Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Steinunn Ólína gagnrýnir Víði: „Sorglegt að þú skyldir gerast málpípa annarra“

Steinunn Ólína gagnrýnir Víði: „Sorglegt að þú skyldir gerast málpípa annarra“
Mynd af Víði / Lög­reglan. Mynd af Stein­unni / Rakel Ósk

„Ef þú stendur ekki í lapp­irnar Víðir, missir almenn­ingur trúna á þig líka,“ segir Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir, rit­stjóri Kvenna­blaðs­ins, í opnu bréfi sem hún ritar til Víðis Reyn­is­sonar yfir­lög­reglu­þjóns á vef­síðu blaðs­ins í dag. Steinunn Ólína er ekki sátt við þann hluta af sam­fé­lags­sátt­mál­anum sem Víðir stakk upp á í gær sem snýr að því hvaða fjöl­miðlum fólk eigi að treysta. „Svo fannst mér hreint ónota­legt að sjá þig ger­ast leik­brúðu þeirra sem vilja stýra fjöl­miðla­um­ræðu á Íslandi og treysta ekki almenn­ingi til að hugsa sjálf­stætt og draga skyn­sam­legar álykt­anir,“ segir hún meðal ann­ars í bréf­inu.

Steinunn Ólína byrjar á því að hrósa Víði og seg­ist hafa dáðst að fram­komu hans á stöðu­fundum almanna­varna: „Þú kemur fram við annað fólk af virð­ingu, ert elsku­legur, ekki upp­tek­inn af sjálfum þér og kemur vel frá þér þeim mik­il­vægu skila­boðum sem þú hefur þurft að hafa yfir ítrekað á fyrr­nefndum fundum. Af þessum sökum hlustar fólk á þig og tekur mark á fyr­ir­mælum þínum,“ segir hún en bendir í fram­hald­inu á að einmitt vegna þess­ara mann­kosta beri Víðir mikla ábyrgð: „Fyrir sakir mann­kosta þinna berðu mikla ábyrgð og því var sorg­legt að þú skyldir ger­ast mál­pípa ann­arra en þinnar heil­brigðu skyn­semi á upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna um helg­ina þar sem þú kynntir hug­myndir um sam­fé­lags­sátt­mála,“ segir rit­stjór­inn og heldur síðan áfram með því að benda á ýmis­legt sem henni fannst skorta í hug­myndum yfir­lög­reglu­þjóns­ins um þann sátt­mála:

„Ég sakn­aði þess að heyra ekki í til­lögum þínum nein skila­boð til stjórn­valda og um ábyrgð þeirra við að koma líf­inu aftur í eðli­legt horf: Tillögur um aðgerðir stjórn­valda sem gætu komið í veg fyrir afkomu­á­hyggjur, von­leysi, þung­lyndi og and­legt nið­ur­brot allra þeirra fjöl­mörgu sem rík­is­stjórnin kemur ekki til bjargar. Aðgerðir sem gætu strax dregið úr ofbeldi gegn konum og börnum, eitt­hvað sem heyrir beint undir þitt emb­ætti.Ekki eitt orð um það að stjórn­völd ættu yfir­höfðuð að vera hluti af þessum sam­fé­lags­sátt­mála. Bara beiðni um að almenn­ingur spritti yfir­borðið.“

„Svo fannst mér hreint ónota­legt að sjá þig ger­ast leik­brúðu þeirra sem vilja stýra fjöl­miðla­um­ræðu á Íslandi…“

Steininn tekur þó úr þegar Steinunn Ólína snýr sér að því sem henni finnst allra helst ámæl­is­vert í þess­ari upp­á­stungu Víðis: „Svo fannst mér hreint ónota­legt að sjá þig ger­ast leik­brúðu þeirra sem vilja stýra fjöl­miðla­um­ræðu á Íslandi og treysta ekki almenn­ingi til að hugsa sjálf­stætt og draga skyn­sam­legar álykt­anir. Þú nefndir að fólk ætti að „nota fréttir“ frá „traustu“ frétta­miðl­unum sem væru rit­stýrðir og sýndu okkur „rétta“ mynd af hlut­unum. Þær fréttir ættum við að „nota“ í umræð­unni og ekki „eitt­hvað annað.“ segir hún og heldur áfram: „Þjóðar­ör­ygg­is­ráð hefur skipað sér­staka nefnd til að kort­leggja upp­lýs­inga­óreiðu á Íslandi. Ekki láta draga þig inn í slíkt hættu­spil, Víðir. Vald­hafar á Íslandi hafa með skipun slíkrar nefndar sýnt að þeir vilja stjórna því hvernig fólk hugsar. Gleymdu ekki að það er í lögum um hlut­verk lög­reglu að aðstoða borg­ara þegar hætta steðjar að. En af því að ég vil gjarnan treysta þér áfram Víðir, svar­aðu þá bara upp­hátt: Hverjir eru traustu rit­stýrðu frétta­miðl­arnir sem við eigum að treysta og nota upp­lýs­ingar frá? Og hvaða fjöl­miðla eigum við að forð­ast?“

Grein­inni lýkur með því að rit­stjór­inn setur fram þá ósk að Víðir láti aldrei plata sig aftur til að fara með svona vit­leysu fyrir framan alþjóð: „Þú veist betur og hefur sýnt að þú berð meiri virð­ingu fyrir þjóð­inni en íslensk stjórn­völd og hags­mun­að­ilar í íslenskri þjóð­fé­lags­um­ræðu sam­an­lagt. Ef þú stendur ekki í lapp­irnar Víðir, missir almenn­ingur trúna á þig líka.“

Bréf Stein­unnar Ólínu má lesa í heild á vef­síðu Kvenna­blaðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina