Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dekur fyrir hugann

Dekur fyrir hugann

Það er gott að dekra við sig öðru hverju, fara í nudd, fót­snyrt­ingu eða and­lits­bað svo eitt­hvað sé nefnt, til að láta spennu og streitu líða úr sér. Við megum þó ekki gleyma að dekra líka við hug­ann því hann verður engu síður fyrir áhrifum af streitu og amstri hvers­dags­ins.

Slakandi svefn

Svefn er okkur öllum lífs­nauð­syn­legur því á meðan við sofum er lík­ami okkar í við­gerð­ar­fasa, end­ur­nýjun verður í ýmsum vefjum og hugur okkar hvílist.  Í full­komnum heimi fengjum við átta tíma end­ur­nær­andi svefn á hverri nóttu en það er ekki sá heimur sem við lifum í. Við förum eldsnemma á fætur og tímum svo ekki að fara snemma að sofa á kvöldin. Svo getum við ekki alltaf sofnað þegar á kodd­ann er komið, heldur liggjum og hringsnú­umst um í kvíða. Þá getur lavender-ilm­kjarna­olía hjálpað en hún er oft notuð til þess að ná fram jafn­vægi og slökun. Sniðugt að setja nokkra dropa af ilm­kjarna­ol­í­unni í sprey­brúsa með vatni og spreyja á kodd­ann áður en farið er upp í.

Bragðgóð lausn

Þegar streitan er að drepa mann er oft freist­andi að grípa í sæt­indi til að auka vellíðan, en þau áhrif eru þó aðeins skamm­vinn. Sykur veldur háum toppum í blóð­sykri og í kjöl­farið af þeim kemur blóð­syk­ur­fall en því fylgir yfir­leitt orku- og ein­beit­ing­ar­leysi. Næst þegar þig langar í eitt­hvað bragð­gott til að lífga upp á dag­inn ætt­irðu frekar að fá þér gott dökkt súkkulaði því það inni­heldur minni sykur og veldur því ekki jafn­mik­illi aukn­ingu blóð­syk­urs. Það inni­heldur einnig hell­ing af andox­un­ar­efnum og er sagt geta dregið úr stress­horm­ón­inu kortisóli.

Fljótandi slökun

Það er fátt eins spennu- og streitu­los­andi og að fara í gott bað. Það er í raun á við að fá nudd því það slakar á vöðva­spennu og minnkar bólgur og verki. Það gerir því öllum gott, bæði íþrótta­fólki og kyrr­setu­fólki. Mögulega líður okkur svona vel í vatni vegna þess að það lík­ist því umhverfi sem við kynn­umst fyrst í móð­ur­kviði. Eftir erf­iðan dag ætt­irðu að láta renna í heitt bað, setja bað­olíu eða –sölt í það, kveikja á kertum og slak­andi tón­list, leggj­ast aftur, loka aug­unum og finna hvernig að það líður úr þér.

Róandi drykkur

Það er alltaf nota­legt að setj­ast niður í amstri dags­ins og fá sér heitan drykk, til dæmis te. Rann­sóknir hafa sýnt að kamilla inni­heldur efni sem bind­ast við sömu mót­tak­ara í heil­anum og ýmis róandi lyf. Kamillute hefur þess vegna væg róandi áhrif  og getur gert þér kleift að slaka á og vinda ofan af streitu. Þeir sem eru ekki mikið fyrir tedrykkju geta prófað að taka kamillu inn sem fæðu­bót­ar­efni í stað­inn.

Ljúfur lestur

Ein besta leiðin til að slaka á er að sleppa inn í annan heim þótt það sé ekki nema í augna­blik. Með til­komu nútíma­tækni þá grípum við oftar í tölvu­leiki, sjón­varps­þætti eða þvíum­líkt og gefum okkur sjaldan tíma til þess að setj­ast niður og lesa góða bók. Rannsókn Sussex-háskóla sýndi þó fram á að lestur gæti dregið úr streitu um allt að sex­tíu og átta pró­sent, en miðað var við spennu í vöðvum og hjart­slátt.

Góð bók getur gert krafta­verk.

Þeir sem að rann­sókn­inni komu töldu ástæð­una fyrir því að lestur virt­ist vera mun árang­urs­rík­ari en aðrar slök­un­ar­að­ferðir, svo sem að hlusta á tón­list eða fara út í göngutúr, vera þá að hann krefst fullrar athygli hug­ans og þannig gleymum við öllu öðru og slökum á.

Við eldavélina

Úti­vinn­andi ein­stak­lingar geta stundum ekki hugsað sér neitt verra en að þurfa að elda kvöld­mat­inn eftir langan vinnu­dag og grípa þá oftar en ekki til skyndi­bita.  Matseld getur hins vegar verið mjög róandi og tæki­færi til að vinna úr streitu dags­ins. Því þegar við skerum niður, söxum og hrærum í pottum gerum við það oft­ast í ákveðnum takti og við fylgjum ákveð­inni rútínu. Á meðan getur maður hreinsað hug­ann og unnið úr málum, þannig að þetta verður eins og nokk­urs konar hug­leiðsla. Það gefur manni líka svo mikla ánægju að borða hollan og góðan mat sem eld­aður hefur verið frá grunni.

Umsjón / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu