Skjáskot er upplýsandi ferðalag um mannshugann og áskoranir dagsins í dag. Bergur hikar ekki við að spyrja stórra spurninga og leita svara á frumlegan og skemmtilegan hátt.
Fyrri bók Bergs, Stofuhiti, vakti mikla athygli þegar hún kom út árið 2017, og fékk góðar viðtökur bæði lesenda og gagnrýnenda. Búast má við að Skjáskot geri slíkt hið sama.
Útgáfuhóf bókarinnar verður í dag í Tjarnarbíói kl. 17-19 og þar mun höfundur flytja stutt erindi um efni og tilurð bókarinnar auk þess sem gestum gefst kostur á að kaupa bókina á sérstöku kynningarverði og fá hana áritaða af höfundi. Sjá viðburð hér.































Athugasemdir