Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Atburðurinn hefur tvístrað fjölskyldunni

„Það er engan stuðn­ing að fá frá fjöl­skyldu minni,“ segir Heiða Þórð­ar­dóttir, systir Gísla Þórs Þór­ar­ins­sonar sem skot­inn var af bróður þeirra, Gunnari Jóhanni Gunn­ars­syni í Noregi fyrr á þessu ári. Hún segir atburð­inn hafa tvístrað fjöl­skyld­unni.

Atburðurinn hefur tvístrað fjölskyldunni
Heiða Þórð­ar­dóttir. Mynd/Hallur Karlsson|Bræð­urnir Gunnar og Gísli.

Þrátt fyrir þessa miklu sorg og van­líðan seg­ist Heiða ekki hafa leitað sér áfalla­hjálpar eða sál­fræði­að­stoðar, hún hafi haldið að hún kæm­ist í gegnum þetta hjálp­ar­laust. Það hafi senni­lega verið ofmat á eigin getu.

„Það er engan stuðn­ing að fá frá fjöl­skyldu minni,“ segir hún. „En hins vegar hef ég fengið ótrú­leg­ustu hjálp frá alls konar fólki sem jafn­vel þekkir mig ekki neitt. Ég er líka mikið í félags­störfum, er í stjórn stjórn­mála­flokks og þar að auki sam­frí­múr­ari og þaðan hef ég fengið mestu hjálp­ina. Þau komu fær­andi hendi með blóm og fal­legar kveðjur og vilja allt fyrir mig gera. En að öðru leyti hef ég ekki fengið neina hjálp.“

Þau for­dæma hann öll og sumir hafa skrifað virki­lega ógeðs­lega hluti um hann á Facebook…

Aðrir í fjöl­skyld­unni hafa tekið harða afstöðu gegn Gunnari og for­dæmt hann fyrir verkn­að­inn, að sögn Heiðu, og atburð­ur­inn hefur tvístrað fjöl­skyld­unni enn frekar.

„Þau for­dæma hann öll og sumir hafa skrifað virki­lega ógeðs­lega hluti um hann á Facebook, meira að segja fólk sem er óvirkir alkó­hólistar og ætti að hafa skiln­ing á því að fík­ill undir áhrifum alls kyns efna fremur ein­hvern við­bjóð þegar hann er ekki með sjálfum sér. Mér hafa sárnað þessi ummæli óskap­lega. Dóm­harkan var svo svaða­lega mikil án þess að fólk vissi neitt um málið eða til­drög þess. Enginn reyndi að setja sig í spor Gunnars eða reyna að skilja hversu hræði­lega illa honum leið eftir að hafa upp­lifað þessi svik frá kon­unni sem hann elskaði og bróð­urnum sem hann leit á sem besta vin sinn. Mér finnst það ófyr­ir­gef­an­legt að dæma svona án þess að hafa neinar for­sendur.“

Bræð­urnir Gísli og Gunnar með móður sinni en komið hefur fram í fréttum að þau systk­inin hafi átt erfitt í æsku vegna alkó­hól­isma og geð­rænna vanda­mála móður þeirra.

Lík Gísla var flutt heim, sem olli líka átökum innan fjöl­skyld­unnar, og jarð­ar­förin fór fram hér. Heiða seg­ist hafa barist fyrir því að fá hann heim en ýmsir aðrir innan fjöl­skyld­unnar hafi viljað láta brenna líkið í Noregi og flytja ösk­una heim til að spara kostnað. Þegar til kom hafi Icelandair flutt hann ókeypis sem hún sé mjög þakk­lát fyrir, svo þetta hafi ekki snú­ist um kostnað þegar upp var staðið. Þessi átök hafi hins vegar kostað það að hún hafi ekki treyst sér til að vera við jarð­ar­för­ina.

„Ég vildi fá hann heim í heilu lagi svo ást­vinir hans gætu kvatt hann,“ útskýrir hún. „Ég hafði það í gegn og hann fékk þá jarð­ar­för sem hann hafði óskað eftir, Liverpool-söng­ur­inn You Never Walk Alone var spil­aður og fleira. Síðan var hann brenndur að eigin ósk. Ég hins vegar gat alls ekki fengið mig til að fara í jarð­ar­för­ina, ég hafði bara ekki heilsu í það, var ekk­ert búin að borða í marga daga, með svima­köst og stöðugt grát­andi. Ég komst líka að því að maður sem teng­ist fjöl­skyld­unni hafði verið að skrifa alls konar óhróður um mig í Facebook-grúppu sem margir vina minna voru í. Ég ætla ekki að gefa þeim orðum líf með því að end­ur­taka þau en ég gat bara ekki hugsað mér að láta þetta fólk sjá mig brotna saman. Ég kvaddi bróður minn bara ein með sjálfri mér.“

Allt við­talið við Heiðu, sem birt­ist fyrst í Mannlífi, má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina