Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Ólíver skrifar um eigin reynslu: „Það mun skaða hann að labba inn og sjá mig dauðan í eldhúsinu“

Ólíver skrifar um eigin reynslu: „Það mun skaða hann að labba inn og sjá mig dauðan í eldhúsinu“
|Starfs­fólk LEÓ (frá vinstri): Páll Gestsson vara­stjóri

„LEÓ Bóka­út­gáfa er glæ­nýtt fyr­ir­tæki sem leggur áherslu á fjöl­breytta bóka­flokka – svo sem barna­bækur, spennu­sögur, skáld­sögur, glæpa­sögur og miklu, miklu fleira,“ segir Kristinn Rúnar Krist­ins­son rit­stjóri LEÓ.

LEÓ Bóka­út­gáfa er lang­þráður draumur Ólívers Þor­steins­sonar, eig­anda og útgáfu­stjóra, en hann vildi stofna bóka­út­gáfu, svo hann gæti gefið út þær bækur sem hann vill gefa út. „Og á sama tíma að hjálpa nýjum rit­höf­undum, sem eru að stíga sín fyrstu skref, til að hasla sér völl,“ segir Kristinn Rúnar.

Kristinn Rúnar rit­stjóri LEÓ Bóka­út­gáfu

Fyrsta bókin sem LEÓ bóka­út­gáfa gefur úr er Í Hjarta Mínu, sem er eftir Ólíver sjálfan byggt og segir sögu hans. Bókin er kómedískur harm­leikur sem fjallar um mann sem hefur gef­ist upp á líf­inu. Bókin er mjög áhrifa­rík og á stundum átak­an­leg frá­sögn höf­undar, um það hvernig hann sá fram­tíð sína fyrir sér og hvaða áform hann hafði gert með sjálfum sér, og til­kynnt fjöl­skyldu sinni. Á sama tíma er hún skemmti­leg, fyndin á köflum og fer með mann allan til­finn­inga­rús­sí­ban­ann.

Bókin Í Hjarta Mínu

Bókin hefur fengið góðar við­tökur og má panta ein­tak á heima­síðu útgáf­unnar.

Starfs­fólk LEÓ (frá vinstri): Páll Gestsson vara­stjóri, Richard Vilhelm Andersen kerf­is­stjóri, Ólíver Þor­steins­son eig­andi og útgáfu­stjóri, Kristinn Rúnar Krist­ins­son rit­stjóri. Fyrir framan eru Tómas Leó Þor­steins­son og Sylvía Þor­steins­dóttir teikn­arar.

Hér má lesa brot úr átt­unda kafla bók­ar­innar, sem ber heitið 20 ára afmæli:

Næ í bjór í ísskápnum, ég ætla mér að drekka töfl­una og bjór­inn. En ég lof­aði þeim. Hilmar og Selma, ég lof­aði þeim að ég myndi reyna. Ég ætl­aði að taka þennan lista í gegn með Fanndísi Ólu. Akew mun koma heim á eftir. Það mun skaða hann að labba inn og sjá mig dauð­ann í eld­hús­inu. Fokk. FOKK. Ég kasta bjór­flösk­unni í gólfið, hún brotnar. Gler spýt­ist út um allt. Ég er að brotna niður. And­skot­inn. Djöf­uls­ins aum­ingi er ég. Ég vil þetta ekki lengur og þau skilja það ekki. Af hverju geta þau ekki bara … ég gnísti tönnum. Bræðin inni í mér er að brenna mig. Ég er piss­fullur ennþá, get ekki hugsað skýrt. Allt er rautt.
Ég næ ekki að standa upp. Veit ekki hvað klukkan er, búinn að sitja hérna lengi. Sofnaði á einum tíma­punkti. Er með verk í bak­inu eftir þennan hel­vítis vegg, get ekki staðið upp. Bjór og gler­brot á gólf­inu. Ég heyri bíl leggja fyrir utan. Ljósið lýsir inn í dauft eld­húsið. Ég kveikti aldrei ljósin, sit hérna í myrkr­inu. Það er reyndar bjart, en ég sé allt dimmt. Ég græt eins og lít­ill strákur. Ég get ekki stjórnað mér. Einhver labbar inn og lokar á eftir sér. And­skot­inn. Akew er kom­inn, hvernig á ég að útskýra þetta? Ég get ekki þrifið þetta upp í einum hvelli. Ég held áfram að gráta.
,,Hæ?‘‘ Akew labbar inn í eld­húsið, honum bregður. ,,Ómar, hvað kom fyrir?‘‘ Hann stekkur til mín eins og kvik­mynda­stjarna – hetja mynd­ar­innar.
Ég get ekki hætt að gráta. Ég græt samt ekki hátt; ég öskra ekki eins og sumir gera. Ég græt í hljóði og hann sér það. Akew sér nið­ur­brot­inn mann og áður en ég veit af situr hann við hlið­ina á mér. Hann tekur mig í fangið sitt og faðmar mig. Ég hef ekki verið faðmaður lengi. Hann er sterkur, traustur og hlýr. Hann strýkur yfir hárið mitt. Við segjum ekki neitt. Tárin leka niður kinnar mínar. Ég var næstum búinn að gleyma því hvernig það var að vera snertur af annarri mann­eskju. Ég hef tekið í hönd­ina og faðmað annað fólk en ekk­ert annað. Þetta er annað. Hann er að sýna mér ást og umhyggju. Ég man þegar ég var í 10. bekk, ég fann mig þá í nýjum vina­hópi. Og mér leið svo vel, kynnt­ist stelpum. En þær voru ekki vin­konur mínar, Rakel var eina vin­kona mín. Hún tal­aði við mig, sýndi mér ást og umhyggju. Djöfull er ég væm­inn. Ég gleymi aldrei þegar við lágum í rúm­inu hennar, hún var í fang­inu mínu. Ég strauk yfir hand­legg­inn hennar og hún strauk yfir hand­legg­inn minn. Ég fann fyrir von og ást í hjarta mínu. Hún var í svartri Adidas-peysu. Rakel hætti allt í einu að strjúka hand­legg­inn minn og sagði: „Ég vildi að við gætum verið hérna að eilífu.“ Ég vildi að ég gæti farið til baka. Kysst hana og sagt henni að ég elskaði hana. Ég vildi að ég hefði reynt, reynt að lifa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina