Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ferðalagið breytti viðhorfinu til lífsins

Eftir að hafa lokið námi í ljós­myndun við Tækni­skóla Íslands vorið 2018 lagð­ist ljós­mynd­ar­inn Unnur Magna í flakk og ferð­að­ist ein um Kambódíu og Myanmar í sex vikur með mynda­vél­arnar dinglandi á mjöð­minni.

Ferðalagið breytti viðhorfinu til lífsins
Unnur Magna ásamt konu úr Kayan ætt­bálk­inum. |Mynd/Unnur Magna||Mynd/Unnur Magna|Mynd/Unnur Magna|Mynd / Unnur Magna||Mynd / Unnur Magna|Mynd / Unnur Magna

„Ég hafði lengi haft auga­stað á Kambódíu, en saga lands­ins, þján­ing­arnar sem fólkið þar þurfti að ganga í gegnum þegar Rauðu kmer­arnir, Khmer Rouge, réð ríkjum og upp­risan eftir þær hörm­ungar fannst mér áhuga­verð,“ útskýrir Unnur spurð að því hvers vegna þessi lönd hafi orðið fyrir val­inu sem áfanga­staðir. „Þannig að ég keypti mér miða, sótti um visa og fyrst ég var á annað borð á leið til Kambódíu fannst mér líka þess virði að bæta aðeins við ferð­ina og fara til Myanmar og skoða menn­ing­una þar ásamt frum­byggja­svæðum sem voru ein­ungis opnuð almenn­ingi árið 2014.“

„Maður verður tals­vert nægju­sam­ari en áður, enda þarf maður að læra það að ferð­ast ein­ungis með nauð­synjar og stilla öllu í hóf á svona bak­poka­ferða­lagi.“

Var það ekk­ert erfið ákvörðun að fara ein í svona langt ferða­lag á fram­andi slóðir?

„Nei,“ svarar Unnur snöggt. „Það kom ekki annað til greina en að fara ein í ferða­lagið ein­ungis með nauð­synjar og mynda­vél­arnar, enda var til­gang­ur­inn að safna myndefni sam­hliða því að upp­lifa eitt­hvað nýtt og hrein­lega finna sjálfa mig pínu­lítið. Til að allt gengi upp hafði ég sam­band á Instagram við breskan ljós­mynd­ara sem er búsettur í Kambódíu og ferð­að­ist ég að hluta til með honum, sem var mik­il­vægt því að það er nauð­syn­legt að fá inn­sýn í lifn­að­ar­hætti heima­manna frá ein­hverjum sem þekkir vel til. Til að ég fengi dýpri og betri skiln­ing á Kambódíu byrj­aði ég á því að fljúga til Phnom Penh og heim­sækja Tuol Sleng Genocide Museum og Killing Fields, þar sem maður er leiddur í gegnum hörm­ung­arnar sem áttu sér stað á tímum Rauðu kmer­anna rétt um 1980.

Eftir þá heim­sókn varð ég klökk og alveg ofboðs­lega þakk­lát fyrir að hafa fæðst á Íslandi. Það var erfitt en gott að byrja þar og vita betur hvað hafði gerst í land­inu því ég sat með heima­mönnum og -konum eftir það, sem ræddu þetta mikið og höfðu ýmist misst aleig­una, for­eldra sína, systk­ini eða börn í þessum hörm­ungum, sem marka dálítið and­rúms­loftið í land­inu. Enn í dag þegar rignir mikið skol­ast upp úr jarð­veg­inum lík­ams­leifar og klæði þannig að það eitt að horfa niður fyrir sig er átak­an­legt. Svo er þar minn­is­varði með þús­undum haus­kúpa sem hafa mis­mun­andi áverka sem var hræði­legt að stúd­era.“

Mynd/Unnur Magna

Ástfangin af innfæddum

Eftir þessa lífs­reynslu hélt Unnur ferð­inni áfram og sótt­ist eftir að kom­ast í kynni við almenn­ing í land­inu og forð­ast vin­sæla ferða­manna­staði. „Ég ferð­að­ist síðan í þrjár vikur um Kambódíu, frá Phnom Pehn gegnum Kampong Chhanang, Udong, Kampong Thom, Preah Vihear, Battam­bang og upp til Siem Riep þar sem ég skoð­aði Angkor Wat sem er þekktasta og stærsta trú­ar­hof Angor-forn­minja­garðs­ins sem er mik­il­væg­asta forn­minja­svæði í Suð­austur-Asíu,“ útskýrir hún.

„Vissu­lega var áhuga­vert að skoða það en það heillar mig lítið að vera á sama stað og allir aðrir ferða­menn og það sem stóð upp úr voru til dæmis heim­sóknir í földu Búdda­hofin fjarri almenn­ingi í Udong og Kompong Thom þar sem ég heim­sótti munka og nunnur og snæddi með þeim hádeg­is­verð. Svo auð­vitað öll litlu stoppin á leið­inni hvort sem það var að heim­sækja inn­fædda í hrör­leg híbýli á yfir­gefnum lestar­teinum eða inn í sveitum þar sem nægju­semin réð ríkjum, skoða mark­aði og sitja með fólk­inu, fara með ung­lingum að veiða froska, kíkja á kam­bódíska fim­leika­sýn­ingu eða ein­fald­lega bara njóta þess að hlæja með inn­fæddum og fylgj­ast með lífi þeirra. Hver ein­asta mann­eskja sem ég hitti var ofboðs­lega hjálp­söm og maður varð mjög fljótt ást­fang­inn af þessu vinnu­sama fólki sem flestallt var bros­andi og geisl­aði af ein­hverju góðu.

Þrátt fyrir fátækt og erf­ið­leika er fjöl­skyldu­sam­heldnin samt ofboðs­lega fal­leg og þau leggja mikið upp úr góðum tengslum við allt fólkið sitt og hjálp­ast öll að við að gera lífið bæri­legra. Ef ég ætti síðan að nefna eitt­hvað sem kom mér á óvart í Kambódíu þá var það sýn fólks og trú á æðri anda. Síðan var það umferðin, ég hef aldrei séð annað eins kaos á ævinni. Allt upp í fimm manna fjöl­skyldur á einni skell­inöðru, eða hjón með hálfa búslóð, rúm, skrif­borð eða ísskáp á herð­unum. Þar sem eiga kannski að vera þrjár akreinar eru sex og að kom­ast fót­gang­andi yfir götu þarfn­ast sko hug­rekkis því það er hæpið að ein­hver stoppi. Þannig að maður þarf í raun bara að mjaka sér á milli far­ar­tækja, halda niðri í sér and­anum og vona það besta. Þetta var orðið ákveðið list­form eftir nokk­urra daga við­veru, dálítið eins og línu­dans.“

Mynd/Unnur Magna

Eins og að ferðast aftur í tímann

Svo var komið að því að kveðja Kambódíu og halda á nýjar slóðir. „Eftir dásam­legan tíma í Kambódíu flaug ég yfir til Yangon, höf­uð­borgar Myanmar,“ heldur Unnur ferða­sög­unni áfram. „Sú borg kom mér mjög á óvart, þar var allt önnur menn­ing en í Kambódíu, allt mjög vest­rænt og vel hægt að greina að borgin hafi seint á 19. öld verið bresk nýlenda. Satt best að segja sakn­aði ég menn­ing­ar­er­ils­ins sem ég upp­lifði í Kambódíu um stund þannig ég dreif mig burt eftir að hafa skoðað það helsta í borg­inni, gylltar pagóður og mark­aði með ind­versku ívafi. Ég flaug þá til Kyaing Tong, og hélt leið minni áfram um mjög afskekkt svæði innan Gullna þrí­hyrn­ings­ins þar sem landa­mæri, Taílands, Laos og Myanmar (áður Búrma) mæt­ast. Það er nauð­syn­legt að fá til­skilin leyfi frá yfir­völdum til að fara inn á svæðið, maður þarf að vera far­inn burt af svæð­inu fyrir myrkur á ákveðnum tíma og það er lífs­nauð­syn­legt að hafa með sér túlk og leið­sögu­mann.

Á þessu svæði heim­sótti ég ætt­bálk­ana Wa, Shan, Akha og Lahu. Í raun kemst maður ekk­ert á milli þess­ara ætt­bálka nema fara fót­gang­andi í gegnum skóg­lendi og í hit­anum er það út af fyrir sig ákveðin þrekraun en svo vel þess virði því þetta var, held ég bara, eitt það merki­leg­asta sem ég hef upp­lifað. Það er stór­und­ar­legt að heim­sækja svona ætt­bálka, í raun eins og að ferð­ast mörg þús­und ár aftur í tím­ann. Sumir ætt­bálk­arnir stóla ekki á neitt tíma­tal, ein­ungis þurrka­tíð eða rign­ing­ar­tíma­bil.

Fólkið þarna veit í raun ekk­ert hvað ger­ist fyrir utan þorpið þess, það er engin nútíma­tækni sjá­an­leg og í raun ekk­ert af viti inni í hús­unum nema risa­eld­stó í miðjum kof­unum og bambus­fleti í horn­unum þar sem fólkið sefur. Þau ala villisvín og villi­hunda sem þau ýmist nota sem gjald­miðil eða æti. Þetta var nokk­urra daga upp­lifun og mig lang­aði alls ekk­ert að halda för minni áfram því þetta var svo stór­merki­leg menn­ing þarna í földum fjalla­þorpum og gaman að fylgj­ast með fábrotnu líf­inu og hlusta á sögur, hlusta á þau spila á hljóð­færi og sjá þau dansa.“

Mynd/Unnur Magna

Var kölluð draugur

Það var auð­vitað ekki í boði að setj­ast um kyrrt á þessum tíma ferða­lags­ins og Unnur hélt ferð sinni áfram. „Ég flaug frá Kyaing Tong til Heho og sigldi á Inle Lake og skoð­aði ótrú­legt líf fiski­mann­anna á leið minni til LoiKaw þar sem ég dvaldi með Kayan-ætt­bálknum, eða hring­hálsum,“ heldur hún áfram.

„Það var líka upp­lifun að hitta þau, kon­urnar algjörar drottn­ingar heim að sækja þótt þær í raun eigi ekk­ert, en inni­leg nær­vera þeirra og húmor er ótrú­legur. Það að dvelja í fábrotnum híbýlum þeirra, fylgj­ast með þeim ber­fættum í fjalls­hlíð­unum að sækja eldi­við og snæða með þeim hádeg­is­verð var eft­ir­minni­legt. Eftir ótrú­lega gest­risni lang­hálsanna hélt ég ferð minni áfram til Bagan, þar sem ég fylgd­ist með vinn­andi fólki brenna rusl við sól­ar­upp­rás, skoð­aði trú­ar­hof og pagóður en einnig ögraði ég loft­hræðslu minni og fór í loft­belg og sá sól­ar­upp­rás­ina frá öðru­vísi sjón­ar­horni, sem var mjög skemmti­leg upp­lifun.

„Það kom ekki annað til greina en að fara ein í ferða­lagið…“

Ferða­lagið end­aði svo í borg­inni Mandalay, sem mér fannst ótrú­lega gaman að heim­sækja þó að hún væri mjög fábrotin og þar væri senni­lega skað­leg mengun í loft­inu. Þar sá ég einnig hrylli­lega fátækt, margt fólk býr bara á strönd­inni í ein­hverju sem verður seint kallað tjald og börnin eru hálf­sjálfala á göt­unum, bleyju­laus að betla mat. Þegar ég síðan gekk eftir strönd­inni í Mandalay hóp­uð­ust stálp­uðu börnin að mér og köll­uðu alltaf „t hcay s“ sem ég lærði seinna að þýðir draugur á búrmísku, enda er ekki mikið um vest­ræna ferða­menn þar í sam­an­burði við t.d. Bagan og fólkið ekki vant því að snjó­hvít mann­eskja með tvær stórar mynda­vélar á mjöð­minni stingi nef­inu inn í hrör­leg híbýli þess og sýni því og fábrotnu, erf­iðu lífi þess áhuga.“

Það er ljóst af þess­ari ferða­sögu að ferða­lagið hefur haft djúp áhrif á Unni, en hvað fannst henni sitja sterkast eftir í hug­anum þegar heim  var komið?

„Eftir tæpar sex vikur á ferða­lagi verður að segj­ast að ég fann við­horf mín til lífs­ins breyt­ast örlítið eftir dvöl­ina,“ segir hún.

Mynd / Unnur Magna

„Maður verður tals­vert nægju­sam­ari en áður, enda þarf maður að læra það að ferð­ast ein­ungis með nauð­synjar og stilla öllu í hóf á svona bak­poka­ferða­lagi. Í raun var líka dálítið erfitt að koma aftur í þessa hröðu vest­rænu menn­ingu okkar þar sem mikið stress og mikil neyslu­hyggja ræður ríkjum.

En ég er líka full af þakk­læti fyrir það að búa á Íslandi í hreinu lofts­lagi, þakk­lát fyrir að eiga öruggt skjól yfir höf­uðið, geta farið í sturtu án þess að taka tím­ann og súpa hveljur af kulda ásamt því að eiga greiðan aðgang að ótak­mörk­uðu hreinu, drykkj­ar­hæfu vatni. Nú þarf ég bara að fara að huga að því, þegar tími gefst til, að gera þús­undum ljós­mynda góð skil, velja vel og jafn­vel halda sýn­ingu. Hugurinn er samt sem áður far­inn að leita í annað ljós­mynda­ferða­lag á fjar­lægar slóðir, sem ég vona að verði að veru­leika fyrr en seinna.“

Mynd / Unnur Magna
Mynd / Unnur Magna
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina