Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Fólk verður hissa að heyra að átröskun er sjúkdómur, en ekki bara leti og græðgi“

„Fólk verður hissa að heyra að átröskun er sjúkdómur, en ekki bara leti og græðgi“
María Dís

María Dís Eyþórs­dóttir, sem er 27 ára gömul, barð­ist við lotu­græðgi í fjölda ára eftir áfall sem hún varð fyrir í æsku. Fyrir sex árum síðan fann hún styrk til að takast á við áfallið og lotu­græðgina, byrj­aði hjá sál­fræð­ingi og að æfa með einka­þjálf­ara. Í dag er hún hraust og ham­ingju­söm, er að læra einka­þjálf­ar­ann og er full­viss um að reynsla hennar sjálfrar af átrösk­un­ar­sjúk­dómi mun nýt­ast í því starfi. Í pistli sem María Dís skrif­aði lýsir hún reynslu sinni.

„Ég varð fyrir áfalli í æsku sem orsak­aði binge eat­ing dis­order eða lotu­græðgi eins og það heitir á Íslensku. Ég þurfti að vera búin að plana það sem ég ætl­aði að borða þann dag­inn sem ég ætl­aði að „detta í það“ ég var búin að ákveða magn og hvað nákvæm­lega það átti að vera, og ég fann fyrir miklum kvíða að hugsa til þess: „hvað ef það sem ég ætl­aði að borða væri ekki til í búð­inni?,“ segir María Dís.

Á þessum tíma bjó María Dís út á landi í litlu sam­fé­lagi og það voru bara nokkrar búðir sem voru í boði og þetta vafð­ist mikið fyrir henni eins og hún segir.

„Þegar ég „datt“ svona í það þá erum við ekk­ert að tala um einn snakk poka eða einn snúð, við erum að tala um að ég keypti mat eins og ég væri að fara að halda veislu og ég borð­aði það allt ein á nokkrum klukku­tímum og svo lá ég bara í móki eins og ég væri í vímu. Þetta snérist allt um að borða til­finn­ing­arnar. Ég gat ekki tek­ist á við til­finn­ing­arnar mínar svo ég fann aðra leið til þess að fá útrás.“

Mynd / Aðsend

Borðaði í laumi og faldi matarumbúðir

„Ég borð­aði allt í laumi, ég bjó í for­eldra­húsi á þessum tíma og ég þorði ekki að henda umbúð­unum af matnum í heim­il­is­ruslið svo ég faldi það út um allt inn í her­berg­inu mínu. Ofan í öllum skúffum, undir rúmi, milli rúms og dýnu. Skömmin var svo mikil sem fylgdi þessu,“ segir María Dís.

„Ég gat falið allar umbúð­irnar af matnum en það sást á lík­am­anum mínum að ekki væri allt í lagi, ég fitn­aði hratt og mikið, ég var orðin 150 kg og ég var í miklum áhættu hóp að fá áunna syk­ur­sýki, ég var með alltof háan blóð­þrýst­ing, ég var mjög þung­lynd og með mjög svo brotna sjálfs­mynd.

Ég hafði enga sjálf­stjórn, mér fannst ég vera búin að missa stjórn á eigin lífi.

Ég var alveg komin á botn­inn, stundum þegar ég borð­aði alltof mikið þá lét ég mig gubba, og ég man svo vel eftir því hvað mér fannst það gott, á ein­hvern sjúkan hátt þá veitti það mér huggun.

Ég vissi ekki að þetta væri átröskun og fannst ég vera ein.“

Mynd / Aðsend

Það er von

Árið 2014 flutti María Dís til Reykja­vík og fann þá styrk til þess að leita sér aðstoðar, fór til sál­fræð­ings og hóf þjálfun hjá einka­þjálf­ara.

„Það er mik­il­vægt að tækla and­legu og lík­am­legu hlið­ina saman,

Það tók við gríð­ar­leg sjálfs­vinna, hjá sál­fræð­ingnum þurfti ég að grafa langt til að finna rót vand­ans og hjá einka­þjálf­ar­anum þurfti ég að takast á við og ná aftur tökum á matar­æð­inu, ég þurfti sjálf að læra að eiga gott sam­band við mat,“ segir María Dís.

„Mér fannst erfitt þegar þjálf­ar­inn skildi ekki af hverju ég gæti ekki bara sleppt þvi að borða þessar sam­lokur sem mér lang­aði að borða, af hverju það væri svona erfitt fyrir mig og veitti mér svona mikla van­líðan að geta ekki borðað þessar fjórar sam­lokur sem mig lang­aði að borða. Það er mjög skilj­an­legt að sá sem ekki hefur gengið í gegnum átröskun sjálfur á eðli­lega erfitt með að skilja svona hluti. Þar sem ekki mikið er talað um þennan sjúk­dóm yfir­höfuð og ekki margir sem vita af honum,“ segir María Dís.

„Enda hef ég alveg mjög greini­lega orðið vör við það sjálf að þegar ég hef verið að tala við fólk í gegnum tíð­ina um þennan sjúk­dóm að þá hefur fólk frekar verið hissa að heyra að þetta sé sjúk­dómur, en ekki bara leti og græðgi.

Mynd / Aðsend

Það tók langan tíma fyrir mig að eiga venju­legt sam­band við mat, ég missteig mig oft á leið­inni en stóð þó alltaf aftur upp. Við lærum og lifum og sér­stak­lega í sam­bandi við þetta, matur er eitt­hvað sem við þurfum til að lifa.

Í dag eru liðin sex ár síðan ég leit­aði mér aðstoðar og ég verð þessum konum ævin­lega þakk­lát fyrir allan þann lær­dóm sem þær kenndu mér. Ég er í námi að læra að verða einka­þjálf­ari og ég veit að þessi lífs­reynsla sem ég hef mun nýt­ast mér vel í því starfi,“ segir María Dís.

Mynd / Aðsend

Mantra Maríu Dísar er: Við borðum til að lifa en lifum ekki til að borða.

Mynd / Aðsend

María Dís er á Instagram.

View this post on Instagram

It's official, all the gym's will close tomorrow for god knows how long, because covid19 is spr­ea­d­ing fast😰🦠 It's horri­ble how many people are gett­ing sick💖 In a time like this we need to take extra good care of our health: Eat healthy🥦🍗 Exercise at home🤸🏻‍♀️ Meditate 🧘🏻‍♀️ Stay positive 🌟 & Never give up hope We will get through This together 💖🌈🌍 #stay­home #positi­vevi­bes #healt­hyli­festyle #fitnessmotivation #motivation #meditation #exerciseathome #befiticeland #staysafe #gymjunkie #grrrl­army #sel­flove

A post shared by María Dís Eyþórs­dóttir (@mariadis93) on Mar 22, 2020 at 1:34pm PDT

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina