Kynfræðingurinn Sigga Dögg segir frá því á Twitter að Facebook hafi sett hana í þriggja daga bann. Ástæðan er ljósmynd sem fylgir vefsíðu sem Sigga vildi að vekja athygli á á Facebook-síðu sinni.
Vefsíðan sem um ræðir er vefur kynfræðslutímaritsins Sprectrum Journal. Á myndinni má sjá glitta í geirvörtu og í forgrunni er gervityppi en myndbirtingin brýtur í bága við skilmála Facebook samkvæmt skilaboðunum sem tóku á móti Siggu þegar hún opnaði Facebook.
„Það er glatað,“ segir Sigga Dögg í færslu sinni á Twitter og lét skjáskot af umræddri mynd fylgja.































Athugasemdir