Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Safna reynslusögum um fitufordóma innan heilbrigðiskerfisins – Vilja opna umræðu en ekki stríð

Í til­efni af degi lík­ams­virð­ingar þann 13. mars fóru Samtök um lík­ams­virð­ingu af stað með verk­efni þar gerð verður til­raun til að opna umræð­una um fitu­for­dóma innan heil­brigð­is­kerf­is­ins. Samtökin safna nú reynslu­sögum fólks af fitu­for­dómum sem það hefur orðið fyrir innan íslenska heil­brigð­is­kerf­is­ins.

„Maður er alltaf að heyra svona sögur og við hjá Samtökum um lík­ams­virð­ingu höfum gengið með þessa hug­mynd í smá­tíma,“ segir Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir, for­maður Samtaka um lík­ams­virð­ingu, spurð út í hvernig hug­myndin að verk­efn­inu kvikn­aði.

Hún segir til­gang verk­efn­is­ins vera að varpa ljósi á skað­ann sem hlýst af fitu­for­dómum innan heil­brigð­is­kerf­is­ins. „Mín upp­lifun er sú að almenn­ingur veit ekk­ert endi­lega að þetta vanda­mál sé til staðar. Við viljum sýna að þetta er kerf­is­bund­inn vandi.“

Tara segir að nú þegar hafi sam­tök­unum borist á milli 20-30 reynslu­sögur. Hún segir að söfn­unin muni standa yfir í nokkra mán­uði þannig að fólk hafi nægan tíma til að setj­ast niður og skrifa sína reynslu­sögu. „Við höfum fullan skiln­ing á því að fólk þarf að fá góðan tíma til að setja sína reynslu niður á blað,“ útskýrir Tara.

„…allt frá óvið­eig­andi og smán­andi athuga­semdum frá læknum upp í mál sem hafa haft mjög alvar­legar afleið­ingar.“

Hún segir reynslu­sög­urnar sem sam­tök­unum hafa borist á þessum fimm dögum frá því að verk­efnið hófst vera fjöl­breyttar. „Þær eru á öllum skal­anum. Þetta er allt frá óvið­eig­andi og smán­andi athuga­semdum frá læknum upp í mál sem hafa haft mjög alvar­legar afleið­ingar,“ útskýrir Tara.

Enginn nafngreindur

Aðspurð hvað verði svo gert við reynslu­sög­urnar sem sam­tök­unum ber­ast segir Tara að á ein­hverjum tíma­punkti verði þær birtar opin­ber­lega. „Sögurnar verða birtar ásamt und­ir­skrifta­lista, eins og gert var með #MeToo. Við munum afhenta heil­brigð­is­ráð­herra og land­lækni sög­urnar ásamt til­lögum að úrbótum.“

Tara Margrét og Samtök um lík­ams­virð­ing ætla að afhenta heil­brigð­is­ráð­herra og land­lækni reynslu­sög­urnar ásamt til­lögum að úrbótum. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Tara tekur fram að til­gang­ur­inn sé alls ekki að fara í stríð við heil­brigð­is­starfs­fólk. „Það er mik­il­vægt að taka það fram. Þetta fólk vinnur af miklum heil­indum og það stendur sig eins og hetjur, sér­stak­lega núna,“ segir Tara. Hún segir að heil­brigð­is­starfs­fólk verði ekki nafn­greint í sög­unum. „Það verður eng­inn nafn­greindur. Við viljum ekki fara að úthrópa ein­staka lækna og hjúkr­un­ar­fræð­inga heldur viljum við sýna að vand­inn er kerf­is­bund­inn. Hann er rót­gró­inn og þess vegna hvetjum við til umræðu.“ Tara vill þá taka fram að for­dómar fólks innan heil­brigð­is­geirans séu oftar en ekki ómeð­vit­aðir.

Fordómarnir fæla fólk frá

Tara bendir á að ef fólk verði fyrir fitu­for­dómum innan heil­brigð­is­kerf­is­ins einu sinni þá hiki það gjarnan við að leita aftur til læknis og það geti þá haft alvar­legar afleið­ingar. „Það er partur af vanda­mál­inu. Ef við ætlum að tala um offitu sem heilsu­fars­legan vanda þurfum við líka að við­ur­kenna að for­dóm­arnir sjálfir hafi heilsu­fars­legar afleið­ingar.“

Spurð út í hvort hún sjálf hafi orðið fyrir for­dómum innan heil­brigð­is­kerf­is­ins svarar Tara ját­andi. Hún gefur Mannlífi góð­fús­legt leyfi til að birta sögu sína:

Ég fór fyrir nokkrum árum til heim­il­is­læknis vegna mik­illa verkja í kviðnum. Ég fékk eitt til tvö verkja­köst á dag sem voru svo svæsin að þau tóku frá mér allan mátt og ég var eig­in­lega ekki vinnu­fær á end­anum vegna verkj­anna og kvíða þar sem ég sá ekki neitt mynstur eða hvað það var sem olli verkj­unum. Þetta voru verkir sem leiddu út í bakið og lýstu sér helst sem gall­steina­köst.

Ég reyndi í eitt skiptið að fara á bráða­mót­töku þar sem gall­blaðran var ómuð en ekk­ert kom út úr því. Þannig að mér var vísað á heim­il­is­lækni. Ég fór á mína heilsu­gæslu­stöð og þar tók á móti mér afleys­ing­ar­læknir fyrir minn fasta heim­il­is­lækni. Ég sett­ist á stól fyrir framan hana, lýsti vand­anum og örvænt­ingu minni. Hún skann­aði lík­ama minn upp og niður með aug­unum og sagði mér síðan að ég þyrfti að draga úr óholl­ustu í matar­æði. Þyrfti að hætta að borða brauð, drekka sykraða gos­drykki, bak­arís­bakk­elsi og önnur sæt­indi.

Hún spurði mig aldrei hvernig matar­æði mitt væri til að byrja með, hún bara dró álykt­anir út frá holda­fari mínu. Hún fram­kvæmdi aldrei á mér lík­am­lega skoðun eða spurði mig nánar út í heilsu­far mitt eða lífs­venjur.

Þrátt fyrir að matar­æði mitt væri alls ekki á þann hátt sem hún gerði ráð fyrir upp­lifði ég svo mikla nið­ur­læg­ingu og skeyt­ing­ar­leysi að ég fór buguð út án þess að hreyfa við mót­bárum.

Þessi verkja­köst hurfu á end­anum. Einu til tveimur árum síðar komu þau hins vegar aftur. Ég var lengi að telja í mig kjark að fara aftur til heim­il­is­læknis en þarna var ég komin á aðra heilsu­gæslu­stöð þannig að ég ákvað að láta slag standa.

Sá læknir taldi mig vera að lýsa ein­kennum svæs­innar maga­bólgu sem orsak­að­ist af miklu álagi og streitu. Hann bauðst til að sjúkra­skrifa mig á staðnum og útbúa til­vísun fyrir mig á Reykja­lund. Ég afþakk­aði það en gat loks­ins farið að vinna með vand­ann, streitu­stjórnun o.fl. Það er langt síðan ég upp­lifði þessa verki þó að þeir poppi upp af og til.

Leiðir til að senda inn sögu

Tara bendir áhuga­sömum á nokkrar leiðir til að senda sam­tök­unum reynslu­sögu:

1. Hópurinn á Facebook undir heit­inu „Fitu­for­dómar innan heil­brigð­is­kerf­is­ins-reynslu­sögur“: Sækja má um inn­göngu í hóp­inn og setja sögu sína þar inn undir nafni. Að öðrum kosti má senda hana til stjórn­enda (administrators) sem setja hana nafn­laust í hóp­inn

2. Facebook-síða Samtaka um lík­ams­virð­ingu: Senda má einka­skila­boð til okkar í gegnum hana.

3. Tölvu­póstur Samtaka um lík­ams­virð­ingu: [email protected]

4. Google Docs-skjal: shorturl.at/dBR24

5. Samtök um lík­ams­virð­ingu: Pósthólf 8782

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við