Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kristín aðstoðar pör í paravanda – „Aldrei gert neitt jafnskemmtilegt“

Kristín Tóm­as­dóttir, verð­andi fjöl­skyldu­með­ferð­ar­fræð­ingur, er að vinna að hand­bók fyrir hjón sem byggir á reynslu raun­veru­legra hjóna og fræði­legri nálgun. Samhliða bóka­skrifum aðstoðar hún pör í vanda.

Kristín seg­ist hafa mik­inn áhuga á öllu því er við kemur ást­inni. Eftir að hafa stundað nám í stjórnun og stefnu­mótun ákvað hún að fara í nám sem hún hefur raun­veru­legan áhuga á. „Af und­ar­legum ástæðum lærði ég svo stjórnun og stefnu­mótun í opin­berri stjórn­sýslu og útskrif­að­ist sem stjórn­sýslu­fræð­ingur þrátt fyrir að áhugi minn væri alfarið helg­aður parsam­böndum, skiln­uðum og öllu því er við kemur ást­inni. Ég horfð­ist því í augu við sann­leik­ann fyrir tveimur árum síðan, sett­ist á skóla­bekk á ný og lærði fjöl­skyldu­með­ferð þaðan sem ég útskrif­ast í vor. Samhliða hef ég verið svo heppin að fá að aðstoða nokkur pör í sínum para­vanda og ég hef aldrei gert neitt jafn­skemmti­legt,“ segir Kristín sem stefnir svo á dokt­ors­nám í fram­hald­inu.

Paravandi getur reynst samfélaginu dýr

Þegar Kristín er spurð út í hvort pör séu almennt dug­leg að leita sér hjálpar þegar vanda­mál koma upp í sam­band­inu segir hún: „Já, og nei. Já, að því leyti að pör leita sér aðstoðar og það er orðið nokkuð við­ur­kennt og væn­legt til árang­urs. Aftur á móti er það dýrt að leita sér hjálpar við para­vanda og því ekki allir sem hafa tök á því þrátt fyrir að vilj­inn sé fyrir hendi.“

Kristín segir að þess vegna væri ósk­andi að fjöl­skyldu­með­ferð yrði nið­ur­greidd af hinu opin­bera. „Ég skrif­aði einmitt meist­ara­rit­gerð í stjórn­sýslu­fræðum um hvað það væri hag­stætt fyrir bæði rík­is­kass­ann og fjöl­skyldu­bók­hald lands­manna ef fjöl­skyldu­með­ferð yrði nið­ur­greidd af hinu opin­bera.

„…það væri best ef fólk myndi fá fyr­ir­byggj­andi hjálp við að koma í veg fyrir að parsam­bandið þró­ist í nei­kvæða átt.“

Para­vandi er nefni­lega reglu­lega dýr sam­fé­lag­inu og brýst út á ótelj­andi vegu. Það sem við þó vitum er að fólk er að leita sér hjálpar þegar vand­inn er orð­inn meiri en hann þyrfti mögu­lega að verða. Þetta er eins og með svo ótrú­lega margt, það væri best ef fólk myndi fá fyr­ir­byggj­andi hjálp við að koma í veg fyrir að parsam­bandið þró­ist í nei­kvæða átt. Þar eigum við þó enn þá langt í land.“

Misskilningur oft sökudólgurinn

Kristín segir þau vanda­mál sem geta komið upp í para­sam­böndum vera eins ólík og þau eru mörg.

„Öll parsam­bönd eru ólík og þó svo að vand­inn geti verið keim­líkur þá er það mis­jafnt hvaða lausnir henta hverju og einu pari. Það sem ég get þó sagt er að margir eiga í vanda sem rekja má til mis­skiln­ings. Mis­skiln­ings, sem svo aftur má rekja til þess að fólk er ekki að tala nægi­lega mikið saman. Algengur mis­skiln­ingur er til dæmis þegar báðir aðilar hafa ákveðnar hug­myndir um hver á að gera hvað en gleyma að ræða þessar hug­myndir. Þegar fram­kvæmdin verður svo á annan veg en þau höfðu gert sér í hug­ar­lund getur allt soðið upp úr. Vegna þessa snýst para­með­ferð oft um að hjálpa fólki að tala saman, búa til nýja samn­inga sín á milli og setja óyrt mál í orð,“ útskýrir Kristín.

„Það er til margt fólk sem býr saman, deilir fjár­hag, eign­ast saman börn, sefur í sama rúmi og stundar kyn­líf en gleymir vin­átt­unni.“

Aðspurð hver gald­ur­inn að góðu para­sam­bandi sé svarar Kristín: „Þetta er stór spurn­ing og fer svarið alveg eftir því hver á í hlut. Góður galdur fyrir eitt par getur reynst öðru pari algjör pest. Aftur á móti hafa rann­sóknir sýnt að ákveðnar breytur eru væn­legri en aðrar í parsam­böndum. Þar má til dæmis nefna vin­áttu, traust og að njóta sam­veru hvort ann­ars. Við myndum kannski ætla að þetta væri „common sense“ en svo er alls ekki. Það er til margt fólk sem býr saman, deilir fjár­hag, eign­ast saman börn, sefur í sama rúmi og stundar kyn­líf en gleymir vin­átt­unni. Bæði sorg­leg og skrítin stað­reynd, en hún segir okkur að það að rækta vin­átt­una getur aukið veru­lega lík­urnar á góðu parsam­bandi til fram­tíðar.“

Kristín bentir áhuga­sömum á Facebook-síðu sína Hjóna­bands­sæla. „Svo tek ég við tímapönt­unum í para­með­ferð á net­fangið [email protected].“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina