Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Ljóngáfaður, réttsýnn, hreinskilinn og stríðinn forsetaframbjóðandi sem spilar spil við aldraða móður

Ljóngáfaður, réttsýnn, hreinskilinn og stríðinn forsetaframbjóðandi sem spilar spil við aldraða móður
Guð­mundur Franklín. Mynd /Hákon Davíð Björns­son

Guð­mundur Franklín athafna­maður segir spill­ingu ríkja á Íslandi og boðar breyt­ingar verði hann for­seti. Í við­tali við Mannlíf segir hann frá pöddu­söfnun í æsku, skemmti­legum sam­skiptum við Björgólf Thor og erf­iðu gjald­þroti. Hann við­ur­kennir að honum hætti til að taka „örlítið sterkt til orða“.

Enginn Wallstreet-töffari

„Guð­mundur Franklín er að mínu mati rétt­sýnn og segir hlut­ina eins og þeir eru,“ segir Hildur Sif Thoraren­sen, kosn­inga­stjóri Guð­mundar. „Þegar maður talar við Guðmund þá veit maður að það er ekk­ert leik­rit í gangi, ekk­ert glimmer, engin reyk­vél, hann er hreinn og beinn. Ég kann að meta það.“

Hildur segir að hans helsti galli sé að vera mennskur og gera mis­tök en hann kom­ist síður upp með það en þeir sem hafi fjöl­miðl­ana með sér. „Eins á hann það til að taka of djúpt í árinni í hita leiks­ins, eins og gengur. Það er þó að slíp­ast af honum.“

Hún bætir við að Guð­mundur sé mjög skemmti­legur. „Hann er svo­lítið stríð­inn og ósjaldan förum við út af spor­inu og dettum í góð­lát­legt grín. Það sem mér finnst merki­leg­ast við hann er hversu margir mis­skilja hann og halda að þetta sé töffari frá Wallstreet. Sá Guð­mundur sem ég þekki er hins vegar sá sem spilar skrafl á hverju kvöldi við 92 ára gamla móður sína til að hjálpa henni að halda minn­inu við. Sá Guð­mundur sem ég þekki kallar fyrr­ver­andi kon­una sína enn „Dísu mína“ og maður heyrir í rödd­inni hvað honum þykir vænt um hana. Sá Guð­mundur sem ég þekki býðst alltaf til að hjálpa ef maður á í vand­ræðum með eitt­hvað.

Það sem ég dáist sér­stak­lega að í hans fari er að hann talar alltaf vel um alla. Jafnvel þótt ég gagn­rýni hann þá reið­ist hann mér ekki heldur er þakk­látur fyrir. Það er að mínu mati mik­ill mann­kostur því fæstir átta sig á því að vinur er sá er til vamms segir. Manni fer fljótt að þykja vænt um Guðmund því hann er eitt­hvað svo ein­lægur og góður. Það er í raun svo­lítið sárt fyrir okkur sem þekkjum hann að sjá þá útreið sem hann fær á sam­fé­lags­miðlum.“

Hildur Sif Thoraren­sen, verk­fræð­ingur og kosn­inga­stjóri Guð­mundar.

Óþægilega hreinskilinn

„Guð­mundur Franklín er ein­hver gleggsti grein­andi á fjármálaheim­inn sem ég hef kynnst og virð­ist alltaf vera nokkrum mánuðum, ef ekki miss­erum, á undan mark­aðnum með sínar grein­ingar,“ segir Anna María Sig­urð­ar­dóttir við­skipta­fræð­ingur. „Hann er hrein­skipt­inn og þorir að segja sann­leik­ann, líka þegar hann er óþægi­legur. Þegar maður kynn­ist mann­inum betur sér maður mýkri mann sem hugsar vel um börnin sín og aldr­aða móður sína.“

Anna María Sig­urð­ar­dóttir við­skipta­fræð­ingur.

„Alveg eldklár“

Ásgeir Bolli Krist­ins­son kaup­maður hefur verið vinur Guð­mundar Frank­líns síð­ast­liðin 40 ár. Hann hefur ekk­ert annað en gott að segja um for­seta­fram­bjóð­and­ann. „Hann er alveg ótrú­lega skemmti­legur og með mikið ímynd­un­ar­afl. Ljón­gáf­aður er hann, alveg eld­klár. Það er alltaf skemmti­legt að umgang­ast hann því hann sér hlut­ina oft frá öðrum sjón­ar­hornum og með ein­földum hætti. Guð­mundur er mjög lausn­a­mið­aður líka. Í raun er það bara þannig að ég hef ekk­ert nema gott um hann að segja.“

Ásgeir Bolli Krist­ins­son kaup­maður

Sorgarsaga

Margrét Frið­riks­dóttir, graf­ískur hönn­uður, starf­aði fyrir kosn­inga­fram­boð Hægri grænna fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar 2013. Hún segir farir sínar ekki sléttar í sam­skiptum við for­seta­fram­bjóð­and­ann þar sem hún hafi ekki fengið greidd umsamin laun. Guð­mundur Franklín hefur sjálfur lýst því yfir að hún hafi verið í sjálf­boða­liða­starfi. „Þetta er í raun sorg­ar­saga frá upp­hafi til enda og ég var mjög von­svikin yfir fram­komu Guð­mundar Frank­líns eftir næstum árs­vinnu fyrir hann þar sem ég hafði treyst honum og var alltaf full­viss um að hann myndi borga mér á end­anum eins og hann hafði lofað frá upp­hafi,“ sagði hún á Stjórn­mála­spjall­inu á Facebook. „Guð­mundur hefur aldrei beðið mig afsök­unar á þess­ari fram­komu, en ég hefði alveg tekið hana góða og gilda ef hann hefði sýnt þann mann­dóm af sér.“

Margrét Frið­riks­dóttir

Hrókur alls fagnaðar

„Ég get ekki sagt mikið um hann, annað en að hann var alltaf glaður piltur og hress,“ segir Jón Ragn­ars­son, fyrrum við­skipta­fé­lagi Guð­mundar Frank­líns. Hann virk­aði vel í við­kynn­ingu og var alltaf hrókur alls fagn­aðar. Það sem mér fannst áber­andi var hvað hann var allaf hress og glaður, hann er svo­leiðis týpa. Ég hef ekk­ert nema gott að segja og hef ekk­ert undan honum að kvarta, nema síður sé.“

Lestu við­tal við verð­bréfa­sal­ann sem vill verða for­seti í Mannlífi sem kom út í gær.

Lesa Mannlíf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina