Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Það er svo mikil seigla í Íslendingum“

„Það er svo mikil seigla í Íslendingum“
Katrín Jak­obs­dóttir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Það er svo mik­il­vægt þegar maður er minntur á hverf­ul­leika efna­hags­lífs­ins að muna hvað við eigum. Þá sér maður þessa seiglu í sam­fé­lag­inu, sam­heldn­ina og fólkið sem stendur í ströngu, til dæmis í heil­brigð­is­þjón­ust­unni, hjá almanna­vörnum, í skól­unum og versl­unum þar sem starfs­menn standa í fram­lín­unni og þurfa að takast á við það að mæta fólki allan dag­inn. Fólk í atvinnu­líf­inu horfir fram á mjög erf­iðar aðstæður en ætlar sér að kom­ast í gegnum þetta. Ég segi stundum að eftir svona vetur eins og þessi vetur hefur verið þá sé ekki til­viljun að við búum hérna. Það er svo mikil seigla í Íslend­ingum,“ segir Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Í við­tali við Mannlíf ræðir hún hinn skæða Covid-19 far­aldur sem herjar á þjóð­ina, stjórn­málin og einka­lífið.

Katrín segir að skamm­tíma­mark­miðið sé að Íslend­ingar komi stand­andi út úr skafl­inum. „Síðan er lang­tíma­mark­miðið að byggja hér upp efna­hags­lífið aftur og þá skiptir máli að við byggjum betur upp okkar nýsköp­un­ar­um­hverfi og rann­sóknar- og þró­un­ar­um­hverfi. Það skiptir síðan máli að byggja ferða­þjón­ust­una upp aftur.“ Mynd / Hákon Davíð Björns­son

„Við erum að berj­ast við heil­brigð­isvá en sótt­varn­ar­að­gerð­irnar sem ætlað er að hægja á útbreiðslu veirunnar gera það að verkum að það er að hægja á efna­hags­líf­inu þannig að fólk hefur í raun tvö­faldar áhyggjur,“ segir Katrín. „Um leið er margt í þess­ari stöðu sem fyllir mann bæði stolti og bjart­sýni. Það er í fyrsta lagi það fag­fólk sem við eigum innan bæði heil­brigð­is­þjón­ust­unnar og almanna­varna sem hefur miðlað upp­lýs­ingum um stöð­una til lands­manna dag­lega und­an­farnar vikur. Sömu­leiðis hefur mér fund­ist merki­legt að skynja sam­stöðu almenn­ings í land­inu. Við sjáum líka fyr­ir­tæki, til dæmis Íslenska erfða­grein­ingu og Alvogen, leggja sitt af mörkum í bar­átt­unni og það finnst mér mjög jákvætt. Ég hef verið á hinu póli­tíska sviði frá síð­asta hruni og við stöndum nú miklu betur til að takast á við efna­hags­þreng­ingar heldur en við gerðum þá. Við eigum öfl­ugan gjald­eyr­is­vara­forða, við erum með lægstu vexti í lýð­veld­is­sög­unni og við erum miklu minna skuld­sett en þá, hvort sem um er að ræða ein­stak­linga eða fyr­ir­tæki, þannig að það er margt sem leggst með okkur í þess­ari bar­áttu þó að þetta verði auð­vitað erfitt.“

Þetta mun ganga yfir

Óvissan er mikil vegna Covid-19 og Katrín segir að verið sé að tala um veru­legan sam­drátt í hag­kerf­inu og mikið atvinnu­leysi og það mun taka tíma bæði að ná því niður og byggja upp efna­hags­lífið. Bank­arnir séu með tölu­vert svig­rúm til að styðja við við­skipta­vini sína í gegnum þetta þótt það muni taka tíma.
„Þetta eru í raun og veru aðstæður sem við þekkjum ekki í lýð­veld­is­sög­unni þar sem við erum ann­ars vegar með heims­far­aldur og hins vegar þessi miklu efna­hags­legu áhrif. Þetta mun ganga yfir, þetta verður tíma­bundið og allar okkar aðgerðir miða að því hvernig við getum brúað gjána þannig að við höldum sam­fé­lag­inu gang­andi.

Það er tekju­fall hjá mörgum fyr­ir­tækjum og þá er stóra mark­miðið okkar að koma bæði fólki og fyr­ir­tækjum í gegnum þennan skafl þannig að við tryggjum afkomu fólks og að fyr­ir­tæki hafi tæki­færi til þess að kom­ast í gegnum þetta ósködduð. Það mun taka tíma að vinna úr þessu.“

„Við skynjum að þetta er utan­að­kom­andi vá. Þess vegna hef ég líkt þessu við stríðs­á­stand og það gerir það að verkum að maður finnur þessa miklu sam­heldni í sam­fé­lag­inu.“

Katrín seg­ist hafa mestar áhyggjur af stöð­unni á vinnu­mark­aðnum og vax­andi atvinnu­leysi. Aðgerða­pakki var sam­þykktur sam­hljóða í lok mars sem felst m.a. í hluta­bótum sem snú­ast fyrst og fremst um að tryggja afkomu fólks. „Við skiptum þessu upp í varnir, vernd og við­spyrnu.

Brúarlán til atvinnu­lífs­ins og frestun á ýmsum greiðslum eru varn­ar­að­gerðir. Brúarlán eru í takt við það sem önnur Norð­ur­lönd gera þar sem við veitum ákveðna ábyrgð að hluta til á lánum til fyr­ir­tækja þannig að ríkið tekur þátt í að styðja við fyr­ir­tækin í gegnum þennan skafl. Svo er það frestun skatt­greiðslna. Við tryggjum laun til þeirra sem eru skikk­aðir í sótt­kví. Við boðum barna­bóta­auka sem verður greiddur út í júní og er bæði skatt­frjáls og veldur ekki skerð­ingum. Þá verður far­ald­ur­inn von­andi í rénun og fólk í færum til að nýta sér þá greiðslu. Þá er heim­iluð úttekt sér­eign­ar­sparn­aðar sem er auð­vitað gam­al­kunn­ugt úrræði en getur gagn­ast mörgum.

Síðan er það við­spyrnan sjálf. Þar veitum við ákveðnar íviln­anir á virð­is­auka­skatti gagn­vart til­tek­inni vinnu, til dæmis í bygg­ing­ar­iðn­aði. Við styðjum við ferða­þjón­ust­una og ætlum í mark­aðsá­tak með henni bæði inn­an­lands og erlendis og að lokum er það fjár­fest­ing­ar­á­tak þar sem við ætlum að auka enn frekar við fjár­fest­ingar rík­is­ins.“

Stjórn­ar­flokk­arnir hafa hrósað þing­inu fyrir sam­stöðu í þessu máli og segir Katrín að sér finn­ist allir hafa verið að greiða fyrir málum. „Það sýnir að fólk tekur þessa stöðu alvar­lega alveg óháð því hvar það stendur í flokki.“

Ábend­ingar hafa hins vegar borist stétt­ar­fé­lag­inu Eflingu um að starfs­fólk fyr­ir­tækja sem hefur verið sett á hluta­bætur sé enn látið vinna fullt starf. „Auðvitað hlýtur eitt­hvað slíkt að koma upp,“ segir hún um það, „en við erum að hugsa um hags­muni heild­ar­innar og viljum hafa úrræðið opið til að tryggja afkomu sem flestra.“

Katrín segir að skamm­tíma­mark­miðið sé að Íslend­ingar komi stand­andi út úr skafl­inum. „Síðan er lang­tíma­mark­miðið að byggja hér upp efna­hags­lífið aftur og þá skiptir máli að við byggjum betur upp okkar nýsköp­un­ar­um­hverfi og rann­sóknar- og þró­un­ar­um­hverfi. Það skiptir síðan máli að byggja ferða­þjón­ust­una upp aftur. Ísland verður áfram eft­ir­sóttur áfanga­staður sökum okkar ein­stöku nátt­úru. Við munum núna fjár­festa innan ferða­manna­staða og innan þjóð­garða og frið­lýstra svæða til að nýta þetta sumar til að vinna okkur í hag­inn með það.“

Katrín Jak­obs­dóttir Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Á sama báti

Fjöl­miðlar greindu frá því á dög­unum að Covid-19 smit hafi komið upp í skóla eins af þremur sonum Katrínar, þurfti hann að fara í sótt­kví og flutti ásamt föður sínum út af heim­il­inu þar til fyr­ir­skip­aðri sótt­kví lauk, tveimur vikum eftir að dreng­ur­inn hafði verið útsettur fyrir smiti. „Ég var í vinn­unni og mað­ur­inn minn hafði strax sam­band við mig eftir að rakn­ingateymið hafði haft sam­band,“ segir Katrín, þegar hún er spurð út í þetta. „Við brugð­umst hratt við og gerðum eins og okkur var sagt. Auðvitað var bara tíma­spurs­mál að eitt­hvað svona gæti gerst þar sem far­ald­ur­inn hefur færst nær okkur öllum á und­an­förnum vikum. Ég var heima með hina tvo syni okkar. Ég upp­lifði nú engan ótta vegna þessa en auð­vitað kemur þetta róti á hvers­dags­lífið. Við erum frekar náin og maður sakn­aði þeirra þótt við töl­uðum saman dag­lega á Skype. En við vorum heppin, sótt­kvínni er lokið og allir eru frískir.“

Katrín seg­ist sjálf þekkja fólk sem hefur veikst af Covid-19 og viti að það er ekk­ert grín. „Ég, eins og allir aðrir lands­menn, finn hvaða áhrif það hefur á mann þegar það hægist svona á sam­fé­lag­inu í kringum mann. Það eru allir í sömu stöðu og við hittum miklu færri en áður. Við erum öll ofboðs­lega mikið úti í göngut­úrum til að fá til­breyt­ingu frá því að vera svona mikið heima við. Þessar aðstæður hafa auð­vitað áhrif á hvernig okkum öllum líður og ég held að við skynjum öll bæði sam­heldni en líka alvar­leika í stöð­unni.

„Ég var í vinn­unni og mað­ur­inn minn hafði strax sam­band við mig eftir að rakn­ingateymið hafði haft sam­band … Auðvitað var bara tíma­spurs­mál að eitt­hvað svona gæti gerst.“

Í svona aðstæðum erum við öll á sama báti. Við skynjum að þetta er utan­að­kom­andi vá. Þess vegna hef ég líkt þessu við stríðs­á­stand og það gerir það að verkum að maður finnur þessa miklu sam­heldni í sam­fé­lag­inu. Og það finnst mér vera hið jákvæða í þessu öllu saman. Mér finnst aðdá­un­ar­vert að yfir­gnæf­andi meiri­hluti lands­manna fylgir reglum og gerir hlut­ina eins vel og fólk getur.“

Standa sig feykilega vel

Heil­brigð­is­ráð­herra fer með dag­lega stjórnun mála tengdum Covid-19 far­aldr­inum, en Katrín seg­ist hitta reglu­lega land­lækni, sótt­varna­lækni og Víði yfir­lög­reglu­þjón til að fara yfir stöð­una þegar ástæða er til. „Svo ræðum við þetta mjög reglu­lega á vett­vangi rík­is­stjórnar og það er eig­in­lega fátt annað sem við höfum haft tíma til að ræða; stöð­una í heil­brigð­is­kerf­inu vegna Covid, skóla­hald á tímum Covid og efna­hags­leg áhrif Covid.“

Hún segir að sér eins og yfir­gnæf­andi meiri­hluta lands­manna finn­ist Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir, Alma Möller land­læknir og Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn hafa staðið sig feyki­lega vel í flóknum kring­um­stæðum. Þó hafa sumir gagn­rýnt hvernig tekið er á málum hér á landi og finnst þær aðgerðir ekki vera nægar. „Mér finnst þau hafa verið í senn fag­leg og heið­ar­leg. Þau byggja sinn mál­flutn­ing á fag­legri þekk­ingu en eru líka heið­ar­leg með það að þessi staða geti breyst hratt og það er alltaf mikil óvissa fyrir hendi. Það finnst mér til fyr­ir­myndar. Við höfum tekið þá afstöðu að treysta fag­fólk­inu í svona kring­um­stæðum. Við höfum átt gott sam­starf við þau og allar okkar aðgerðir í heil­brigð­is­málum hafa verið undir þeirra leið­sögn. Þær hafa sömu­leiðis verið í takt við leið­bein­ingar Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar sem við fylgj­umst auð­vitað grannt með. Við höfum lagt okkur fram um að gera það sem við teljum skyn­sam­legt út frá rökum sem byggj­ast á vís­indum og þekk­ingu.“

Katrín segir að á Alþingi Íslend­inga hafi mynd­ast mikil sam­staða um að þetta sé ekki rétti tím­inn fyrir hefð­bundin, póli­tísk átök. „Það finnst mér vera gríð­ar­lega mik­il­vægt fyrir íslensk stjórn­mál.“

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hún tekst á við jafn gríð­ar­lega stórt verk­efni. Hún var í rík­is­stjórn þegar tek­ist var á við afleið­ingar hruns­ins 2008. „Þó að aðstæður séu ólíkar og margt öðru­vísi þá er gott að búa að þeirri reynslu að hafa gengið í gegnum erf­iða tíma og vita að þetta reynir rosa­lega á alla. Þetta reynir líka á sam­skipti fólks og það reynir á að halda dampi í svona stöðu.

Einmitt í svona aðstæðum skiptir svo miklu máli að vinna með fólki sem maður treystir þótt það sé með aðrar skoð­anir og í öðrum flokkum. Það skiptir máli að geta átt heið­ar­leg sam­skipti til að nálg­ast svona verk­efni.“

Katrín Jak­obs­dóttir Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Mikill lærdómur

Katrín segir að Íslend­ingar skynji það í svona kring­um­stæðum hvað þjóðin er seig. „Það er svo mik­il­vægt þegar maður er minntur á hverf­ul­leika efna­hags­lífs­ins, að muna hvað við eigum. Þá sér maður þessa seiglu í sam­fé­lag­inu, sam­heldn­ina og fólkið sem stendur í ströngu, til dæmis í heil­brigð­is­þjón­ust­unni, hjá almanna­vörnum, í skól­unum og versl­unum þar sem starfs­menn standa í fram­lín­unni og þurfa að takast á við það að mæta fólki allan dag­inn. Fólk í atvinnu­líf­inu horfir fram á mjög erf­iðar aðstæður en ætlar sér að kom­ast í gegnum þetta. Ég segi stundum að eftir svona vetur eins og þessi vetur hefur verið þá sé ekki til­viljun að við búum hérna. Það er svo mikil seigla í Íslend­ingum.“

Katrín segir að heims­byggðin öll hljóti að draga lær­dóm af þessum atburðum og nýjar spurn­ingar hljóti að vakna í alþjóða­sam­starfi eftir hina hröðu atburða­rás und­an­far­inna vikna. „Ég held að þetta muni vekja spurn­ingar um það hvernig ákvarð­anir eru teknar, til dæmis um lokun landamæra, sem og hvernig við erum í stakk búin þegar kemur að því að mæta svona heil­brigð­isvá í alþjóða­væddum heimi þar sem hlut­irnir ferð­ast á ógn­ar­hraða á milli landa. Ég held að heim­ur­inn verði enn þá með­vit­aðri en ella um mik­il­vægi þess að það þurfi ekki bara að efla heil­brigð­is­kerfin heldur vís­indi og rann­sóknir á því sviði. Ég vona að þjóðir heims muni draga þann lær­dóm að sterkt alþjóð­legt sam­starf er nauð­syn­legt til að mæta svona vá og svo held ég líka að þetta muni verða í sögu­legu ljósi öðru­vísi efna­hag­skreppa en við höfum áður séð af því að sam­drátt­ur­inn í hag­kerf­inu er bein­línis að verða vegna ákvarð­ana sem við erum að taka til þess að bregð­ast við heil­brigð­isvá.

Kannski verður þetta líka til þess að minna okkur á hvað skiptir okkur raun­veru­legu máli í líf­inu og draga aðeins úr hrað­anum í því sam­hengi. Það er alltaf eitt­hvað jákvætt í öllum aðstæðum.“

Þykir vera þrjósk

Katrín nefndi að það væri nauð­syn­legt að treysta þeim sem vinna með manni. Hún við­ur­kennir að burt­séð frá þessu stóra verk­efni geti verið erfitt að halda saman þremur ólíkum öflum í rík­is­stjórn en að sam­starf við ráð­herra í öðrum flokkum sé gott. „Þetta er bæði verk­efni og lær­dómur. Lær­dóm­ur­inn felst auð­vitað í því að maður er að kynn­ast fólki með ólíkan bak­grunn, ólíkan reynslu­heim og ólíkt gild­is­mat í sumum málum. Síðan felst líka lær­dómur í því að átta sig á að í sumum málum erum við meira sam­mála en mann hefði grunað. Mér hefur fund­ist sam­vinnan ganga vel, betur en ég hefði átt von á fyrir fram. Og í svona aðstæðum skiptir svo miklu máli að vinna með fólki sem maður treystir jafn­vel þótt skoð­anir séu ólíkar á ein­stökum þáttum. Það gerir allt auð­veld­ara ef byggt er á trausti. “

Katrín segir að nún­ingur á milli ólíkra afla sé leystur með sam­tali. „Það er eina leiðin til þess að leysa mál. Ég veit að ég þyki stundum vera mjög þrjósk þegar kemur að því að halda fundi og láta fólk sitja við og leysa mál; stundum jafn­vel um of og það hefur verið kvartað undan því. En það verður ekk­ert leyst öðru­vísi. Maður fær auð­vitað ekki allt fram sem maður vill í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi. Maður þarf alltaf að eiga sam­tal og miðla málum og það getur verið snún­ara þegar flokkar eru ólíkir. Ég held að það sé aldrei auð­velt að vera í rík­is­stjórn.“

VG er á móti veru Íslands í NATO en Katrín hefur farið á leið­toga­fund NATO sem hún hafði aldrei séð fyrir sér. „VG er í algerri sér­stöðu í íslenskum stjórn­málum að vera einn flokka á móti aðild­inni. Þegar við fórum í þetta rík­is­stjórn­ar­sam­starf þá var sam­þykkt að fylgja þjóðar­ör­ygg­is­stefnu þeirri sem Alþingi hefur sam­þykkt. Þar er aðild að NATO einn af grunn­þátt­unum. Þetta er svo­lítið fjarri því sem ég sá fyrir mér þegar ég byrj­aði í póli­tík.“

Má ekki missa húmorinn

Katrín er spurð hvort hún skilji þá gagn­rýni sumra að hún hafi færst inn á miðj­una eða fært VG inn á miðj­una. „Ég heyri þá gagn­rýni og ég heyri alls konar gagn­rýni. Auðvitað var þetta rík­is­stjórn­ar­sam­starf umdeild ákvörðun alveg frá byrjun en yfir­gnæf­andi meiri­hluti minna félaga sam­þykkti að fara í þessa rík­is­stjórn. Fólkið mitt í hreyf­ing­unni hefur bæði verið gagn­rýnið en líka staðið þétt við bakið á manni þannig að ég hef í senn fengið bæði gagn­rýni og mik­inn stuðn­ing sem er lýsandi fyrir mína hreyf­ingu. Þar liggur fólk ekki á sínum skoð­unum og lætur mann alveg heyra það ef því finnst maður vera að fara eitt­hvað af leið. Ég met það svo að við höfum náð miklum árangri varð­andi okkar félags­legu mark­mið og okkar grænu mark­mið í þess­ari rík­is­stjórn. Og við erum auð­vitað í póli­tík til að ná árangri með mál­efnin.“

Hún seg­ist ekki vera hrædd við að fara ótroðnar slóðir í póli­tík. „Í póli­tík hef ég lært að gera það sem maginn segir mér að gera.“

For­sæt­is­ráð­herr­ann er spurð um fyr­ir­myndir í póli­tík og nefnir hún nokkrar konur. Þær eru Kolbrún Hall­dórs­dóttir, Guðrún Helga­dóttir, Svava Jak­obs­dóttir og Katrín Thorodd­sen sem hún er nefnd eftir.

Katrín er ung og hefur verið lengi í póli­tík og í fremstu víg­línu í áraraðir. Hún er spurð hvort hún verði aldrei þreytt á að vera í þeirri stöðu. „Allir verða þreyttir. Þegar ég var að stíga mín fyrstu skref á vinnu­mark­aðnum sem bréf­beri sagði mamma að öll störf gætu verið skemmti­leg og þau gætu líka öll verið leið­in­leg. Það veltur ansi mikið á við­horf­inu. Ég hef það við­horf að ég reyni að sjá gleð­ina á hverjum degi. Stundum er það erf­ið­ara en ella þegar mikið gengur á og það er mik­ill mót­byr. Stundum er það auð­veld­ara. En maður má ekki missa húmor­inn. Það er eig­in­lega númer eitt, tvö og þrjú. Ef ég missi húmor­inn þá hætti ég í póli­tík og sný mér að ein­hverju öðru.“

„Ég vil hafa fal­legt í kringum mig og ég er góð hús­móðir þegar ég hef tíma til en það er ansi oft sem það er ekki, skal ég segja þér, þannig að það er oft hræði­legt í kringum mig.“

Duran Duran og Barnaby

Katrín er með BA-próf í íslensku og frönsku sem auka­grein og meist­ara­próf í íslenskum bók­menntum. Hún vann m.a. við dag­skrár­gerð, rit­störf og kennslu áður en hún fór út í póli­tík af fullum þunga. Hún segir að ef hún hætti í stjórn­málum þá sé fullt af verk­efnum sem hana langi til að sinna. „Mér finnst ég eiga eftir að skrifa bók,“ segir for­sæt­is­ráð­herr­ann sem hefur sér­stakt dálæti á glæpa­sögum og vill skrifa eina slíka. Þessa dag­ana er hún hins vegar að lesa meist­ara­verkið Ástin á tímum kól­er­unnar í anda veiru­far­ald­urs­ins sem nú gengur yfir.

Katrín býr í fjög­urra her­bergja íbúð í Vest­ur­bænum ásamt eig­in­manni sínum, Gunnari Sig­valda­syni, sem stundar nú dokt­ors­nám í stjórn­mála­fræði, og son­unum þremur, Jakobi, Illuga og Ármanni Áka. „Við búum í 100 fer­metrum og okkur líður bara vel. Ham­ingjan er ekki mæld í fer­metrum. Ég vil hafa fal­legt í kringum mig og ég er góð hús­móðir þegar ég hef tíma til en það er ansi oft sem það er ekki, skal ég segja þér, þannig að það er oft hræði­legt í kringum mig; mikið af óhreinum þvotti og upp­vaski. Það er gott að lifa ein­földu lífi og ég hef fylgt því leið­ar­ljósi að flækja ekki lífið að óþörfu.“

„Mér finnst allir hafa verið að greiða fyrir málum sýnir að fólk tekur þessa stöðu alvar­lega alveg óháð því hvar það stendur í flokki,“ segir Katrín Jak­obs­dóttir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Hvað með áhuga­málin? „Ég geri ekki neitt. Ég er svo leið­in­leg týpa,“ segir hún og hlær. „Ég hef gaman af úti­vist. Ég er ekki að grín­ast. Ég fer út að hlaupa en samt ekki á vet­urna af því að ég er ekki afreks­mann­eskja. Mér finnst líka gaman að ganga í nátt­úr­unni. Ég les ótrú­lega mikið. Svo finnst mér gaman að vera til. Ég þarf rosa lítið til þess að hafa gaman af líf­inu. Ég hef svo gaman af fólki. Það gefur mér mest að vera með fólki.“

Hvað með tón­list­arsmekk­inn?„Ef ég ætti ekki mann þá væri ég örugg­lega ennþá að hlusta á Duran Duran. Það er mjög vand­ræða­legt. Ég fylgist ekki beint með. Hann sér líka um að ég horfi á nýja sjón­varps­þætti en ef ég byggi ein myndi ég ein­göngu horfa á Barnaby.“

Það er stutt í gleð­ina og húmor­inn hjá for­sæt­is­ráð­herr­anum sem seg­ist alltaf hafa jafn gaman að ensku gam­an­þátt­unum Já, ráð­herra „þar sem ráð­herr­ann er algjör­lega úti á þekju,“ segir Katrín og hlær. „Það er gaman að svona póli­tísku gríni og þetta minnir mig stundum á lífið í ráðu­neyti þegar ég sé þessa þætti. Ég hef frá því ég byrj­aði í stjórn­málum stundum verið skömmuð fyrir að brosa of mikið. Ég tók skeið þar sem ég velti því fyrir mér hvernig ég kæm­ist hjá því að brosa svona mikið af því að ég heyrði oft að ég væri alltaf hlæj­andi eins og fífl. Svo hugs­aði ég með mér að ef þetta sner­ist um að afþakka lífs­gleð­ina þá myndi ég bara sleppa þessu. Ann­að­hvort tækju stjórn­málin mér eins og ég er og ég fengi að halda lífs­gleð­inni þótt það þyki stundum ekki við­eig­andi. Og það hefur gengið ágæt­lega. Það er ómet­an­legt að sjá hið góða og skemmti­lega í hlut­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina