Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Mikilvægt að fara varlega af stað eftir langt hlé

Einka­þjálf­ar­inn Björn Þór Sig­ur­björns­son segir margt fólk bíða í ofvæni eftir að kom­ast aftur inn í lík­ams­rækt­ar­stöðvar sem verða opn­aðar á mánu­dag­inn. Hann mælir með að fólk láti skyn­sem­ina ráða för.

Margt fólk mun taka gleði sína á ný á mánu­dag­inn þegar lík­ams­rækt­ar­stöðvar lands­ins verða opn­aðar aftur en þeim var lokað fyrir tveimur mán­uðum af sótt­varnar­á­stæðum. Einka­þjálf­ar­inn Björn Þór Sig­ur­björns­son minnir fólk á að fara rólega af stað í rækt­inni hafi það tekið sér pásu frá hreyf­ingu í sam­komu­bann­inu.

„Fyrsta skrefið er bara að mæta og byrja rólega þar sem frá var horfið. Ég mæli með að gera t.d. færri end­ur­tekn­ingar og nota létt­ari lóð,“ segir Björn. Hann segir mik­il­vægt að hlusta á lík­amann og fara ekki of geyst af stað, ann­ars sé hætta á meiðslum.

Beðið með eftirvæntingu

Björn segir margt fólk bíða með eft­ir­vænt­ingu eftir að kom­ast aftur í rækt­ina. „Eft­ir­vænt­ingin er mikil, sér­stak­lega hjá rækt­ar­lið­inu. Ég er engin und­an­tekn­ing þar,“ segir Björn. „Þess vegna vil ég vara fólk við að vera óþol­in­mótt og fara of geyst af stað. Auðvitað eru margir búnir að vera að hreyfa sig utandyra í sam­komu­bann­inu eða inn­an­húss með æfinga­teygjum og eigin lík­ams­þyngd, í alls konar aðstæðum sem það myndi vana­lega ekki kjósa að æfa í og ég tek hatt minn ofan fyrir því fólki. Svo eru margir sem hafa ekk­ert náð að hreyfa sig síðan lík­ams­rækt­ar­stöðvum var lokað. Það er fólkið sem þarf sér­stak­lega að fara var­lega af stað aftur,“ útskýrir Björn.

„Það er bara mik­il­vægt að ofkeyra sig ekki. Það er þannig sem fólk meiðir sig.“

Hann segir vöðva­styrk­inn detta hratt niður þegar fólk tekur hlé frá æfingum en sé að sama skapi fljótur að koma til baka. „Það er bara mik­il­vægt að ofkeyra sig ekki. Það er þannig sem fólk meiðir sig. Ef átökin verða of mikil getur vöðva­nið­ur­brot sömu­leiðis orðið of mikið og það getur haft alvar­legar afleið­ingar í för með sér.“

„Allt eða ekkert“ viðhorfið stendur í vegi fyrir mörgum

Beðinn um góð ráð þá segir Björn að best sé að setja saman æfinga­á­ætlun áður en farið sé af stað í rækt­inni aftur. Þá sé nauð­syn­legt að láta skyn­sem­ina ráða ferð­inni. Svo er gott að setja sér ein­hver mark­mið sem hægt er að fók­usa á.

Hann segir „allt eða ekk­ert“ við­horfið ekki vera væn­legt til vinn­ings. „Ef við setjum okkur of háleit mark­mið þá verður far­veg­ur­inn stuttur og við gef­umst upp. Þetta á bæði við um matar­æði og æfingar. Það er alltaf skyn­sam­legra að gera litlar lífs­stíls­breyt­ingar í stað þess að fara í eitt­hvað stór­kost­legt átak.“

Óraun­hæft heilsu­á­tak er ávísun á að fólk gef­ist upp að sögn Björns. „Ef fólk ætlar t.d. að taka mjög langar æfingar á hverjum degi eða breyta algjör­lega um matar­æði á einu bretti, ef það fer fram úr sér með ein­hverjum hætti, þá er lík­legt að fólk gef­ist alveg upp. Þess vegna er mik­il­vægt að útbúa raun­hæft plan og reyna að fylgja því eftir bestu getu. Ef maður missir svo af æfingu þá þýðir ekki að fara í sjálfs­á­sökun, frekar að horfa fram á veg­inn og stefna að því að halda sig við áætlun sína.“

Hann bætir við: „Nú er bara að láta skyn­sem­ina ráða för og halda í gleð­ina. Þannig nær maður mark­miðum sínum.“

Spurður út í hvernig hann sjái fyrstu dag­ana fyrir sér eftir að lík­ams­rækt­ar­stöðvar opna aftur eftir langt hlé á Björn erfitt með að spá fyrir um það. „Þetta verður bara að ráð­ast en ég skynja að fólk er spennt að snúa til baka í rækt­ina. Það verður for­vitni­legt að sjá hvernig fer.“ Hann minnir á að áfram sér mik­il­vægt að gæta að smit­vörnum. „Nú er nauð­syn­legt að halda áfram að þvo sér reglu­lega um hend­urnar og nota hand­spritt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina