Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðsgjöf til mannkyns …

Guðsgjöf til mannkyns …

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Þegar langþráður sonur bættist við fjölskylduna fundum við systurnar fjórar vel fyrir því. Látlaust eftirlæti foreldra og annarra ættingja hafði án efa einnig mikil áhrif á bróður minn og ekki til góðs. Hann hefur alla tíð vitað allt betur en aðrir og kunnað að ná sínu fram með samblandi af sjarma og frekju.

Mér þykir vænt um Kára bróður en geri mér fylli­lega grein fyrir göllum hans. Hann var ofdekraður frá fæð­ingu og finnst hann vera guðs­gjöf til mann­kyns. Hann ætti ekki að koma nálægt pen­inga­málum og fór fjár­hags­lega illa með for­eldra okkar og minnstu mun­aði að þau misstu íbúð sína af hans völdum. Við systur gátum gripið inn í áður en illa fór. Samt sjá pabbi og mamma ekki sól­ina fyrir honum, hann var bara óhepp­inn, segja þau. Eig­in­konur hans fyrr­ver­andi eiga þó mesta samúð mína, þær áttu ekki sjö dag­ana sæla.

Sú fyrsta

Kári kynnt­ist Maríu þegar þau voru bæði farin að nálg­ast þrí­tugt. Fram að því hafði hann baðað sig í aðdáun kvenna og átt ótelj­andi kærustur. María var lík­lega hæfi­lega áhuga­laus því Kári linnti ekki látum fyrr en hún sam­þykkti að gift­ast honum. Hún var lista­kona sem hafði vakið nokkra athygli en hann hafði ekki enn ákveðið hvað hann ætl­aði að verða þegar hann yrði „stór“. Eftir stúd­ents­próf fór hann í háskóla en átti erfitt með að finna fag við hæfi svo hann flosn­aði upp eftir ein­hvern tíma.

Kári var í skemmti­legum vina­hópi sem var nokkuð áber­andi og nokkrir í hópnum áttu eftir að verða þekktir í þjóð­fé­lag­inu. Þarna voru mynd­list­ar­menn, upp­renn­andi stjórn­mála­fólk, tón­list­ar­menn, til­von­andi fjöl­miðla­fólk og fleiri og fleiri. Í gegnum hóp­inn kynnt­ist hann Maríu.

Hjóna­band þeirra varði í um ára­tug en undir það síð­asta var það orðið erfitt. Þeim leið lík­lega best saman í útlöndum þar sem María var við nám en eftir að þau fluttu aftur heim til Íslands fór að halla undan fæti. Kári er með ein­dæmum ráð­ríkur og veit allt best, hann reyndi meira að segja að kenna Maríu sitt af hverju varð­andi list­ina. Hann er vissu­lega fróður og vel les­inn og hafði án efa kynnt sér sitt af hverju um list, hann gat og getur haldið uppi sæmi­lega skyn­sam­legum sam­ræðum um ansi margt. Hann hefur þó bara yfir­borðs­þekk­ingu þótt hann hljómi eins og hann viti bók­staf­lega allt um allt.

María sá um fjár­málin, eða reyndi það, henni ofbauð hversu eyðslu­samur Kári var. Þau lifðu hátt miðað við inn­kom­una en Kári hefur alltaf viljað ber­ast á. Hann helst ekki lengi í hverju starfi og það er alveg stór­merki­legt hvað hann fær alltaf góða vinnu en lík­lega hefur óbilandi sjálfs­traust hans heil­mikið að segja um það.

„Hann girntist t.d. antík­sófa­sett og sófa­borð sem María hafði erft og neit­aði að skrifa undir skiln­að­ar­papp­írana nema hann fengi þetta. Hann kvaðst hafa unnið fyrir henni á meðan hún var í námi …“

Á end­anum gafst María upp á honum, bæði lífs­stílnum og fram­komu hans við hana. Skiln­aður þeirra var erf­iður og frekjan í bróður mínum kom fram í sinni verstu mynd. Hann girntist t.d. antík­sófa­sett og sófa­borð sem María hafði erft og neit­aði að skrifa undir skiln­að­ar­papp­írana nema hann fengi þetta. Hann kvaðst hafa unnið fyrir henni á meðan hún var í námi, hann ætti því inni hjá henni sem var auð­vitað algjört bull. Að end­ingu gafst María upp, sagði honum að hirða allt saman. Hún nennti ekki að standa í þessu. Hún hefur búið erlendis í mörg ár og gerir það gott, bæði í starfi og einka­lífi.

Næsta kona

Næsta eig­in­kona Kára var líka lista­kona að mennt. For­eldrar hennar áttu og ráku stöndugt fyr­ir­tæki og þar starf­aði hún en vann að list sinni í frí­stundum. Ætlunin var þó alltaf að helga sig list­inni. Sigrún var gull­fal­leg, eins og María, og afar hæfi­leik­a­rík. Ég hef varla kynnst fyndn­ari og skemmti­legri mann­eskju en Sigrúnu. Hún var svo bjart­sýn og lífs­glöð og ekk­ert var henni ómögu­legt.

Bróðir minn var um fer­tugt þegar þau giftu sig og hún tæp­lega þrí­tug, eða tólf árum yngri. Eftir um tvö ár fædd­ist þeim sonur, gull­fal­leg blanda af þeim báðum og ljúfur eins og mamman.

Ég var í tals­vert miklu sam­bandi við Sigrúnu en þó tók ég ekki eftir breyt­ing­unum á henni því þær gerð­ust svo hægt. Eftir nokkur ár var lítið eftir af lífs­glöðu og skemmti­legu stelp­unni sem hafði gifst bróður mínum. Kannski er það bara eðli­leg þróun að breyt­ast með aldr­inum og við það að eign­ast barn en eftir á að hyggja var ekk­ert eðli­legt við þetta. Bróðir minn braut hana í raun hægt og mark­visst niður. Því sem hann féll fyrir í hennar fari reyndi hann að breyta, eins furðu­legt og það hljómar. Stöðug gagn­rýni hans um að hún ætti ekki að segja svona, vera svona, hugsa svona og svo fram­vegis, fór illa með hana og hún var lík­lega of ung og sveigj­an­leg til að láta þetta ekki á sig fá. Hún var löngu hætt að snerta á nokkru tengdu list­inni, eins og hún hefði ekki lengur trú á sjálfri sér. Kári hefur iðu­lega talið sig vera mik­inn jafn­rétt­is­sinna en er þó óþreyt­andi við að hrút­skýra málin fyrir konum.

„Stöðug gagn­rýni hans um að hún ætti ekki að segja svona, vera svona, hugsa svona og svo fram­vegis, fór illa með hana.“

Sigrún mót­mælti Kára aldrei á almanna­færi þótt hann færi greini­lega með ein­hverja vit­leysu en ég veit að þeim varð oft sund­ur­orða vegna fjár­mála. Hann vildi alltaf leika svo stóran karl. Þau fóru kannski fínt út að borða með vina­hjónum og Kári heimt­aði iðu­lega að borga fyrir alla sem var bara flott­ræf­ils­háttur því hann hafði ekki efni á því. Honum fannst skemmti­legra að verja pen­ing­unum í eitt­hvað slíkt og fela frekar heim­il­is­reikn­ing­ana. Þau virt­ust hafa það ágætt en það mátti ekk­ert út af bregða.

Þau voru gift í tólf ár og þegar þau skildu fór það fram í róleg­heitum og lítið bar á frekju Kára í þetta sinn. Eflaust skipti miklu máli að nú var son­ur­inn kom­inn til sög­unnar og ekki vildi hann fara illa með dreng­inn. Öllu var því skipt hnífjafnt. Ég veit að Kári hefði fengið for­ræði drengs­ins ef hann hefði kært sig um, því Kári fær alltaf það sem hann vill – en það hent­aði ekki lífs­stíl hans að vera ein­stæður faðir.

Kári fór fljót­lega í sam­band við konu sem var á svip­uðum aldri og hann. Hún þoldi ekki yfir­gang­inn í honum svo þau rugl­uðu aldrei saman reytum.

Sigrún hefur blómstrað eftir skiln­að­inn, breyst úr þeirri mús sem hún var orðin, í glöðu, frum­legu og hug­mynda­ríku kon­una sem hún var áður en sam­búðin með bróður mínum breytti henni. Hún er gift dásam­legum manni sem kann greini­lega að meta hana eins og hún er.

Sú þriðja

Þriðja konan hans bróður míns, sem þá var orð­inn rúm­lega fimm­tugur, heitir Ósk og var, eins og hinar fyrri, að nálg­ast þrí­tugt þegar þau kynnt­ust.

Það er eins og Kári nái bara sam­bandi við yngri konur sem eru vænt­an­lega mót­an­legri en þær sem eru nær honum í aldri. Kári er ung­legur, bæði í útliti og anda, og ald­urs­mun­ur­inn virð­ist engu skipta. Ég hef fundið hversu Kári hefur lít­inn áhuga á að vera í sam­skiptum við t.d. okkur syst­urnar. Við látum hann heyra það ef okkur mis­líkar en meira í stríðni sem hann þolir þó ekki sér­lega vel. Hann hefur sótt í félags­skap barna okkar og virð­ist njóta sín betur með þeim en okkur. Fólk á hans aldri er aðeins í náð­inni ef það er frægt eða mikið and­ans fólk og hann heldur góðu sam­bandi við gamla vina­hóp­inn sinn.

„Ég er þakk­lát fyrir að ég fékk ekki sama upp­eldi og Kári …“

Ósk var nýút­skrifuð úr HÍ með masters­próf, klár og flott stelpa. Eftir tveggja ára hjóna­band dreif Kári sig loks í háskóla, í sama fag og Ósk var menntuð í. Fag sem hann hafði aldrei sýnt nokkurn áhuga. Ég efast ekki um að hann sé löngu far­inn að kenna henni fræðin … Hún virð­ist þó ham­ingju­söm og ekki víst að honum tak­ist að stjórna henni jafn­mikið og fyrri kon­unum. Sonur Kára fær heil­brigt upp­eldi hjá móður sinni og ég vona að Kári breyti þar engu um. Feðgarnir hitt­ast mikið en eru meira eins og vinir en feðgar. Eftir að Ósk kom til sög­unnar fór dreng­ur­inn að fara aðra hverja helgi til þeirra, og oftar en það, en fram að því hitt­ust feðgarnir bara þegar Kára hent­aði.

Ég er þakk­lát fyrir að ég fékk ekki sama upp­eldi og Kári og ég ól syni mína ekki upp í gengd­ar­lausu eft­ir­læti eins og Kári fékk. Þeir fengu ekk­ert upp í hend­urnar og taka engu sem sjálf­sögðum hlut. Þeir eru miklir sóma­menn og ég er mjög hreykin af þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu