Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Play á loft í vetur meðan Icelandair er í vanda

Play á loft í vetur meðan Icelandair er í vanda

Flug­fé­lagið Play er við það að tryggja sér lang­tíma­fjár­mögnun og stefnir á að hefja form­lega starf­semi næsta vetur, sam­kvæmt heim­ilda­mönnum Mannlífs. Heim­ilda­menn segja að á sama tíma sé raun­staða Icelandair verri en haldið hefur verið fram en félagið hefur meðal ann­ars verið gagn­rýnt fyrir háan rekstr­ar­kostnað. Telja þeir að Icelandair komi til með að þurfa á rík­is­að­stoð að halda og það jafn­vel frekar fyrr en seinna þar sem staða félags­ins sé slæm.

Samkvæmt fyrr­nefndum heim­ilda­mönnum tryggði Play sér lang­tíma­fjár­mögnun með þeim skil­yrðum að á Íslandi næð­ist að safna því sem nemur nærri 1,4 millj­örðum króna miðað við núver­andi gengi. Nú er svo komið að lítið vantar upp á þá upp­hæð og er unnið hörðum höndum að því innan félags­ins að kom­ast á loft næsta vetur. Það er hins vegar tal­vert kostn­að­ar­samt að reka flug­fé­lag án tekna líkt og Play hefur gert síðan síð­ast­liðið haust.

Félagið átti í erf­ið­leikum með að greiða laun þar til bjarg­vættur kom inn í félagið og situr nú í stjórn þess. Sá bjarg­vættur er Elías Skúli Skúlason, stjórn­ar­for­maður og einn eig­enda flug­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins Airport Associates, sem verið hefur í lyk­il­hlut­verki við að veita Play brú­ar­fjár­mögnun. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs er flug­rekstr­ar­leyfi félags­ins klárt hjá Sam­göngu­stofu en verður ekki form­lega veitt félag­inu fyrr en lang­tíma­fjár­mögn­unin er tryggð. Því má segja að enn sé tals­verð óvissa um fram­tíð Play og hvort það hefji form­lega starf­semi í haust.

Áhættufælnir hluthafar

Heim­ilda­menn Mannlífs telja að óraun­hæft sé að búast við ein­hverri við­spyrnu í ferða­þjón­ustu og alþjóð­legum flug­bransa fyrr en undir lok árs­ins. Þeir telja að það geti kostað Icelandair allt að 20 millj­arða króna að halda sér á floti fram að því. Félagið eigi því ekki annan kost við þessar aðstæður en að leita til sinna hlut­hafa og þurfi að minnsta kosti 10 millj­arða hlut­fjár­aukn­ingu núna fyrir sum­arið til að geta fleytt sér áfram yfir þennan hjalla. Það sé í raun algjört lág­mark. Icelandair sé á sama tíma þung­lama­legt í rekstri með líf­eyr­is­sjóði sem stóra hlut­hafa. Sjóð­irnir séu á köflum áhættu­fælnir og ekki lík­legir, að mati við­mæl­enda Mannlífs, til að vilja taka einir áhætt­una á end­ur­reisn flug­fé­lags­ins.

Hófsamari rekstraráætlun

Á meðan sumir heim­ilda­menn Mannlífs gagn­rýna kostn­að­ar­grunn Icelandair segja þeir áhuga­vert að velta upp kostn­að­ar­grunni Play. Rekst­ar­módel félag­anna séu mjög ólík. Einn af heim­ilda­mönnum Mannlífs sem þekkir vel inn á alþjóð­legan flug­markað, segir að rekst­ar­módel Play sé jafn­vel skyn­sam­legra. Þar skipti miklu máli að áhafn­ar­kostn­aður félags­ins sé mun lægri heldur en hjá Icelandair en sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs hefur félagið nú þegar gert áhafn­ar­samn­inga sem gilda út árið 2023. Play hafi einnig lagt upp með hóf­sam­ari rekst­ar­á­ætlun en hið fallna lággjalda­flug­fé­lag WOW air þar sem byrjað verður með fáa áfanga­staði og fjórar flug­vélar til að byrja með.

Sumir við­mæl­endur Mannlífs eru á því að nú sé að vissu leyti jafn­vel hag­stætt að hefja flug­rekstur enda séu líkur á ódýr­ari leigu­samn­ingum flug­véla. Þá hjálpi sú stað­reynd Play að félagið ætli að not­ast við flug­vélar frá Airbus, sem eru taldar vera hag­kvæm­ari í rekstri en Boing-vélar Icelandair.

Mikill munur á kostnaði vegna áhafna

Fullyrt hefur verið að kostn­aður vegna áhafna hins gjald­þrota WOW flug­fé­lags hafi verið um 30% hag­stæð­ari en hjá Icelandair og telja heim­ilda­menn Mannlífs að kostn­að­ur­inn sé enn lægri hjá Play. Munurinn gæti verið allt að 50% mili Icelandair og Play. Telja þeir að það sé nokkuð heft­andi fyrir Icelandair hversu margir flug­menn hjá félag­inu eru í hæsta launa­skala og ofar­lega á svoköll­uðum seni­ority-lista, eða starfs­ald­ur­slita.

Komi til þess að Icelandair þurfi að minnka flot­ann um helm­ing og segja upp hund­ruðum flug­manna þá muni félagið sitja eftir með flug­menn sem eru með flug­stjóra­stöðu hjá fyr­ir­tæk­inu og í hæsta launa­skala. Þá benda þeir á að nýt­ing flug­mann­anna í flug­tímum hafi verið síðri hjá Icelandair en hjá WOW. Það skrif­ist ekki á flug­menn heldur á félagið. Með betri nýt­ingu flug­manna myndi Icelandair án efa styrkja sam­keppn­is­stöðu sína, að þeirra mati.

Hjálp eða hindrun?

Sumir heim­ilda­menn Mannlífs telja að sterk eig­in­fjár­staða Icelandair geti hrein­lega skemmt fyrir félag­inu og sömu­leiðis að félagið skuli hafa tryggt sér of mikið magn af olíu á meðan olíu­verð fer hríð­lækk­andi.

Einn veltir fyrir sér hvort sam­runi Icelandair og Play gæti verið góð lausn á vanda flug­rekst­urs­ins á Íslandi. Aðrir heim­ilda­menn Mannlífs telja að sterk eig­in­fjár­staða Icelandair geti gefið félag­inu mik­il­vægt for­skot í við­spyrnu þegar allt opn­ast á nýjan leik fyrir ferða­lög til og frá land­inu. Þeir benda á að einn af megin sam­keppn­is­að­ilum Icelandair, hið norska Norwegian Air, sé í slæmum rekst­ar­vanda. Þeir telja einnig að staða Íslands verði góð þegar allt fer af stað á nýjan leik, þar sem til­tölu­lega fá Covid-19 smit hafa greinst hér­lendis og það opni bæði fyrir að tekið verði fagn­andi á móti Íslend­ingum erlendis og að far­þegar verði óhræddir við að ferð­ast til lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina