Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Biskup rak Skírni frá kirkjunni en borgar laun út starfsævina

Biskup rak Skírni frá kirkjunni en borgar laun út starfsævina

Agnes Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, rak séra Skírni Garð­ars­son, hér­aðs­prest á Suð­ur­landi, úr starfi sínu en segir í yfir­lýs­ingu að mis­skiln­ingur ráði umfjöllun. Mannlíf fjall­aði um Skírn­is­málið í síð­asta tölu­blaði þar sem brott­rekst­ur­inn var settur í sam­hengi við fyrri vær­ingar bisk­ups og prests­ins. 

„Mis­skiln­ings eða rang­færslna hefur gætt í umfjöllun um mál sr. Skírnis Garð­ars­sonar. Skírnir hefur lokið þjón­ustu sinni fyrir þjóð­kirkj­una vegna brots á trún­að­ar­skyldu. Réttindi hans í ráðn­ing­ar­samn­ingi eru hins vegar óbreytt og verða að öllu virt,” segir í yfir­lýs­ingu bisk­ups. 

Brott­rekstur Skírnis er þannig skil­greindur með öðrum hætti en venja stendur til. Biskup segir að Skírnir haldi launum sínum út starfsæv­ina sem lýkur í haust.  

„Réttindi hans í ráðn­ing­ar­samn­ingi eru hins vegar óbreytt og verða að öllu virt. Umfjöllun um að kirkjan hafi brotið á honum með upp­sögn á ráðn­ing­ar­samn­ingi er því röng,” segir í yfir­lýs­ing­unni. 

Sér­fræð­ingar í vinnu­rétti sem Mannlíf hefur rætt við eru sam­mála um að þarna sé um að ræða brott­rekstur og að starfs­mað­ur­inn hafi verið smán­aður með þeirri aðferð að vísa honum á dyr af vinnu­stað sínum. 

Í yfir­lýs­ingu bisk­ups er einnig vikið að starfs­lokum Skírnis við Lága­fells­kirkju. Skírnir sagði frá því í við­tali við Stundina á sínum tíma að biskup hefði sett honum afar­kosti. Hann yrði ann­að­hvort að sam­þykkja að verða fluttir í annað emb­ætti eða sæta brott­rekstri. Agnes hefur ekki fyrr en nú mót­mælt þeim orðum. Í des­em­ber 2015 fékk Skírnir sím­tal frá Agnesi bisk­upi sem til­kynnti honum að hann yrði að hætta í Lága­fells­sókn.

„Biskup setti mér þá kosti að skrifa undir eða að ég yrði færður til með handafli. Eftir nokkra fundi skrif­aði ég nauð­ugur undir. Það gerði ég gegn ráð­gjöf félaga minna í Presta­fé­lag­inu og Banda­lagi háskóla­manna. En ég var bug­aður og lét undan ítrek­uðum þrýst­ingi, sím­tölum og tölvu­póstum frá Bisk­ups­stofu. Það var svo harka­lega að þessu staðið að ég fékk ekki einu sinni að kveðja söfnuð minn,“ sagði Skírnir við Stundina árið 2018. 

„Þá er rangt að Skírni hafi áður verið vikið úr starfi. Hann var færður til í starfi árið 2016 að eigin ósk með gagn­kvæmum samn­ingi,” segir í yfir­lýs­ingu bisk­ups. 

Séra Skírnir er í veik­inda­leyfi þessa dag­ana og vill ekki láta hafa neitt eftir sér um stöðu mála. Innan kirkj­unnar gætir tals­verðar óánægju vegna fram­göngu bisk­ups. Fæstir úr hóipi presta þora þó að tjá sig um málin opin­ber­lega af ótta við að verða fyrir reiði bisk­ups.

Sjá yfir­lýs­ingu bisk­ups í heild:

Vegna við­tals við Skírni Garð­ars­son og umfjöll­unar um þjón­ustu­lok hans í fjöl­miðlum er eft­ir­far­andi upp­lýs­ingum komið á fram­færi.

Mis­skiln­ings eða rang­færslna hefur gætt í umfjöllun um mál sr. Skírnis Garð­ars­sonar. Skírnir hefur lokið þjón­ustu sinni fyrir þjóð­kirkj­una vegna brots á trún­að­ar­skyldu. Réttindi hans í ráðn­ing­ar­samn­ingi eru hins vegar óbreytt og verða að öllu virt. Umfjöllun um að kirkjan hafi brotið á honum með upp­sögn á ráðn­ing­ar­samn­ingi er því röng.

Skírni var gef­inn kostur á að skýra mál sitt frekar sem hann og gerði í bréfi. Þær útskýr­ingar breyttu ekki afstöðu kirkj­unnar um að afþakka þjón­ustu hans.

Skírnir verður sjö­tugur á haust­mán­uðum n.k. og þá lýkur hans ráðn­ing­ar­sam­bandi við þjóð­kirkj­una.

Þá er rangt að Skírni hafi áður verið vikið úr starfi. Hann var færður til í starfi árið 2016 að eigin ósk með gagn­kvæmum samn­ingi.

Til presta leitar fólk með alla flóru mann­legra til­finn­inga, í erf­iðum og við­kvæmum aðstæðum, í gleði eða dimmum dal sorgar. Trún­að­ar­skylda presta er algild, nema hvar lögin segja annað.

Afstaða bisk­ups er skýr. Kirkja fólks­ins, þjóð­kirkjan, er staður þar sem fólk nýtur skjóls, trún­aðar og virð­ingar.

Hafi, í gegnum tíð­ina, skort á fum­leysi og ákveðni af þjóð­kirkj­unnar hálfu gagn­vart brotum presta gegn fólki sem myndar kirkj­una og nýtir hana, er þeim tíma lokið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina