Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Lögreglan rannsakar hatursglæp í Breiðholti: Hrækti á fólkið og sagði það ekki velkomið á Íslandi

„Það sem setur þó að mér mestan óhug er að atburður sem þessi eigi sér stað um hábjartan dag í landi sem kennir sig við öryggi og frið­sæld,“ segir Þórunn Ólafs­dóttir, vin­kona múslima sem urðu fyrir árás íslenskrar konu í Breið­holti í gær.

Lögreglan rannsakar hatursglæp í Breiðholti: Hrækti á fólkið og sagði það ekki velkomið á Íslandi
Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Í dag­bók lög­regl­unnar í morgun sagði frá því að veist hafi verið að þremur múslímskum konum í Breið­holti um kvöld­mat­ar­leytið í gær. Var lög­regla kölluð á vett­vang og málið rann­sakað sem hat­urs­glæpur. Frekari lýs­ingar á atvik­inu var ekki að finna í færslu lög­regl­unnar.

Þórunn Ólafs­dóttir lýsir máls­at­vikum á Facebook síðu sinni, en aðstand­andi kvenn­anna setti sig í sam­band við hana eftir atvikið. Hún segir svo frá:

„Í ljós kom að árás hafði átt sér stað. Ekki þó í Sýrlandi, heldur um hábjartan dag í Reykja­vík. Á hinum enda lín­unnar var kær vinur okkar, ráð­ist hafði verið fólsku­lega á fjöl­skyld­una hans í jafn hvers­dags­legum aðstæðum og inn­kaupa­ferð í Bónus. Fjöl­skyldan var á leið út úr versl­un­inni þegar kona veitt­ist að þeim, fyrst með ókvæð­is­orðum en svo bætti hún í og hrækti á þau og gerði til­raunir til að rífa í hijab kvenn­anna, sem er þekkt aðferð hat­urs­glæpa­manna til að nið­ur­lægja múslima. Tilefni árás­ar­innar var hatur í garð inn­flytj­enda og múslima. Í land­inu sem ætl­aði sér að veita fjöl­skyld­unni öruggt skjól. Árás­armann­eskjan hvæsti ítrekað á fólkið að það skyldi koma sér heim og það væri ekki vel­komið hér á Íslandi.“

Árás­armann­eskjan hvæsti ítrekað á fólkið að það skyldi koma sér heim og það væri ekki vel­komið hér á Íslandi.

Þórunn segir að fólkið hafi hringt á lög­reglu sem hafi ekki séð ástæðu til að mæta á stað­inn en það hafi ekki verið fyrr en hún hringdi sjálf í lög­regl­una sem brugð­ist var við. „Nú ætla ég ekki að þykj­ast hafa meira vit á vinnu­brögðum lög­regl­unnar en hún sjálf, en hvernig hefði þetta mál endað ef fjöl­skyldan hefði ekki átt bak­land sem gat gengið í málið? Hversu mörgum svona árásum heyrum við aldrei af?“

Þórunn er slegin yfir því að jafn alvar­legur atburður sem þessi geti átt sér stað um hábjartan dag á Íslandi.  Stað­reyndin sé hins vegar sú að hat­urs­orð­ræða, ras­ismi og íslamó­fóbía fær­ist á aukanna á Íslandi. „Sú ógn­væn­lega þróun á sér margar skýr­ingar og fjöl­margir sem bera þar mikla ábyrgð – stjórn­mála­fólk, fjöl­miðlar og fólkið sem veitir þessum hug­myndum braut­ar­gengi og fjöld­inn sem lætur þær óáreittar. Hvernig sam­fé­lag viljum við eig­in­lega vera?“

Lög­reglan rann­sakar málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina