Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Sjónvarpsguðirnir voru með okkur í liði“

Sjón­varps­þætt­irnir Mannlíf, sam­starfs­verk­efni man.is, Mannlífs, tíma­rita Birtíngs og Sagafilm, eru komnir inn á Sjónvarp Símans Premium og fara í línu­lega dag­skrá 23. mars. Stjórn­andi þátt­anna er Eva Ruza Miljevic sem segir vinnslu þátt­anna eitt það skemmti­leg­asta sem hún hefur gert og lofar áhorf­endum góðri skemmtun.

„Sjónvarpsguðirnir voru með okkur í liði“
Eva Ruza Miljevic. Mynd / Unnur Magna

„Und­ir­bún­ingur fyrir tökur þátt­anna byrj­aði síð­asta haust,“ segir Eva spurð hvað þætt­irnir hafi verið lengi í vinnslu. „Þá fórum við að leggja drög að útliti þeirra og skrá niður við­mæl­endur og svona. Það var mjög skemmti­legt. Ég hef aldrei gert sjón­varps­þætti þannig að ég var eins og álfur út úr hól á fyrstu fund­unum, en ég vann með svo ótrú­lega góðu fólki hjá Sagafilm og Birtíngi þannig að ég var í mjög góðum höndum.“

Þekkja allir einhvern sniðugan

Tökur þátt­anna byrj­uðu í nóv­em­ber á síð­asta ári og alls hafa verið gerðir átta þættir, sem Eva segir að séu að sjálf­sögðu bestu sjón­varps­þættir í gjör­vallri sjón­varps­sög­unni. „Svona ef ég tek hóg­værð­ina á þetta og legg á það kalt mat,“ segir hún og skelli­hlær. „Þætt­irnir heita Mannlíf og eru bara um mann­lífið á Íslandi,“ bætir hún við spurð hvað sé svona skemmti­legt við þætt­ina.

„Við förum um víðan völl og í hverjum þætti er eitt aðal­við­tal, svona for­síðu­við­tal innan gæsalappa. Þá tölum við við fólk sem er ótrú­lega áhuga­vert og er að gera eitt­hvað skemmti­legt, breyta lífi sínu á ein­hvern hátt. Einn við­mæl­and­inn ákvað til dæmis allt í einu að hann vildi verða þyrlu­flug­maður, skráði sig sam­dæg­urs í skóla úti í Svíþjóð og var flog­inn út að læra þyrlu­flug nokkrum dögum síðar. Hann hafði ein­hvern tím­ann verið að vinna kvik­mynda­verk­efni með Kim Kar­dashian og Kanye West þar sem hann fór í þyrlu í fyrsta sinn og heill­að­ist svona gjör­sam­lega.“

Hvernig funduð þið við­mæl­end­urna í þætt­ina? „Við bara not­uðum heil­ann,“ segir Eva og skellir aftur upp úr. „Við köst­uðum hug­myndum á milli okkar og ég spurði fjöl­skyldu mína og vini hvort þeim dytti ein­hver skemmti­legur í hug. Það þekkja allir ein­hvern sniðugan sem hefur gert eitt­hvað spenn­andi. Ég hef líka rosa­lega frjótt ímynd­un­ar­afl og frjóan huga þannig að ég var með minn­is­blað í sím­anum mínum sem var orðið stút­fullt af alls konar við­mæl­endum og hug­myndum til að þetta gæti orðið sem fjöl­breytt­ast. Svo var ég auð­vitað undir stjórn fram­leið­and­ans Þórs Freys­sonar hjá Sagafilm sem er nátt­úr­lega bara goð­sögn í brans­anum og snill­ingur og veit nákvæm­lega hvað virkar í sjón­varpi og hvað virkar ekki. Ég hneigi mig í auð­mýkt fyrir honum.“

Páskalambið varð að kolamola

Einhvers staðar hefur komið fram að meðal efnis í þátt­unum sé að kenna þér elda­mennsku, sem sé nán­ast von­laust verk, er eitt­hvað til í því? „Sko, ég elska að elda!“ segir Eva. „Skáp­ur­inn minn er fullur af mat­reiðslu­bókum og ég er alltaf að halda mat­ar­boð og skrifa niður upp­skriftir. Málið er bara að ég legg alltaf af stað eins og ég sé Jamie Oliver og viti nákvæm­lega hvað ég er að gera. En því miður hefur það sýnt sig í gegnum tíð­ina að ég er ekki Jamie Oliver og ég á margar skraut­legar sögur af mér og mislukk­aðri elda­mennsku. Ein sú nýjasta er síðan á pásk­unum í fyrra, sem var í fyrsta sinn sem mamma og pabbi ætl­uðu ekki að elda páskamat­inn ofan í fjöl­skyld­una og treystu mér fyrir því, af ein­hverjum óskilj­an­legum ástæðum.

„Þannig að klukkan hálf­sjö á páska­dags­kvöld var ég í Krónunni að kaupa kóti­lettur.“

Ég hélt að þetta væri nú ekki mikið mál, henti lamba­lær­inu á grillið og hafði það þar á fullum hita í fjóra klukku­tíma. Það er skemmst frá því að segja að þegar ég opn­aði grillið og allir á leið­inni til mín í páska­steik­ina var þar bara sam­an­skropp­inn kola­moli. Þannig að klukkan hálf­sjö á páska­dags­kvöld var ég í Krónunni að kaupa kóti­lettur. Ég held að ég sé ekk­ert ein um þetta og í þátt­unum erum við með Valtý Svan Reyn­is­son, yfir­kokk á Mat­ar­kjall­ar­anum, sem fékk það stóra verk­efni að kenna mér und­ir­stöðu­at­riðin í eldun svona grund­vall­ar­rétta í íslensku eld­húsi; hvernig á til dæmis að gera ýsu í raspi stökka sem mér hefur aldrei tek­ist, hún er alltaf eins og leðja, sama hvað ég geri. Valtýr kennir okkur líka að gera grjóna­graut og pönnu­kökur og fleira sem er ótrú­lega ein­falt og alla langar að gera vel, en heppn­ast kannski ekki alltaf, og það ger­ist sko alveg hjá fleirum en mér! Daginn eftir tök­urnar ætl­aði ég aldeilis að slá í gegn og elda stökka ýsu í raspi heima hjá mér, en það tókst nú ekki alveg. Ég verð bara að bíða eftir að sjá þætt­ina, ég man ekk­ert hvernig á að gera þetta þannig að ég bíð spennt með glósu­bók­ina eftir að þætt­irnir komi út.“

Veðurofsinn tók sér pásu á upptökudag

Kom eitt­hvað óvænt fyrir við upp­tökur á þátt­unum, lentuð þið í ein­hverju klúðri? „Nei, þetta gekk allt saman ótrú­lega vel, enda vorum við mjög vel skipu­lögð,“ segir Eva og hljómar dálítið hissa. „Það var sér­stak­lega skemmti­legt að þegar við vorum að taka við­talið við þyrlu­flug­mann­inn í byrjun jan­úar, akkúrat þegar allar lægð­irnar voru að koma yfir landið, hafði verið stormur og rauð eða app­el­sínugul við­vörun alla daga, en einmitt dag­inn sem við hittum hann var heið­skírt og full­komið logn, eina dag­inn í jan­úar, held ég. Veðrið var svo gott að við end­uðum í þyrlu­flugi uppi á Esjunni þar sem við­talið var tekið. Daginn eftir var svo komin app­el­sínugul við­vörun og ekk­ert flug­veður.“

Mynd / Unnur Magna

Þannig að veð­urguð­irnir hafa staðið með ykkur í þessu? „Já, og bara flestir sjón­varps­guðir og öll mátt­ar­völd almennt voru með okkur í liði,“ segir Eva og skelli­hlær.

Akkúrat í miðjum þægindarammanum

Þurft­irðu ekk­ert að ganga nærri sjálfri þér og stíga út fyrir þæg­ind­ara­mmann svona í fyrsta skipti í sjón­varpi? „Ég á nú mjög auð­velt með að vera fyrir framan mynda­vélar,“ segir Eva og brosir sínu blíð­asta. „Þannig að það vafð­ist ekk­ert fyrir mér, en þetta tók samt rosa­lega orku, ég var farin að finna það undir lokin að þetta hafði gengið mikið á orku­birgð­irnar en ég fann eig­in­lega ekk­ert fyrir því á meðan við vorum að taka upp því þetta var svo ógeðs­lega skemmti­legt. Ég renndi auð­vitað blint í sjó­inn með þetta þegar við vorum að byrja en ég var í raun­inni akkúrat í miðjum þæg­ind­ara­mm­anum mínum allan tím­ann, mið­punktur athygl­innar með mynda­vél­arnar á mér.“

Ertu samt ekki með nokkur fiðr­ildi í mag­anum á meðan þú ert að bíða eftir við­tök­unum? „Jú, ég er með mjög mikið af spennu­fiðr­ildum í mag­anum,“ segir Eva. „Ég hef svo sem engar áhyggjur af því að fólk muni ekki skemmta sér vel við að horfa á þætt­ina, því auk aðal­við­tal­anna er fullt af minni innslögum sem munu grípa athygl­ina hjá áhorf­endum. Ég held að þetta séu alveg gull­trygg Eddu­verð­laun, sko,“ bætir Eva við og hlær enn einu sinni sínum dill­andi hlátri.

„Ég hef svo sem engar áhyggjur af því að fólk muni ekki skemmta sér vel við að horfa á þætt­ina…“

Eru fleiri ser­íur í und­ir­bún­ingi? „Ekki eins og er, en það eru allar dyr opnar,“ segir Eva. „Við komumst að því þegar við vorum að gera þætt­ina að það er af nógu að taka og við erum sko alls ekki búin. Ég á enn þá list­ann sem ég gerði í upp­hafi og aldrei að vita nema við eigum eftir að nota meira af honum. Það kemur bara allt í ljós. Ég er alla vega alveg viss um að fólk á eftir að fíla þessa þætti í botn, sem mér þykir mjög vænt um því þetta var drauma­verk­efnið mitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina