Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Karlrembulegt viðhorf kveikti neistann

Katrín Björg­vins­dóttir er ungur leik­stjóri á upp­leið. Hún útskrif­að­ist úr danska kvik­mynda­skól­anum Den Danske Film­skole í vor og hefur fengið frá­bæra dóma í þar­lendum fjöl­miðlum fyrir loka­verk­efni sitt Dronning Ingrid eða Ingrid drottn­ing. Katrín segir við­brögðin hafa komið skemmti­lega á óvart því hún hafi, satt best að segja, ekki átt von á að saga ungrar konu í til­vist­ar­kreppu myndi höfða til jafn­breiðs hóps áhorf­enda og raun ber vitni.

Karlrembulegt viðhorf kveikti neistann
Katrín Björg­vins­dóttir leik­stjóri. Mynd / Steph­anie Staal|Katrín Björg­vins­dóttir leik­stjóri. Mynd / Steph­anie Staal.||Mynd Katrínar

„Það er frá­bært að fá þessi jákvæðu við­brögð. Ég var sjálf mjög ánægð með útkom­una en reikn­aði ekk­ert endi­lega með því að þetta kæmi til með að falla í kramið hjá öllum. Þetta er nefni­lega ein­föld saga um hvers­dags­legar og frekar prí­vat til­finn­ingar og ég var búin að ímynda mér að við­fangs­efnið myndi tala mjög skýrt til ein­hverra áhorf­enda en að aðrir kynnu að afskrifa það sem eitt­hvað sem skipti engu máli.“

Loka­verk­efnið, Dronning Ingrid, fjallar að sögn Katrínar um Ingrid, „stelpu­konu á fer­tugs­aldri“ eins og hún orðar það, sem er ekki alveg á þeim stað í líf­inu sem hún hefði viljað vera. „Hún hefur verið ein­hleyp síðan hún var 17 ára, vinnur í und­ir­fata­verslun og þegar hér er komið við sögu eru for­eldrar hennar að skilja. Hún byrjar að átta sig á að hún er kannski ekk­ert sér­stök eða öðru­vísi en allir hinir og langar í raun­inni bara til þess að eign­ast kærasta og byrja full­orð­ins­lífið. Það reyn­ist svo hæg­ara sagt en gert fyrir stolta og sjálf­stæða „stelpu-konu“ sem neitar að gera mála­miðl­anir eða virka örvænt­inga­full og auk þess undir sífellt meiri pressu frá líf­fræði­lega tikk­inu í leg­inu, að finna ást­ina.“

Mynd Katrínar, Dronning Ingrid, hefur fengið frá­bæra dóma í dönskum fjöl­miðlum, en hún verður sýnd í Bíó Paradís í dag klukkan 16. Myndin er með enskum texta.

„Svo biluð afstaða“
Spurð hvernig hug­myndin að sög­unni hafi kviknað seg­ist Katrín ein­fald­lega hafa viljað gera sögu sem fjall­aði á heið­ar­legan og afhjúp­andi hátt um ást­ina, öll von­brigðin og óör­uggið, allan anti-klímax­inn eig­in­lega. Sér­stak­lega fyrir konur sem eru komnar yfir þrí­tugt og eiga erfitt með að átta sig á því hvað þær vilja og upp­lifa að tím­inn sé að hlaupa frá þeim. „Mig lang­aði að fara svo­lítið í burtu frá þess­ari ævin­týra­legu, örlaga­ríku og eig­in­lega ómögu­legu mýtu sem helst svo oft í hendur við okkar hug­myndir um ást­ina og taka svo­lítið „real-talk“; upp­lifum við þetta raun­veru­lega svona og ef við eigum það mörg sam­eig­in­legt að vera svo­lítið von­svikin yfir að hafa ekki fengið að upp­lifa þessa jarð­skjálfta-ást, eigum við þá ekki að breyta því svo­lítið hvernig við tölum um það og byggjum upp vænt­ingar okkar?“

„Kenn­ar­inn hélt því fram að hann og strák­arnir í bekknum ættu erfitt með að tengja við til­finn­ingar hennar því þeir vissu ekki hvernig væri að vera með leg.“

Hún bætir við að ákveðið atvik í skól­anum hafi átt þátt í því að þetta umfjöll­un­ar­efni varð fyrir val­inu. „Já, það var svo­lítið sem einn kenn­ar­inn sagði um mynd sem bekkj­ar­systir mín gerði á fyrsta ári. Myndin sner­ist um mjög kven­lega sögu, hún fjall­aði sem sagt um stelpu sem þurfti að taka ákvörðun um eitt­hvað sem tengd­ist leg­inu í henni og kenn­ar­inn hélt því fram að hann og strák­arnir í bekknum ættu erfitt með að tengja við til­finn­ingar hennar, því þeir vissu ekki hvernig væri að vera með leg. Þetta er svo biluð afstaða,“ segir hún, „og svo lýsandi fyrir það hvernig við upp­lifum karlkarakt­era „versus“ kvenkarakt­era. Konur þurftu fyrir löngu að læra að tengja við sögur um karla eftir karla, á meðan sögur um konur eftir konur eru oft stimpl­aðar sem „konu­myndir“ eða „konu-sögur” sem eru þá bara fyrir konur og þykja ekk­ert sér­stak­lega merki­legur pappír. Þetta kveikti ein­hvern eld í mér og í algjörum mót­þróa fékk ég ein­hverja löngun í að virki­lega kafa ofan í allt þetta kven­lega. Að gefa skít í að allir þyrftu að skilja, að ein­hvern veg­inn senda þau skila­boð að strák­unum er alveg boðið en bara ef þeir nenna að opna aðeins hug­ann og sjá konur sem sögu­hetjur sem eru „revelant“ og spenn­andi.“

Katrín Björg­vins­dóttir leik­stjóri. „Þegar maður er að vinna á svona litlum drama-skala þarf hvert ein­asta móment að vera alveg gríð­ar­lega nákvæmt og satt.“ Mynd / Steph­anie Staal

Hún segir að það hafi því óneit­an­lega verið góð til­finn­ing þegar loka­út­gáfa mynd­ar­innar var til­búin að upp­lifa það að sagan í henni skyldi höfða til alls konar fólks, allt frá stelpum sem eru í sömu sporum og aðal­per­sónan Ingrid til mið­aldra giftra karla. „Nokkrir af þeim komu til mín til að segja mér að sagan hefði hreyft við þeim og þeir hefðu tengt við aðal­per­són­una á ein­hverju til­finn­inga­legu „leveli“,“ segir hún ánægð og bætir við að það sé góð þróun að það sé alltaf að verða auð­velda og auð­veld­ara fyrir áhorf­endur, sama af hvaða kyni þeir eru, að tengja við kvenkarakt­era með kven­legar til­finn­ingar.

Skiptist á myrkum leynd­ar­málum við hand­rits­höf­und­inn
Dronning Ingrid er loka­verk­efni Katrínar í skól­anum, hugsað sem prufu­þáttur (pilot) fyrir þátta­seríu og hún við­ur­kennir í fullri ein­lægni að það hafi bæði verið strembið og skemmti­legt að gera það. „Ég var heppin að kynn­ast mjög færum hand­rits­höf­undi í skól­anum og vinna með henni að bæði stóru verk­efni á öðru og þriðja ári og svo að þess­ari mynd. Við náðum að nýta tím­ann í skól­anum vel, urðum góðar vin­konur og byrj­uðum í fram­hald­inu að segja hvor ann­ari alls konar myrk og „skammar­leg“ leynd­ar­mál og þró­uðum aðferð til að skrifa per­sónu­legar sögur sem byggja á til­finn­ingum og upp­lif­unum sem við þekkjum sjálfar vel. Þetta hjálp­aði okkur með að dansa á ein­hverri línu á milli raun­sæis og skáld­aðrar drama­tíkur, halda efn­inu trú­verð­ugu en um leið spenn­andi. En svona ferli er auð­vitað alltaf erfitt,“ bætir hún við. „Við breyttum til dæmis allri sög­unni í Dronning Ingrid mjög seint og þurftum að vinna nýja sögu­þráð­inn hratt og örugg­lega til þess að ná að hafa skot­helt hand­rit fyrir tökur. Þegar maður er að vinna á svona litlum drama-skala þarf hvert ein­asta móment að vera alveg gríð­ar­lega nákvæmt og satt og það getur tekið svo­lít­inn tíma að grafa nógu djúpt, alveg niður að kjarn­anum.“

Vinnur að þáttum upp úr sög­unni
Eins og fyrr segir er Dronning Ingrid prufu­þáttur og Katrín er þegar byrjuð að vinna að þáttum sem munu byggja á sömu hug­mynd. „Núna er ég sem sagt að þróa hug­mynd­ina áfram og búa til „konsept“ sem er hægt að kynna fyrir áhuga­sömum fjár­festum,“ upp­lýsir hún spennt. „Ég er að vinna þetta með sama hand­rits­höf­undi og svo fram­leið­anda úr skól­anum. Það kemur síðan bara í ljós hvað kemur út úr því. Svona hlutir geta nátt­úr­lega tekið langan tíma. Maður þarf að búa sig undir að allt og ekk­ert geti gerst og í raun bara vona það besta.“

Hún kveðst vera spennt fyrir því að reyna að koma sér áfram í danska kvik­mynda­brans­anum enda sé mikil gróska í gangi, mikil fram­leiðsla og metn­aður til dæmis í gerð sjón­varps­efnis og margir mögu­leikar „Ég er samt líka spennt fyrir því að vinna á Íslandi,“ tekur hún fram. „Fá tæki­færi til að gera efni á mínu eigin tungu­máli og með öllu því hæfi­leik­a­ríka tökuliði sem er starf­andi á Íslandi. Ég hef nefni­lega fundið það síð­ustu fjögur ár að það eru alls konar sér­ís­lenskar sögur sem blunda í mér og ég verð að fara að koma frá mér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina