Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Sorglegt að börnin okkar velji þessa leið“

„Sorglegt að börnin okkar velji þessa leið“
Kristvin Guð­munds­son.|Mynd / Kristin Guð­munds­son|Mynd / Kristin Guð­munds­son|Mynd / Kristin Guð­munds­son

Kristvin Guð­munds­son ljós­mynd­ari und­ir­býr nú ljós­mynda­seríu, þar sem hann mun taka and­lits­myndir af þolendum og jafn­vel ger­endum ein­eltis. Sjálfur varð hann fyrir  miklu ein­elti á sinni grunn­skóla­göngu og er honum því mál­efnið hug­leikið. Með ljós­mynda­ser­í­unni von­ast hann til að mál­efnið snerti við öllum og veki athygli á hversu algengt ein­elti er og að það sé ekki bara í skóla­kerf­inu.

„Hug­myndin að verk­efn­inu varð til eftir að ég frétti af árás hóps ung­lings­drengja á einn dreng við strætó­stoppi­stöð í Kópavogi núna í febr­úar,“ segir Kristvin. „Þegar ég frétti af árásinni hugs­aði ég: Þetta ætlar aldrei að stoppa, þetta er orðið dag­legt brauð. Ég var mjög hneyksl­aður og reiður. Hvort sem þetta var ein­elti eða upp­gjör þá er ofbeldið orðið alvar­legra og grimmara en áður. Það er eitt­hvað að, kerfið okkar er ekki að virka eins og það er. Það er sorg­legt að börnin okkar velji þessa leið.“

Kristvin seg­ist sjálfur hafa verið fórn­ar­lamb ein­eltis alla grunn­skóla­göng­una og oft hafa hugsað hvernig og hvort hann gæti gert eitt­hvað í bar­átt­unni gegn ein­elti. „Á sínum tíma leit ég rosa­lega upp til Stefáns Karls, og geri enn, og velti fyrir mér hvernig ég gæti gert eitt­hvað í þessum málum og þannig fékk ég hug­mynd að mynda­seríu, því ljós­myndin lifir að eilífu.“

Mynd / Kristvin Guð­munds­son

Hann seg­ist vera með ákveðið tengsla­net sem hann geti nýtt sér og í fyrstu hafði hann hugsað sér að mynda ein­göngu fórn­ar­lömb ein­eltis. „Síðan hugs­aði ég hug­mynd­ina frekar og ákvað að taka saman bæði þekkt og óþekkt and­lit og breyta verk­efn­inu í: „Er ég fórn­ar­lamb ein­eltis?““

Kristvin segir þá sem hann hefur rætt hug­mynd­ina við taka vel í hana. „Þá er ég ekki að merkja ein­hvern sem fórn­ar­lamb ein­eltis, heldur að vekja fólk til umhugs­unar um hvort að við­kom­andi sé fórn­ar­lamb. Við erum að kasta spurn­ing­unni fram til áhorf­and­ans. Fyr­ir­sæt­urnar geta verið nágranni þinn, vinur þinn, frændi þinn. Einelti kemur öllum við og það er ótrú­leg­asta fólk sem hefur lent í ein­elti.“

Barinn og beittur andlegu ofbeldi

Eins og áður sagði varð Kristvin fyrir ein­elti alla hans skóla­göngu og segir hann marga ger­endur hafa tekið þátt í dag­legu ein­elti, sem ein­kennd­ist af bar­smíðum og and­legu ofbeldi. „Það var ekk­ert gert í því, ég var tek­inn inn til skóla­stjór­ans og spurður hvort ég hefði ekki bara beðið um þetta sjálfur. Meira að segja sumir kenn­ar­arnir tóku þátt í ein­elt­inu,“ segir Kristvin og bætir við að hann hafi þurft að fara í gamla skól­ann sinn fyrir stuttu og hann hafi skolfið eins og hrísla þegar hann kom þar inn, svo vel sé ein­eltið sem hann varð fyrir brennt inn í vit­und sína.

Þá kveðst hann hafa mætt fyrir nokkru í „reunion“ í grunn­skól­anum og segir hann flesta ekki hafa átt von á að hann myndi mæta. „Þarna voru allir gömlu bekkj­ar­fé­lag­arnir og allir ger­end­urnir og þeir komu flestir til mín og báðu mig afsök­unar á ein­elt­inu, þannig að ég fékk þarna rosa­lega lokun á reið­ina. En ein­eltið er mjög brennt í hug­ann og þetta mótar ein­stak­linga og fólk sem verður fyrir grófu ein­elti er lík­legra til að leita í neyslu eða slíkt.“

Dæturnar urðu allar fyrir einelti

Kristvin á þrjár dætur á aldr­inum 16–19 ára og segir að allar dætur hans hafi orðið fyrir ein­elti. Sú yngsta þeirra er ein­hverf. Hins vegar hafi verið tekið á því ein­elti betur en þegar hann varð sjálfur fyrir því og að hann hafi tekið á ein­elt­inu gegn dætr­unum. „Ég sá það til dæmis hjá yngstu dóttur minni, hún fær ekki að vera með og það stingur for­eldra­hjartað rosa­lega. Það eru allir skólar í dag með aðgerða­á­ætlun gegn ein­elti en það virð­ist samt lítið breyt­ast og ein­elti er að aukast frekar en hitt. Það er ekki langt síðan 11 ára drengur tók eigið líf vegna ein­eltis.“

Kristvin segir að með hlið­sjón af þessu öllu langi hann til að leggja eitt­hvað fram í umræð­unni gegn ein­elti. „Mig langar að skilja eftir fót­spor, þetta mál­efni er mér hug­leikið.“

Kristvin og norð­ur­ljósin.

Síðustu jól kynnt­ist Kristvin því hvernig er að leggja sitt af mörkum þegar honum bauðst að mynda fyrir Ljóns­hjarta, sem eru sam­tök til stuðn­ings yngra fólki (20-50 ára) sem misst hefur maka og börnum þeirra og segir hann að það verk­efni hafi sýnt sér að hann geti haft áhrif með sínu fram­lagi.

„Ég var beð­inn um sjá um jóla­mynda­töku félags­ins og ég sagði strax já. Mér þykir mjög vænt um þessi sam­tök. Þau eru að gera ótrú­lega hluti, eitt­hvað sem fólk áttar sig ekki á fyrr en það stendur sjálft í þessum sporum. Þessi mynda­taka lifir enn í hausnum á mér,“ segir Kristvin, sem mynd­aði börn og fjöl­skyldur þeirra. „Mynda­takan hjá Ljóns­hjarta opn­aði hug­ann hjá mér um að ég get breytt ein­hverju og var einnig hvat­inn að ljós­mynda­ser­í­unni sem mig langar að gera núna um ein­elti.“

Stofnaði vinsælan norðurljósahóp á Facebook

Kristvin segir að þegar hann hafi byrjað að taka ljós­myndir hafi hann fundið að áhug­inn lá þar, en það voru myndir hans af norð­ur­ljósum sem vöktu athygli á honum. „Ég og vinur minn, Friðrik Hreins­son, vorum að fara út til að mynda norð­ur­ljósin. Síðan komst ég í kynni við kanadískan ljós­mynd­ara, Todd Salad, sem gaf mér nokkra punkta um hvernig ætti að gera þetta. Og til að rétt­læta kaupin á öllu þessu dóti þá þurfti ég að fara „all-in“ og í skóla,“ segir Kristvin og hlær.

Hann ákvað því að læra ljós­myndun og varð New York Institute of Pho­tography fyrir val­inu. „Ég gat unnið námið í skól­anum og klárað allt saman á Netinu, það eru ljós­mynd­arar sem dæmdu verk­efnin mín og fók­us­inn er bara á ljós­myndun, ekk­ert annað. Ég átti orðið yfir 6000 myndir og var því fljótur að klára skól­ann.“

Mynd úr jóla­mynda­töku félags­ins Ljóns­hjarta. Mynd / Kristvin Guð­munds­son

Fyrir sex árum síðan stofn­aði hann hóp á Facebook um norð­ur­ljósa­myndir, Aurora Hunters Iceland. „Ég var óhress með að það væri alltaf verið að rukka fólk fyrir slíkar myndir og ferðir og ég gerði nokkra fúla með því að ljóstra upp um tækni og töku­staði. Þetta byrj­aði rólega, en í dag telur hóp­ur­inn yfir 14 þús­und manns.

„Þetta eru mik­il­væg sam­tök, sjálfs­víg eru einn fylgi­fiskur ein­eltis og ef ég á að vera alveg hrein­skil­inn….“

Ég hef þennan miðil og sé að fyrst að ég gat látið norð­ur­ljósa­grúbb­una stækka svona svaka­lega, þá hlýt ég að geta gert eitt­hvað með ein­eltis-ljós­mynda­ser­í­una,“ segir Kristvin, sem hefur leitað til Hug­arafls og Píeta sam­tak­anna um að þau verði með í fram­kvæmd verk­efn­is­ins. „Þetta eru mik­il­væg sam­tök, sjálfs­víg eru einn fylgi­fiskur ein­eltis og ef ég á að vera alveg hrein­skil­inn, þá hefur sú hugsun að taka eigið líf margoft flogið í gegnum haus­inn á mér. Ég missti vin minn einnig mjög ungur, en hann var 14 ára þegar hann tók eigið líf vegna ein­eltis. Einelti er við­bjóður.“

Sterk viðbrögð á samfélagsmiðlum

Kristvin seg­ist hafa fengið mikil við­brögð síðan hann sagði frá ljós­mynda­verk­efn­inu á Facebook-síðu sinni, og öll jákvæð. Margir vilji vera með og ætlar hann ekki að setja neinar tak­mark­anir á fjölda þeirra sem verða mynd­aðir. Mynd­irnar verða and­lits­myndir með fókus á augu þeirra sem sitja fyrir.

„Ég vil að and­lit fólks­ins á mynd­unum fest­ist í minni fólks og það hugsi um mál­efnið. Ég vil að það líti sér nær: „Er ég þol­andi, er barnið mitt þol­andi, er ég ger­andi?“ Ef ég get bjargað einum ein­stak­lingi frá ein­elti þá er ég sáttur,“ segir Kristvin. „Mig dreymir um það að fá mína áhrifa­valda og átrún­að­ar­goð með í verk­efnið.“

Þeir sem vilja taka þátt í ljós­mynda­verk­efn­inu geta haft sam­band við Kristvin á net­fang­inu [email protected].

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina