Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ungbarnadauði hvergi fátíðari en á Íslandi

Lífslíkur á Íslandi eru með þeim mestu í Evrópu. Árið 2018 var með­al­ævi­lengd karla 81,0 ár og með­al­ævi­lengd kvenna 84,1 ár á Íslandi.

Ungbarnadauði hvergi fátíðari en á Íslandi
Mynd/Pixabay

Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Þar kemur meðal ann­ars fram að frá árinu 1988 hafa karlar bætt við sig rúm­lega sex árum og konur fjórum.

Á 10 ára tíma­bili (2008–2017) var með­al­ævi karla lengst í Sviss 80,7 ár og skip­uðu þeir fyrsta sætið í Evrópu. Fast á hæla þeirra komu karlar á Íslandi (80,6), Liechtenstein (80,3), Svíþjóð (80,0) og Ítalíu (80,0), síðan á Spáni og í Noregi (79,7). Styst var með­al­ævi­lengd evr­ópskra karla í Rúss­landi (62,6), Moldavíu (65,9), Úkraínu (66,0).

Á sama tíma var með­al­ævi kvenna á Spáni 85,7 ár og í Frakk­landi 85,5 ár og skip­uðu þær fyrsta og annað sæti í Evrópu. Næst á eftir komu konur í Sviss (85,0), Ítalíu (84,9), Liechtenstein (84,4), Lux­em­borg (84,1) og á Íslandi (84,0). Með­al­ævi­lengd kvenna var styst í Moldavíu (74,0), Rúss­landi (74,6) og Úkraínu (76,1).

Menntaðir lifa lengur

Tölurnar sýna einnig að ævi­lengd eykst sam­hliða auk­inni menntun og hefur bilið auk­ist á und­an­förnum árum. Árið 2018 var með­al­ævi­lengd 30 ára kvenna með grunn­skóla­menntun 52,6 ár á meðan þrí­tugir grunn­skóla­mennt­aðir karlar máttu búast við að lifa 48,8 ár til við­bótar. Konur með fram­halds­skóla­menntun máttu búast við að lifa rúm­lega tveimur árum lengur en stall­systur þeirra með grunn­skóla­menntun eða í 54,9 ár frá 30 ára aldri. Munurinn var meiri meðal karla þar sem ævi­lengd 30 ára karla með fram­halds­skóla­menntun var að með­al­tali 51,8 ár eða rúm­lega þremur árum lengri en karla með grunn­skóla­menntun.

Aftur á móti mega þrí­tugir háskóla­mennt­aðir ein­stak­lingar eiga von á því að lifa lengur en þeir sem minni menntun hafa. Þannig var ævi­lengd 30 ára kvenna með háskóla­menntun 56,1 ár eða 3,5 árum meira en þrí­tugra kvenna með grunn­skóla­menntun árið 2018. Ævilengd 30 ára karla með háskóla­menntun var 53,7 ár eða tæpum fimm árum lengri en þrí­tugra karla með grunn­skóla­menntun.

Milli áranna 2011 og 2018 jókst ævi­lengdin frá 30 ára aldri mest meðal háskóla­mennt­aðra, eða um 1,4 ár. Ævilengd 30 ára jókst minna meðal fram­halds­skóla­mennt­aðra eða 0,9 ár en stytt­ist um 0,1 ár hjá grunn­skóla­mennt­uðum.

Loks kemur fram í tölum Hag­stof­unnar að ung­barna­dauði á Íslandi er 1,7 börn af hverjum 1000 lif­andi fæddum árið 2018. Á 10 ára tíma­bili (2008–2017) var ung­barna­dauði á Íslandi að með­al­tali 1,8 af hverjum 1.000 lif­andi fæddum. Hvergi í Evrópu var ung­barna­dauði jafn fátíður og hér. Ung­barna­dauði var að með­al­tali 2,2 í Finn­landi og Slóveníu, 2,5 í Svíþjóð og Noregi og 2,7 í Tékk­landi og Kýpur. Tíðastur var ung­barna­dauði í Tyrk­landi, 11,7 af hverjum 1.000 lif­andi fæddum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina