ert hafi verið á bak við þá grímu.

Stofnaði góðgerðasamtök eftir meðferð

Hlynur hefur nú verið edrú í rúma þrjá mán­uði, vinnur í sjálfum sér á hverjum degi og er nýlega búinn að stofna góð­gerða­sam­tökin Það er von. „Ég stofn­aði sam­tökin af því ég vil gefa fólki von og sýna því að það getur breytt lífi sínu til batn­aðar. Ég legg jafn­mikið í það í dag að vera edrú eins og ég lagði í það áður að vera í neyslu. Ég hugsa um leiðir til að bæta and­lega líðan mína, ég hlusta á Tony Robbins alla daga til að þjálfa hug­ann í jákvæðri hugsun, ég æfi mig í æðru­leysi, en ég þarf að taka ákvörðun dag­lega um að gera það.“

Hlynur segir meg­in­mark­mið Það er von vera að útrýma for­dómum í sam­fé­lag­inu svo fólk með fíkni­sjúk­dóm þori að leita sér hjálpar. „Og skilji að það er ekki eitt, við erum rosa­lega mörg,“ segir hann. „Fíkninni fylgir skömm, bæði frá sam­fé­lag­inu og okkur sjálfum vegna þess sem við höfum gert. Ég er gott dæmi þess að með breyttu við­horfi er hægt að breyt­ast. Ég á ekki að vera síðri ein­stak­lingur af því að ég tók ranga ákvörðun 19 ára gam­all, sem þró­að­ist út í fíkn og fíkni­sjúk­dóm. Höfnun og ótti okkar við skömm­ina í augun ann­arra hamlar okkur í að leita okkur hjálpar og jafn­vel í að fram­kvæma eitt­hvað þegar við erum orðin edrú.

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Áður fannst mér betra að vera deyfður en sýna veik­leika, mér finnst hins vegar í dag að það felist styrkur í því að geta sýnt veik­leika sína,“ bendir hann á.

„Það er sorg­legt að vita til þess að ef ég hefði unnið meira í sjálfum mér og hefði lært að elska sjálfan mig á réttum for­sendum, æft til að vera í mínu besta formi í stað þess að sækj­ast eftir við­ur­kenn­ingu ann­arra og ein­hverju sæti og hvernig aðrir vildu að ég væri, þá hefði ég ekki skað­ast svona af fit­ness. Því fylgdi vöðva­fíkn, útlits­dýrkun og yfir­borðs­mennska, það var ekk­ert and­legt við þetta. Hjá mér var þetta þannig, ég ætla ekki að segja að það eigi við um alla. Ég keppi í normal­isma í dag, ég reyni það, þó að ég hafi keypt mér 180 þús­und króna úlpu fyrir þessa mynda­töku þá er ég mjög eðli­legur,“ segir Hlynur og hlær.

„Ég var alltaf að reyna að fylla upp í svart­holið hjá sjálfum mér og hélt að mér liði betur með flottan bíl, pen­inga af söl­unni, að vinna mót, líta svona út og svo fram­vegis. Ég hélt alltaf að ver­ald­legir hlutir myndu færa mér ham­ingju, svo skildi ég að hún kemur innan frá. Ég þurfti að fara til Brasilíu til að upp­götva það.“

Lestu við­talið við Hlyn í heild sinni í nýjasta Mannlífi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina