Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Áhugaverðir jólamarkaðir í nágrenni Frankfurt

Þjóð­verjar og fjöld­inn allur af ferða­mönnum gera sér árlega glaðan dag á jóla­mörk­uðum í Þýska­landi. Slíkir mark­aðir er sagðir hafa verið hluti af aðvent­unni þar í landi í meira en 500 ár.

Áhugaverðir jólamarkaðir í nágrenni Frankfurt
|||

Jóla­mark­að­ur­inn í Dresden er sagður vera einna elstur eða frá árinu 1434. Flestir mark­að­irnir ganga út á það sama en það er að bjóða upp á margs­konar hefð­bund­inn þýskan mat og fal­legan og vand­aðan sölu­varn­ing. Byggð eru upp heilu þorpin af sölu­básum og kofum sem mikið er lagt í að reisa og skreyta. Afar hátíð­legt er að ganga um ljósum prýdda mið­bæ­ina og torgin á aðvent­unni. Þjóð­verjarnir sjálfir sækja mark­að­ina til að fá sér heitt jólaglögg (Glühwein) borða Reibekuchen sem eru djúp­steiktir kart­öfluklattar, Flammkuchen sem eru eins­konar þunnar pizzur með svína­kjötsá­leggi og svo að sjálf­sögðu Bratwurst-pylsur sem vin­sælar eru í Þýska­landi. Ferða­menn­irnir smakka að sjálf­sögðu líka mat­inn en eru meira að kaupa jóla­skrautið og fínu hlut­ina sem eru til sölu. Sterk angan af rist­uðum heitum kastan­íu­hnetum og rist­uðum sætum og krydd­uðum möndlum er ein­kenn­andi fyrir mark­að­ina og afar jóla­legt að upp­lifa. Einnig er rík hefð fyrir vönd­uðu hand­gerðu við­ar­jóla­skrauti eins og fjár­hús­inu í Betlehem með Jesú­barn­inu og ýmsum öðrum vönd­uðum jóla­vörum.

Jólamarkaðir

Frank­furt jóla­mark­að­ur­inn á sér langa sögu eða allt frá 14. öld sem gerir hann einn af eldri jóla­mörk­uðum Þýska­lands. Mark­að­ur­inn nær yfir stórt svæði í mið­bænum eða frá Friedrich-stoltze-platz úr norðri og Paulsplatz og Römer­berg úr suðri. Mark­að­ur­inn er einn af þeim stærstu og vin­sæl­ustu í Þýska­landi og fólk frá öllum heims­hornum heim­sækir hann enda mörg flug­fé­lög sem fljúga þangað og því hægt um vik. Básarnir þykja frum­legir og glæsi­legir. Risa­stórt jóla­tré er sett upp við mark­að­inn ár hvert sem ein­kennir hann. Mikið líf er í Frank­furt á þessum tíma og til­valið að slá tvær flugur í einu höggi, versla, heim­sækja góða veit­inga­staði og þennan stóra mikla jóla­markað í mið­bænum.

Heidel­berg er ein þeirra borga í Þýska­landi sem þykir hvað fal­leg­ust. Að standa á jóla­mark­aðnum með útsýni yfir gamla bæinn og kast­al­ann sem stendur hátt og gnæfir yfir bæinn þykir mörgum með því fal­leg­asta í Þýska­landi. Kastal­inn hefur mikið aðdrátt­ar­afl ferða­manna enda afar fal­legur. Á Karlsplatz er skauta­svell og þaðan er frá­bært útsýni yfir Heidel­berg-kast­ala. Mark­að­ur­inn er opinn frá 26. nóv­em­ber til 22. des­em­ber og er stað­settur í gamla bænum. Í bak­grunni blasir kastal­inn við. Það tekur um klukku­tíma að keyra frá Frank­furt til Heidel­berg og svipað langan tíma að fara með lest.

Köln Það eru yfir­leitt sjö jóla­mark­aðir í þess­ari milljón manna borg. Það er erfitt að ímynda sér að borgin hafi nán­ast verið jöfnuð við jörðu í seinni heims­styrj­öld­inni og aðeins lít­ill hluti gamla borg­ar­hlut­ans stóð eftir. Ein af þeim bygg­ingum sem skemmd­ist ekki er þekktasta og næst­hæsta dóm­kirkja Þýska­lands, en hún er mest sótti ferða­manna­staður Þýska­lands og alveg þess virði að skoða hana og kynna sér sögu hennar. Jóla­mark­að­irnir eru stað­settir allt í kringum kirkj­una og í næsta nágrenni. Vin­sæl­asti jóla­mark­að­ur­inn er við Rudolfplatz. Einungis klukku­stund tekur að fara með lest til Kölnar frá Frank­furt.

Wurzburg á Mari­enka­pelle-torg­inu, ríkir mikil jólastemn­ing á hverju ári og þykir mark­að­ur­inn þar með þeim fal­legri í Þýska­landi. Þangað koma margir ferða­menn á aðvent­unni og bær­inn fyllist af lífi. Jóla­mark­að­ur­inn er hald­inn á mark­aðs­torg­inu þar sem sögu­legar bygg­ingar mynda fal­legan bak­grunn við jóla­skreyt­ingar sölu­bás­ana. Würzburg liggur við bakka árinnar Main og er þekkt fyrir fal­lega mið­bæ­inn sinn sem í eru hvorki meira né minna en 40 kirkjur og margar sögu­legar bygg­ingar. Fjöldi bygg­inga hefur verið end­ur­byggður frá því í stríð­inu. Ekki nema um 130.000 íbúar eru í borg­inni og umhverfis hana eru vín­héruð og mikið er um vín­kjall­ara. Mark­að­ur­inn er opinn frá 30. nóv. til 23 des. Það tekur um klst. með lest að fara frá Frank­furt til borg­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni