Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fyrirhugaðar framkvæmdir Ratcliffe hafa ekki mikil áhrif á laxastofninn í heild sinni

„Þessar fram­kvæmdir hafa ekki mikil áhrif á aðrar ár eða stofn­inn í heild sinni,“ sagði Jón Helgi Björns­son, for­maður Lands­sam­bands veiði­fé­laga, í sam­tali við Frétta­blaðið um fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir Jim Ratcliffe.

Fyrirhugaðar framkvæmdir Ratcliffe hafa ekki mikil áhrif á laxastofninn í heild sinni
Jim Ratcliffe

Ratcliffe er breskur auð­jöfur og land­eig­andi á Íslandi sem vill stækka hrygn­ar­svæði laxa á Norð­aust­ur­landi. Þá segir hann ástæðu fyr­ir­hug­aðra fram­kvæmda að vernda laxa­stofna. Stefnt er að bygg­ingu nýrra laxa­stiga í Hafra­lónsá í Þistil­firði og Hofsá og Mið­fjarð­ará í Vopna­firði. „Þessir laxa­stigar hafa svo sem sannað ágæti sitt í öðrum ám sem og hrogna­slepp­ingar. Þessar aðgerðir geta haft góð áhrif á þann lax sem lifir í þessum ám,” sagði Jón Helgi. Hann bendir á að fram­kvæmdir sem þessar sem stækki búsvæði lax­ins séu vita­skuld af hinu góða fyrir laxa­stofna.

Í yfir­lýs­ingu segir að Ratcliffe standi að „ítar­legri lang­tíma­rann­sókn á afkomu íslenska lax­ins í ánum og í norð­an­verðu Atl­ants­hafi. Rann­sóknir fara fram í sam­starfi við Haf­rann­sókna­stofnun og háskóla innan lands og utan.“ Guðni Guð­bergs­son, sviðs­stjóri hjá Haf­rann­sókna­stofnun, hefur stað­fest að samn­inga­við­ræður séu í gangi milli Ratcliffe og stofn­un­ar­innar um styrki til að rann­saka lax­inn á Norð­aust­ur­landi.

Vilja hertari löggjöf um eignarhald á jörðum

Ratcliffe hefur sölsað undir sig jarðir ásamt við­skipta­fé­lögum sínum á Norð­aust­ur­landi. Samkvæmt sam­an­tekt Morg­un­blaðs­ins í fyrra eiga þeir hátt í 40 jarðir á Íslandi. Um 30 þeirra eru í Vopna­firði og liggja margar hverjar að gjöf­ulum lax­veiðiám. Meðal þeirra eru Selá, Vesturá, Hofsá og Sunnu­dalsá. Sam­an­lögð stærð lands­ins, sam­kvæmt skrán­ingu Nytja­lands frá 2006, er ríf­lega 1000 fer­kíló­metrar. Það er um 1% alls land­svæðis Íslands.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, telur mik­il­vægt að hraða vinnu um eign­ar­hald ein­stak­linga á jörðum. „Það var skip­aður starfs­hópur sem hefur að mínu mati ekki unnið nægi­lega hratt,” sagði Sigurður í sam­tali við Frétta­blaðið. „Ráð­herrar munu ræða þessi mál á vinnufundi ráð­herra á fimmtu­dag sem verður í Mývatns­sveit sem og að rætt verður við sveit­ar­stjórn­ar­menn á svæð­inu.” Þá segir hann mik­il­vægt að laga­frum­varp komi fram næsta vetur. Flestir ráð­herrar í rík­is­stjórn vilja hert­ari lög­gjöf um eign­ar­hald á jörðum.

Á meirihluta veiðiréttar í Hafralónsá, Hofsá og Selá

Ratcliffe keypti eign­ar­halds­fé­lagið Græna­þing síð­ast lið­inn nóv­em­ber. Með kaup­unum eign­að­ist hann 86,67 pró­senta hlut í veiði­fé­lag­inu Streng ehf. sem heldur utan um leigu á Selá og Hofsá. Félagið á sex jarðir í Vopna­firði að hluta eða að öllu leyti. Þá á Strengur einnig veg­legt veiði­hótel við Selá.

RÚV greindi frá kaupum fjár­fest­inga­fé­lags­ins Sól­ar­salir á Brú­ar­landi 2 í Þistil­firði síð­ast­lið­inn júlí. Félagið er í eigu Ratcliffe. Eftir kaupin eiga félög í hans eigu meiri­hluta veiði­réttar í Hafra­lónsá sem er vin­sæl lax­veiðiá í Þistil­firði. Fyrir á Ratcliffe jarð­irnar Hvamm eitt, þrjú og fjögur í Þistil­firði. Jóhannes Sig­fús­son, bóndi á Gunn­ars­stöðum og for­maður veiði­fé­lags Hafra­lónsár sagði í sam­tali við RÚV að ekk­ert sam­ráð hafi verið haft við land­eig­endur við kaupin. „Alla vega hefur eng­inn hug­mynd um þetta fyrr en það er búið að ganga frá þessu.”

Eins og þetta með að Brú­ar­land sé byggt út úr Gunn­ars­stöðum og í óskiptu landi, þá höfum við ekki hug­mynd um þetta fyrr en okkur er til­kynnt um þessa sölu,” sagði Jóhannes. „Ég held að skatt­ur­inn ætti nú að skoða þessi mál. Það er eini aðil­inn sem hefur til þess tæki til hvernig þetta fer fram. Ég held að það sé svo­lítið mikið um það að þetta sé bara borgað allt með seðlum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina