Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Gætu í mesta lagi rannsakað 500 sýni á dag – Tæki um fimm klukkustundir að fá niðurstöður

Sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans gæti í mesta lagi rann­sakað 500 sýni á dag úr ferða­mönnum sem koma til lands­ins. Þetta er nið­ur­staða hóps sem heil­brigð­is­ráð­herra skip­aði í tengslum við skimun­ar­verk­efni á landa­mærum Íslands. 

Skýrsla verk­efn­is­stjórnar um sýna­töku fyrir COVID-19 á Kefla­vík­ur­flug­velli hefur verið birt á vef Stjórn­ar­ráðs­ins. Skýrsl­una fékk Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra afhenta í gær.

Í skýrsl­unni kemur fram að nið­ur­staða hóps­ins sé sú að verk­efnið sé fram­kvæm­an­legt en að leysa þurfi úr mörgum óvissu­þáttum áður en hægt verður að hefj­ast handa við skimun á landa­mærum.

Í nið­ur­stöðum hóps­ins segir m.a. að óviss­þættir séu margir og að það þurfi að hef­hast handa við upp­lýs­inga­tækni­vinnu án tafar til að mögu­legt sé að verk­efnið geti haf­ist 15. júní eins og hefur verið talað um.

Það er mat hóps­ins að sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala geti í mesta lagi rann­sakað 500 veiru­sýni á dag.

Eins segir huga þurfi sér­stak­lega að birgða­stöðu sýna­töku­setta. Núna eru 10.000 sett til.

Í skýrsl­unni er einnig fjallað um kostn­að­inn og kemur fram að kostn­aður á hvert sýni er áætl­aður undir 50 þús­und krónum svo fram­ar­lega sem tekin eru fleiri en 107 sýni á dag. Kostaður við hvert sýni væri þá tæpar 23 þús­und krónur ef tekin yrðu 500 sýni.

Reiknað er með að það tæki um fimm klukku­stundir að fá nið­ur­stöður úr próf­inu. „Meðan beðið er nið­ur­stöðu, sem miðað er við að sé innan 5 klst. en geti verið lengur einkum yfir nótt, fer við­kom­andi til skráðs dval­ar­staðar og við­hefur ítr­ustu smit­gát og varúð í umgengni við aðra en sótt­kví er ekki nauð­syn­leg,“ segir í skýrsl­unni.

Hér fyrir neðan má sjá nið­ur­stöður skýrsl­unnar.

Miðað við for­sendur verk­efn­is­ins er sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala (SVEID) ekki í stakk búin til að vinna nema 500 veiru­sýni á dag (fyrir far­þega) á verk­efn­is­tím­anum. Til að auka afkasta­getu þarf að bæta tækja­búnað, mönnun og aðstöðu SVEID en miðað við fyr­ir­liggj­andi áætl­anir er í fyrsta lagi hægt að auka afkasta­getu í 1000 sýni á dag eftir
miðjan júlí. Að auki er mik­il­vægt að líta til þess að ef upp koma hóp­sýk­ingar og smit eykst í sam­fé­lag­inu munu þau sýni hafa for­gang fram yfir sýni úr ein­kenna­lausum komu­far­þegum. Aðkoma ann­arra grein­ing­ar­að­ila er mögu­legt úrræði til að auka grein­ing­ar­get­una en ekki
hefur verið lagt mat á hver sú sam­an­lagða grein­ing­ar­geta gæti verið.

Huga þarf sér­stak­lega að birgða­stöðu sýna­töku­setta en á birgða­stöð eru
í dag ekki nema 10.000 sett.

Sú óvissa sem ríkir um fjölda komu­far­þega á verk­efn­is­tíma­bil­inu gæti stofnað verk­efn­inu í hættu þar sem farið gæti verið fram úr afkasta­getu þess og þeim fyr­ir­heitum að taka sýni hjá öllum komu­far­þegum varpað fyrir róða. Þetta á við hvort heldur sem er á skil­greindu tíma­bili eða mögu­legu fram­haldi þess þar sem vænt­ingar um sýna­töku kunna að
vera for­senda fyrir ferða­lagi til Íslands.

Óháð verk­efn­inu er nauð­syn­legt að fara í þær úrbætur á SVEID sem gera deild­inni kleift að sinna með full­nægj­andi hætti hlut­verki sínu sem rann­sókn­ar­stofa smit­sjúk­dóma. Núver­andi afkasta­geta deild­ar­innar, tækja­kostur, aðstaða og mönnun er veik­leiki í sótt­vörnum og
almanna­vörnum lands­ins m.t.t. nýrrar bylgju COVID-19 eða far­aldra
ann­arra smit­sjúk­dóma.

Verk­efn­is­stjórnin telur að unnt sé að skila nið­ur­stöðum á u.þ.b. 5 klst. frá því síð­asta sýni er tekið úr far­þegum við­kom­andi flug­vélar á Kefla­vík­ur­flug­velli frá morgni og fram eftir degi. Sýni sem ber­ast SVEID eftir kl. 17 verða greind næsta morgun nema mönnun verði aukin. Fyrirséð er að grein­ing sýna frá öðrum landamæra­stöðvum gæti tekið lengri tíma, sér­stak­lega ef senda þarf sýnin lands­horna á milli.

Kostn­aður á hvert sýni er áætl­aður undir 50 þús­und krónum svo fram­ar­lega sem tekin eru fleiri en 107 sýni á dag. Kostn­að­ur­inn fer lækk­andi með fjölgun sýna og er tæpar 23 þús­und krónur miðað við 500 sýni á dag.

Nauð­syn­legt er að kveða á um í lögum eða reglum um ábyrgð flug­rek­enda á for­skrán­ingu far­þega til að fækka smit­andi ein­stak­lingum sem gætu komið til lands­ins, til að sýna­töku­ferlið geti gengið hratt og vel fyrir sig og til að auð­kenna þá far­þega sem fram­vísa vott­orðum eða velja að fara í sótt­kví.

Nauð­syn­legt er að frá­vís­un­ar­heim­ildir á landa­mærum séu skýrar gagn­vart þeim sem ekki ætla að hlíta sótt­varna­ráð­stöf­unum.

Mik­il­vægt er að tryggja áfram­hald­andi verk­lag um sýna­töku vegna veik­inda í land­inu, grein­ingu, smitrakn­ingu, sótt­kví og ein­angrun með því að hafa sam­hæf­inga­stöð almanna­varna og sótt­varna áfram virka til að koma í veg fyrir útbreiðslu smits.

Upp­lýs­inga­gjöf til ferða­manna er mik­il­vægur hluti verk­efn­is­ins. Bæta
þarf sér­stak­lega við virkni Rakning C-19 smá­forrits­ins og upp­lýs­ingar til
ferða­manna í því

Skýrsl­una má skoða hérna.

Sjá einnig: Ferða­mönnum býðst að fara í skimun á Kefla­vík­ur­flug­velli frá og með 15. júní

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við