Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hríseyjarhátíðin haldin um helgina

Hin árlega Hrís­eyj­ar­há­tíð verður haldin um helg­ina þar sem boðið er upp á fjöl­breytta dag­skrá fyrir alla ald­urs­hópa. Hápunkt­inum verður náð á laug­ar­dags­kvöld með varð­eldi og kvöld­vöku þar sem sjálfur Bjartmar Guð­laugs­son stýrir fjölda­söng, ásamt fleirum.

Hríseyjarhátíðin haldin um helgina
Mynd/visitak­ur­eyri.is

Hrís­eyj­ar­há­tíðin hefst föstu­dag­inn 13. júlí með því að nokkrir Hrísey­ingar og sum­ar­húsa­eig­endur bjóða heima­fólki og gestum í kaffi­sopa heim í görð­unum sínum. Upplagt er að rölta á milli garð­anna og njóta gest­risni og sam­vista við skemmti­legt fólk í fal­legu umhverfi. Einnig verða óvissu­ferðir fyrir börn, ung­linga og full­orðna.

Aðal­dag­skráin er laug­ar­dag­inn 14. júlí og er þá í boði dag­skrá frá hádegi og fram á kvöld, sem felst í fjöru­ferð með Skralla trúð, drátta­véla­ferðum, bolta­fjör/vatns­bolta, BMX brós, gömlu­dansa­ball, tón­list og fleira. Boðið verður upp á aðgang að leik­tækjum. Að venju endar hátíðin á kvöld­vöku á svið­inu, varð­eldi og brekku­söng. Hátíðin er fyrst og fremst fjöl­skyldu­há­tíð þar sem allir ættu að finna eitt­hvað við sitt hæfi.

Í Hrísey er öll almenn þjón­usta til staðar s.s verslun, veit­inga­hús, sund­laug, tjald­svæði og gist­ing. Til Hrís­eyjar gengur ferjan Sævar og er boðið upp á allt að níu ferðir á dag. Sigl­ingin tekur aðeins 15 mín­útur frá Árskógs­sandi, sem er um 35 kíló­metra frá Akureyri. Nánari upp­lýs­ingar um Hrísey, ferju­á­ætlun og þjón­ustu má nálg­ast á  og á www.hrisey.net.

Aðgangur á hátíð­ina er ókeypis.

Dagskrá 2019:

Hátíðin hefst með garða­kaffi á föstu­deg­inum kl. 15.00- 18.00, þá bjóða íbúar og sum­ar­húsa­eig­endur gestum og gang­andi í kaffi í görð­unum sínum. Í ár eru það sex staðir sem bjóða upp á garða­kaffi. Óvissu­ferð full­orð­inna verður á sínum stað á föstu­dags­kvöldið.
Á laug­ar­deg­inum verður kven­fé­lagið með sína árlegu kaffi­sölu á hátíð­ar­svæð­inu, Skralli trúður fer í sína síð­ustu fjöru­ferð, Stúlli og Danni taka lagið á svið­inu, María Reyndal og Hrafn­hildur Orra­dóttir verða með stuð og leiki fyrir 12 ára og eldri, kvöld­vaka þar sem Bjartmar Guð­laugs­son kemur fram ásamt fleirum eftir kvöld­vök­una er síðan brekku­söngur og varð­eldur að venju.

Föstu­dagur 12. júlí
Kl. 15.00-18.00 Kaffi í görðum
Kl. 18.00 Óvissu­ferð barna
Kl. 22.00 Óvissu­ferð með Hjálmari Erni

 Laug­ar­dagur 13. júlí
Kl. 13.00 Dagskrá hefst
– Kaffi­sala kven­fé­lags­ins – Trakt­ors­ferðir um þorpið – Leikir og sprell í Íþrótta­mið­stöð­inni – Gömlu­dansa­ball – Hrís­eyj­ar­mót í Pönnu­fót­bolta – Tón­list­ar­at­riði á svið­inu – Stúlli og Danni – Fjöru­ferð með Skralla Trúð – Rat­leikur – Hópakstur drátt­ar­véla

Kl. 21.00 Kvöld­vaka
– Bjartmar Guð­laugs­son ásamt fleirum. Varð­eldur og brekku­söngur.

Nánari upp­lýs­ingar um hátíð­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina