Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lúsmýið sækir í Vinstri græn en er síst fyrir Pírata

Tæplega fjórð­ungur lands­manna hafa verið bitnir af lús­mýi síð­ast­liðna tólf mán­uði. Þá þekkja 59% ein­hvern sem hefur verið bit­inn. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum könn­unar sem Zenter rann­sóknir stóðu fyrir. Vísir greinir frá.

Lúsmýið sækir í Vinstri græn en er síst fyrir Pírata
Lúsmý

Í könn­un­inni var hægt að taka fram stjórn­mála­skoð­anir og er athygl­is­vert að sjá mis­mun­andi nið­ur­stöður eftir skoð­unum. Stuðn­ings­menn Vinstri grænna virð­ast lík­leg­astir til að vera bitnir en 34% sögð­ust hafa orðið fyrir barð­inu á lúsmý. Stuðn­ings­menn Við­reisnar og Fram­sókn­ar­manna eru einnig lík­legir til að fá bit en um þriðj­ungur beggja hópa hefur verið bit­inn.

„Þetta segir okkur aug­ljós­lega að við erum hluti af þess­ari stóru líf­veru sem nátt­úran er í meira mæli en aðrir,“ hefur Vísir eftir Kolbeini Ótt­ar­syni Proppé, vara­for­manni þing­flokks Vinstri grænna. Þá hefur hann sjálfur ekki verið bit­inn af lús­mýi í sumar þrátt fyrir tíða dvöl í sum­ar­bú­stað í Þjórs­ár­dal. „Þetta er ekki enn komið þangað en það hlýtur eig­in­lega að vera tíma­spurs­mál hvenær það ger­ist. Maður heyrir af þessu víða í upp­sveitum Suð­ur­lands.“

Stuðn­ings­menn Pírata virð­ast hafa sloppið best enn um 16% sögð­ust hafa fengið bit. Þá svör­uðu 19% stuðn­ings­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins ját­andi, 22% Sam­fylk­ing­ar­innar og um fjórð­ungur stuðn­ings­manna Flokks fólks­ins.

Fyrst vart við lúsmý árið 2015

Lands­menn urði fyrst varir við lús­mýið í Hval­firði 2015. Nú hefur það gert vart við sig á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og víðar. Sum­ar­bú­staða­fólk hefur þurft að yfir­gefa bústaði sína víða á Suð­ur­landi vegna ónæðis frá mýinu en stungur þess geta valdið svæsnum ofnæm­is­við­brögðum. Til eru dæmi um fólk sem hefur selt sum­ar­bú­staði sína vegna far­ald­urs­ins svo ljóst er að smá­dýrin valda miklum usla.

Sjá einnig: Heitar teskeiðar og laukur í bar­átt­unni gegn lús­mýi

Lúsmýið er rúmur milli­metri að stærð og sést vart með berum augum en lík­ist helst frjó­kornum sem virð­ast fjúka um loftið en stekkur á menn og dýr, nær­ist á blóði og skilur svo eftir sig ljót sár. Mýið bítur jafnt utan- sem inn­an­dyra og smýgur inn í fatnað sem og í hár­svörð svo erfitt er að verj­ast bitum. Húðin verður rauð, bólgin og hnúða­kennd en mik­ill kláði fylgir í kjöl­farið. Að öðru leyti ættu bitsár ekki að valda óþæg­indum nema við­kom­andi hafi ofnæmi fyrir skor­dýra­biti.

Faraldur á Facebook

„Lúsmýið er komið og greini­lega til að vera. Slæm send­ing og virki­lega aggresíft kvik­indi. Síðasta nótt var erfið og ég kvíði sann­ar­lega kom­andi nætur. Þessi mynd af hand­legg mínum er nán­ast að end­ur­taka sig.“ Þetta skrif­aði Karl Tómasson, trymb­ill Gildrunnar og bæj­ar­stjórn­ar­maður í Mos­fellsbæ, á Facebook síðu sinni. „Hún réð­ist beint á æðina á hand­legg mínum. Þetta er svaka­lega slæm send­ing. Bitin eru vond, maður finnur fyrir þeim og kláð­inn er mik­ill.“

Tón­list­ar­mað­ur­inn Bubbi Morthens hefur einnig greint frá því að vera bit­inn af lúsmý. Þá hefur Hildur Helga Sig­urð­ar­dóttir fjöl­miðla­kona lýsti yfir komu lús­mýs­ins til Hvera­gerðis: „Illa inn­rætt lúsmý sækir nú á Hver­gerð­inga, ekki síst um kyrrar nætur,“ skrif­aðir Hildur Helga á Facebook. „Kemur, að sögn spakra manna, úr Bisk­ups­tungum, herjar nú á Hveró og sækir til Reykja­víkur. Þessi óféti bíta allt sem fyrir verður, en eru sem næst ósýni­leg berum augum. Er sjálf til­von­andi ofur­fyr­ir­sæta í virtum lækna­tíma­ritum, þar sem hjúkr­un­ar­vaktin baðst góð­fús­lega leyfis til mynda­töku í morgun, „til að sýna lækn­unum í hádeg­inu“. Hefði gjarnan viljað vera án þess­arar upp­hefðar, en hvað sam­þykkir kona ekki í þágu vís­ind­anna.“

Lands­menn sem hafa orðið fyrir barð­inu á lús­mý­inu geta leitað ráða í Facebook hópnum Lúsmý á Íslandi. Meðlimir eru um 2500 íslend­in­gas sem skipt­ast á öllum mögu­legum upp­lýs­ingum um smá­dýrin. Þar má finna reynslu­sögur af bitum, úrræðum og kort­lagn­ingu á útbreiðslu vargs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina