Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Listrænu hæfileikarnir koma frá fjölskyldunni á Íslandi

Listrænu hæfileikarnir koma frá fjölskyldunni á Íslandi
Sigríður Dyekjær

Það vakti athygli á dög­unum að hin hálf­ís­lenska Sigrid Dyekjær hefði hlotið Ósk­arsverð­launa­til­nefn­ingu fyrir heim­ilda­mynd­ina The Cave og ekki síður að fáir fjöl­miðlar virt­ust kveikja á því á að þar væri Íslend­ingur á ferð. Mannlíf sló á þráð­inn til Sigridar og fékk að for­vitn­ast aðeins um hana, verð­launa­mynd­ina og far­sælan feril sem spannar 20 ár.

„Stolt. Rosalega stolt. Og auð­vitað glöð.“ Þannig lýsir Sigríður Dyekjær, eða Sigrid eins og hún kýs að kalla sig, því í fáeinum orðum hvernig það hafi verið að vera til­nefnd til Óskar­verð­launa fyrr í mán­uð­inum fyrir heim­ilda­mynd­ina The Cave sem hún fram­leiddi ásamt Kirstine Barfod. Sigrid, sem er hálf­ís­lensk og hálf­dönsk, er búsett og starfar í Kaup­manna­höfn og hefur fram­leitt 20 heim­ilda­myndir og þrjár kvik­myndir á 20 ára ferli. Hún er vel þekkt innan kvik­mynda­brans­ans bæði hér heima og á alþjóða­vísu en kannski minna þekkt meðal íslensks almenn­ings eins og sýndi sig þegar til­nefn­ingin til Ósk­ars­ins lá fyrir og fáir virt­ust átta sig á því að þar færi kona af íslenskum ættum. Það var ekki fyrr en kvik­mynda­gerð­ar­konan Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir vakti athygli á því á sam­fé­lags­miðlum sem íslenskir fjöl­miðlar tóku við sér og fóru að fjalla um málið, þegar hátíðin var yfir­staðin. Sjálf virð­ist Sigrid taka því með stakri ró þótt hún hafi svo­lítið gleymst í umræð­unni í tengslum við Óskarinn. Hún segir mestu skipta sú athygli sem myndin fékk í kjöl­far til­nefn­ing­ar­innar því umfjöll­un­ar­efnið, hið bág­borna ástand í Sýrlandi, eigi brýnt erindi til almenn­ings.

Stolt af upprunanum og íslenskum listamönnum

Það brennur greini­lega á Sigridi að ræða mynd­ina og mál­efnið, en áður en við gerum það, bið ég hana að segja mér svo­lítið frá sjálfri sér. Með öðrum orðum, hver er Sigrid Dyekjær? „Hver er ég?“ end­ur­tekur hún og virð­ist hafa gaman að spurn­ing­unni. „Í stuttu máli er ég fram­leið­andi til 20 ára, eig­in­kona, móðir tveggja stúlkna og stjúp­móðir drengs. Ætli megi ekki líka segja að ég sé ákveðin, dug­leg og þrautseig, stundum kannski aðeins of stolt og þrjósk. Mér finnst gaman að hlæja og skemmta mér og bara njóta lífs­ins. Sumir myndu kannski segja að ég sé týpískur Íslend­ingur og sjálf segi ég alltaf fólki að ég sé hálf­ís­lensk, en pabbi var sem sagt íslenskur. Hann lést þegar ég var 26 ára. Bæði hann og amma mín, sem ég heiti eftir, sungu og spil­uðu á píanó og frændi minn var mál­ari þannig að list­rænu hæfi­leik­arnir koma alfarið frá fjöl­skyld­unni minni á Íslandi,“ segir hún stolt og bætir við að hún finni fyrir sterkri teng­ingu við Ísland og íslenska lista­menn og leggi mikið upp úr því að vinna með Íslend­ingum að gerð þeirra mynda sem hún kemur nálægt.

„Mér þætti frá­bært ef Hildur semdi tón­list­ina við ein­hverja af heim­ilda­mynd­unum sem ég fram­leiði. Það væri nátt­úr­lega algjör draumur.“

„Ég vann til dæmis oft með Jóhanni Jóhanns­syni,“ nefnir hún í því sam­hengi. „Hann samdi tón­list­ina við nokkrar mynd­anna minna og var ein­stak­lega hæfi­leik­a­ríkur lista­maður og bara góður vinur. Það stóð einmit til að hann semdi tón­list­ina við The Cave, en þær fyr­ir­ætl­anir breytt­ust, því miður,“ segir hún alvar­leg og vísar þar í frá­fall Jóhanns árið 2018. „Við reyndum svo að fá Björk til að semja tón­list­ina við loka­at­riðin í mynd­inni, en það gekk því miður ekki eftir,“ segir hún og það er auð­heyrt á tali hennar að hún fylgist vel með því sem er að ger­ast íslenskri list, sér í lagi í tón­list og kvik­mynda­gerð. Enda seg­ist hún sjálf þekkja íslensku kvik­mynda­sen­una vel og heldur upp á marga íslenska leik­stjóra, sér­stak­lega Dag Kára. „Svo elska ég íslensku tón­list­ar­sen­una. Þess vegna er svo gaman að sjá hvað mörgum íslenskum tón­skáldum gengur vel um þessar mundir. Sjáðu bara Hildi Guðna­dóttur. Hún er á ótrú­legu flugi og á skilið alla þá við­ur­kenn­ingu sem hún hefur fengið fyrir störf sín. Fyrir utan það er sigur hennar gríð­ar­lega mik­il­vægur þar sem það er löngu orðið tíma­bært að konur standi ekki skugga karla í kvik­mynda­heim­inum, að hlutur þeirra verði stærri.“

Búin að raka til sín verðlaunum

Talið berst þá aftur að vel­gengni Sigridar sjálfrar og myndar hennar, The Cave, sem var ekki aðeins til­nefnd til Ósk­arsverð­launa heldur hefur unnið til fjölda alþjóð­legra verð­launa, þar á meðal fékk hún People’s Choice-verð­launin í flokki heim­ilda­mynda á alþjóð­legu kvik­mynda­há­tíð­inni í Toronto þar sem hún var frum­sýnd í fyrra. Sigrid seg­ist vera hrærð yfir árangrinum og yfir því hvað áhorf­endur, sér­stak­lega þeir ungu, hafi tekið henni vel, en til marks um það hafi dóm­nefnd skipuð ung­mennum á aldr­inum 13 til 19 ára valið hana bestu mynd­ina á Youth Award-hátíð­inni. Nokkuð sem hafi komið skemmti­lega á óvart þar sem myndin fjalli um kven­kyns­lækni sem heldur uppi bráða­birgða­spít­ala í helli í Sýrlandi á meðan stríð geisar og því sé hún nokkuð erfið áhorfs. „Við vissum þó alltaf að við værum með góða mynd í hönd­unum,“ tekur hún fram, „enda lögðum við mikla vinnu í hana. Það er auð­vitað eng­inn hægð­ar­leikur að gera mynd á stríðs­hrjáðu svæði, eins og þú getur ímyndað þér og bless­un­ar­lega nutum við lið­sinnis leik­stjór­ans Feras Fayyad, sem er sjálfur sýr­lenskur flótta­maður, búsettur í Kaup­manna­höfn. Hann hjálp­aði okkur mikið.“

Sigrid hlaut sína fyrstu til­nefn­ingu til Ósk­arsverð­launa fyrir heim­ilda­mynd­ina The Cave.

Spurð hvað hafi eig­in­lega orðið til þess að hún tók sér svona erfitt verk fyrir hendur er Sigrid fljót til svars. „Mér fannst bara mjög mik­il­vægt að sýna áhorf­endum stöð­una Í Sýrlandi eins og hún er núna og líka sýna að þarna skuli vera trúuð kona, múslimi, dr. Amani, sem er fyrsta konan sem stýrir spít­ala í Sýrlandi. Fyrir utan það er hún að berj­ast fyrir rétt­indum kvenna í mjög karllægu sam­fé­lagi í Mið-Aust­ur­löndum og þorir að ræða það í mynd­inni. Ég held að þetta séu helstu ástæður þess að myndin hefur fengið svona sterk við­brögð áhorf­enda og gagn­rýnenda og átt þátt í góðu gengi hennar.“

Vill vinna með Hildi

Sigrid segir að það sé þó langt í frá þannig að hún taki að sér verk­efni með það fyrir augum að vinna til ein­hverra verð­launa. Við­fangs­efnið verði fyrst og fremst að höfða til hennar og þegar við ræðum þau verk­efni sem hún er nú með í vinnslu er ljóst að áhuga­sviðið er breitt, svo ekki sé meira sagt; Heim­ilda­mynda­röð um Scandinavian Star, ferj­una sem sigldi milli Noregs og Dan­merkur og kveikt var í fyrir 30 árum með þeim afleið­ingum að þrjá­tíu manns létu lífið, en Sigrid segir þetta vera stærstu heim­ilda­mynda­röð sem hefur fram­leidd á Norð­ur­löndum, fram­leiðslu­kostn­að­ur­inn sé fjórar millj­ónir evra. Svo sé mögu­lega í far­vatn­inu fram­leiðsla á Sen­sel­ess, nýrri mynd eftir heim­ilda­mynda­gerð­ar­mann­inn Guy Davidi í sam­starfi við Saga Film. Sem sýni hversu tengd hún er kvik­mynda­brans­anum á Íslandi. „Um leið og ég rekst á íslenskan fram­leið­anda eða fram­leiðslu­fyr­ir­tæki set ég mig í sam­band við við­kom­andi,“ segir hún og hlær og bætir við að það væri óska­staða að fá Ólaf Arnalds til að gera tón­list­ina við Sen­sel­ess, ef af verði. Eins langi hana mikið til að vinna með Hildi. „Hildur var einn af hljóð­færa­leik­ur­unum í flestum myndum mínum sem Jóhann samdi tón­list­ina við, þannig að við þekkt­umst í gegnum hann og höfum unnið saman áður. Mér þætti frá­bært ef hún semdi tón­list­ina við ein­hverja af heim­ilda­mynd­unum sem ég fram­leiði. Það væri nátt­úr­lega algjör draumur.“

Hún segir að annar draumur sé að veita lands­mönnum færi á að sjá heim­ilda­mynd­ina The Cave í íslenskum kvik­mynda­húsum. „Myndin kemur nú þegar til með að verða sýnd í 172 löndum víðs­vegar um heim og von­andi í íslenskum bíó­húsum líka. Mér finnst hún klár­lega eiga það skilið. Þannig að það er bara von­andi að ein­hver íslenskur dreif­ing­ar­að­ili setji sig í sam­band við mig,“ segir hún kímin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina