Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndband: Sælkera-bláberjalambalæri á grillið

Lamba­læri er fyrir löngu orðin klassík á mörgum heim­ilum og því fátt meira við hæfi en að skella einu slíku á grillið. Við viljum verja sem mestum tíma úti við á sumrin og því er til­valið kaupa krydd­legið lamba­læri. Við getum sann­ar­lega mælt með blá­berjakrydd­legnu lamba­læri frá SS. Bláberin gera kjötið meyrt og sér­lega bragð­gott.

Myndband: Sælkera-bláberjalambalæri á grillið
|

Grillað bláberjakryddlegið lambalæri
fyrir 4-6

2-2,5 kg blá­berjakrydd­legið lamba­læri frá SS
3 msk. ólífu­olía
1 tsk. sjáv­ar­salt
1 tsk. nýmal­aður svartur pipar

Látið lamba­lærið standa við stofu­hita í ½-1 klst. fyrir eldun. Stillið grill á háan hita. Penslið lamba­lærið með ólífu­olíu og sáldrið örlítið af salti og pipar yfir. Ef not­ast er við gas­grill skal hafa kveikt á báðum brenn­ur­unum í byrjun og slökkva síðan öðrum megin rétt áður en lamba­lærið er sett á grillið.

Setjið lamba­lærið þeim megin sem slökkt hefur verið á brennarunum og lokið grill­inu. Ef not­ast er við kola­grill skal hafa kolin öðrum megin og setja lærið þeim megin sem kolin eru ekki. Gott er að hafa lamba­lærið á grill­grind, og álbakka í miðj­unni með dálitlu vatni til að taka við fit­unni sem bráðnar.

Grillið lamba­lærið í 1-1 ½ klst. og snúið því við tvisvar til þrisvar á þeim tíma. Best er að opna grillið sem minnst. Ef óskað er eftir dökkri skorpu má færa lamba­lærið yfir á hærri hita og snúa því við reglu­lega þar til æski­leg skorpa hefur mynd­ast. Gott getur einnig verið að not­ast við kjöt­hita­mæli, miðið við að kjötið nái 60°C til 65°C eftir hvíld.

Takið lamba­lærið af grill­inu og látið hvíla á bakka, setjið álp­appír yfir í 15-20 mín. áður en það er skorið.

Grilluð steinseljurót og blöðrukál

Grillað blöðrukál er í miklu upp­á­haldi hjá rit­stjórn Gest­gjafans enda frá­bært með­læti með grill­matnum. Hægt er að nota aðrar teg­undir af káli. Stein­selju­rót er skemmti­leg til­breyt­ing frá kart­öflum en hún gefur líka fín­legt yfir­bragð.

1 miðl­ungs­stór sell­er­í­rót
1 með­al­stór haus blöðrukál
80-100 ml ólífu­olía
2-3 tsk. sjáv­ar­salt
1-2 tsk. nýmal­aður svartur pipar
1 sítróna, skorin í tvennt

Afhýðið sell­er­írót­ina og skerið í miðl­ungs­þykkar sneiðar, setjið í skál og hellið ólífu­olíu yfir þannig að hún þeki allar sneið­arnar. Sáldrið sjáv­ar­salti og svörtum pipar yfir, setjið til hliðar. Skerið blöðrukálið í báta og látið í stóra skál.

Hellið ólífu­olíu á kálið og sáldrið sjáv­ar­salti yfir. Nuddið ólífu­ol­í­unni vel saman við kálið og látið standa í 30 mín. áður en það er grillað. Grillið sell­er­írót­ina, blöðrukálið og sítrón­una saman á heitu grilli þar til sell­er­írótin er elduð í gegn og blöðrukálið hefur fengið á sig góðan lit. Setjið græn­metið á bakka og kreistið örlítið af sítrónusafa yfir úr grill­uðu sítrón­unni.

Einnig er gott að grilla sítrónur og bera fram með með­læt­inu. Það gefur frísk­legt og skemmti­legt bragð.

Salsa verde

hnefa­fylli stein­selja, söxuð smátt
1 sítróna
1 hvít­lauks­geiri, saxaður smátt
1 msk. kapers, saxað smátt
1 tsk. sjáv­ar­salt
120 ml ólífu­olía

Saxið stein­selj­una smátt og setjið í skál. Rífið börk af sítrónu og kreistið safann úr. Blandið saman við ásamt hvít­lauk, kapers og sjáv­ar­salti. Hellið ólífu­olíu saman við og bragð­bætið með salti og sítrónusafa.

Súrmjólkursósa með grilluðum jalapenó

1 jala­penó
120 ml súr­mjólk
50 ml sýrður rjómi
1 tsk. rif­inn börkur af sítrónu
2 msk. nýkreistur sítrónu­safi
1 msk. saxaður gras­laukur
1 tsk. nýmal­aður svartur pipar
½ tsk. sjáv­ar­salt

Grillið jala­penó í u.þ.b. 5 mín. á heitu grilli. Takið af og setjið til hliðar og látið kólna. Setjið rest­ina af hrá­efn­inu í skál. Takið fræin innan úr jala­pen­óinu og saxið það smátt, blandið við sós­una. Bragð­bætið með nýmöl­uðum svörtum pipar og sjáv­ar­salti.

Unnið í sam­starfi við Slát­ur­fé­lag Suð­ur­lands og Hagkaup

Mynda­taka og klipp­ing / Hákon Davíð Björns­son
Upp­skrift og mat­reiðsla / Folda Guð­laugs­dóttir
Stílisti og rit­stjórn / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni