Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Farsæll ferill í 50 ár

Farsæll ferill í 50 ár
|epa08152588 French designer Jean Paul Gaultier (C) is greeted by fri­ends and mod­els after he pres­ented his last Spring/Summer 2020 Haute Couture collection during the Paris Fashion Week

Fyrr í mán­uð­inum kom franski fata­hönn­uð­ur­inn Jean Paul Gaultier mörgum á óvart þegar hann greindi frá því að nú væri komið að hans síð­ustu haute couture-sýn­ingu. Loka­sýn­ingin fór svo fram í síð­ustu viku og var hin glæsi­leg­asta.

Á þess­ari tíma­móta­sýn­ingu var litið yfir far­inn veg. Gaultier sýndi í kringum 200 dress á sýn­ing­unni sem höfðu mörg ein­hverja vísun í hans eldri hönnun.

En hvað er það sem hefur ein­kennt fram­lag Gaultier til tísku­heims­ins í þau 50 ár sem hann hefur verið í brans­anum?

Fjölbreyttar fyrirsætur

Tísku­sýn­ingar Gaultier hafa alltaf vakið mikla athygli enda hefur hann verið dug­legur að fara nýjar og öðru­vísi leiðir. Hann hefur til að mynda verið óhræddur við að fá áber­andi fólk til að ganga tísk­u­pall­inn fyrir sig; fólk sem ekki starfar sem fyr­ir­sætur, fólk á öllum aldri, fólk úr ólíkum sam­fé­lags­hópum og af öllum stærðum og gerðum, ef svo má að orði kom­ast. Fyr­ir­sætur með stór og mikil húð­flúr hafa einnig verið áber­andi á tísk­u­pall­inum hjá Gaultier í gegnum árin.

Rauður vara­litur er í miklu upp­á­haldi hjá Gaultier en í gegnum tíð­ina hafa fyr­ir­sætur hans gjarnan verið með eldrauðan vara­lit. My nd / EPA

Karlar í pilsum

Gaultier hefur í gegnum tíð­ina hunsað kynj­aðar staðalí­myndir og farið ýmsar óhefð­bundnar leiðir hvað þetta varðar. Hann hefur til dæmis reglu­lega hannað pils fyrir karl­menn sem hefur oft vakið athygli.

Kjólar, pils og mussur fyrir karla er eitt af því sem Gaultier hefur vakið athygli fyrir. Mynd / EPA

Keilulaga brjóst

Ein þekktasta hönnun Gaultier eru und­ir­föt með keilu­laga skálum á brjósta­höldum. Madonna klædd­ist korsi­letti með keilu­laga skálum úr smiðju Gaultier á Blond Ambition-tón­leika­ferða­lagi sínu 1990 og gerði þetta snið þá frægt. Þessi keilu­laga brjósta­höld eru í dag ein­kenn­andi fyrir Gaultier og sams konar snið hefur sést reglu­lega á sýn­ingum hans síðan á tíunda ára­tugnum.

Hér má sjá flíkur úr smiðju Gaultier sem Madonna hefur klæðst, meðal ann­ars kor­sel­ettið sem hún klædd­ist á Blond Ambition-tón­leika­ferða­lag­inu. Mynd / EPA

Undirföt í aðalhlutverki

Flíkur sem minna á und­ir­föt eru eitt af ein­kenn­is­merkjum Gaultier. Silki, blúndur og kor­sel­ett er dæmi um það sem hefur ein­kennt hönnun hans síðan fer­ill hans fór almenni­lega á flug.

Frá tísku­vik­unni í París 2009. Mynd / EPA

Ilmvötnin

Árið 1993 setti Jean Paul Gaultier sitt fyrsta ilm­vatn á markað. Tveimur árum síðar kom út rakspíri sem naut mik­illa vin­sælda eins og ilm­vatnið. Síðan þá hafa ýmsar ilm­út­gáfur komið út og vin­sæld­irnar verið upp og ofan en ilm­vatns­flösk­urnar eru löngu orðnar klass­ískar.

Flestir ættu að kann­ast við ilm­vatns­flösk­urnar frá Jean Paul Gaultier.

Bláar þverrendur

Gaultier fékk snemma inn­blástur frá frönskum sjóliða­bún­ingum þar sem bláar þver­rendur leika stórt hlut­verk. Í dag eru peysur og aðrar flíkur með bláum þver­röndum á hvítum grunni hálf­gert ein­kenn­is­merki Gaultier. Gaultier klæð­ist gjarnan sjálfur þver­rönd­óttum bolum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina