Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Lára óskaði eftir „ónotuðum“ 500 krónum og Íslendingar brugðust skjótt við: „Ég er svo heppin“

Lára óskaði eftir „ónotuðum“ 500 krónum og Íslendingar brugðust skjótt við: „Ég er svo heppin“

Bryn­hildur Lára Hrafns­dóttir, sem er 11 ára gömul óskaði eftir 500 krónum „sem fólk væri hætt að nota“ eins og hún orð­aði það sjálf. Pen­ing­ana vildi hún nota til að kaupa sér­út­bú­inn bíl fyrir hjóla­stól, sem Lára er í.

Íslend­ingar tóku vel í beiðni Láru, og fjöldi „ónot­aðra“ 500 krónu fram­laga bár­ust inn á reikn­ing­inn hennar, og nú er svo komið að nægt fé hefur safn­ast fyrir bílnum. Lára kom heim í gær eftir helg­ar­dvöl á hvíld­ar­heim­ili og fékk þá þau gleði­tíð­indi að 2941 fimm­hund­ruð­kall hefðu safn­ast og gott betur en það. Lára var him­in­lif­andi að sögn móður hennar, „ég er svo heppin.“

„Til­finn­ingin að upp­lifa alla þessa hjálp, að sjá barnið manns njóta þessa vel­vilja og með­byrs er ólýs­an­leg. Þegar maður veit hvað þarf og hvað vantar en hafa svo engin ráð þá er það hræði­leg til­finn­ing sem maður ber með sér. Að sjá barnið sitt gleðj­ast, sér­lega þegar maður hefur alltof oft séð það þjást, er miklu miklu meir en ómet­an­legt. Maður vill ekk­ert meira en að gera það sem maður getur og helst meir,” segir Margrét Grjet­ars­dóttir í sam­tali við Mannlíf. Þvílík gleði og léttir. Það er mjög erfitt að vera alltaf að kvabba í fólk, þetta er svo löng saga 11ár og alltaf eitt­hvað óvænt að koma upp. Lára á allt það besta skilið, hún hefur haft mikið fyrir lífi sínu og það eru engin lok sjá­an­leg á því.“

Strangar kröfur um bílakaupin

Aðspurð segir Margrét að strangar reglur gildi um bíla­kaupin, en fjöl­skyldan er búsett í Svíþjóð. „Sænska trygg­inga­stofn­unin og umferð­ar­stofa, setja okkur mörk um það hvernig bíl skal kaupa, hann má ekki vera eldri en ákveðin árgerð og ekki keyrður meira en x marga kíló­metra. Síðan er það okkar að finna slíkan bíl og það var ekki auð­velt, það er allt í hæga­gangi vegna COVID-19 far­ald­urs­ins, og hann stjórnar til dæmis hversu margir bílar koma á mark­að­inn,“ segir Margrét. „Við fáum styrk frá för­säkringskassan (sænsku Trygg­inga­stofn­un­inni) sem er langt í frá að vera í sam­ræmi við verð bíls­ins, afgang­inn eigum við að borga sjálf. Breyt­ingin fer svo fram hjá sam­þykktum aðila og greiðir för­säkringskassan fyrir hana. Breyt­ingin ein og sér kostar í kringum tvær millj­ónir íslenskra króna. Við erum mjög fegin því að þurfa ekki að hafa áhyggjur af þeim kostn­aði.“

Fæddist heilbrigð

Lára er með sjald­gæfan ólækn­andi erfða­sjúk­dóm , taugatrefja­æxla­ger, teg­und 1 (NF1), en Lára fædd­ist full­kom­lega heil­brigð og benti ekk­ert til að hún væri með sjúk­dóm­inn fyrr en farið var að bera á svoköll­uðum kaffi latte blettum á lík­ama hennar. Í til­viki hennar er sjúk­dóm­ur­inn mjög virkur og ágengur, en í sumum til­fellum getur fólk gengið með sjúk­dóm­inn án þess að finna fyrir ein­kennum. Lára hefur þurft að und­ir­gang­ast tugi svæf­inga og stórar aðgerðir vegna sjúk­dóms­ins og þarfn­ast mik­illar aðstoðar. Hún er nú í sinni fjórðu krabba­meins lyfja­með­ferð sem er ætlað að hefta fram­göngu sjúk­dóms­ins.

Lára á sér tvö hjartans mál

Að sögn Mar­grétar þá er það tvennt sem er ofar­lega í huga Láru, fast hús­næði og sér­út­bú­inn bíl. „Það er tvennt sem myndi létta Láru veru­lega lífið og bæta hennar til­veru og þessi tvö atriði eru henni mjög ofar­lega í huga. Nú þegar bíll­inn er komin, mun hún snúa sér aftur að söfnun sinni um fyrstu útborgun í hús­næði, þetta er hennar hjart­ans mál. Hún á mjög erfitt með að búa á leigu­mark­að­inum með allar sínar hömlur,“ segir Margrét og segir það auð­velda mikið að búa í eigin hús­næði, þá væri hægt að aðlaga það að þörfum Láru.

„Og svo fengjum við margt annað sem við ann­ars fáum ekki í leigu­hús­næði. Við höfum sjálf staðið í að gera hús­næðið betra. En það þarf allt að vera bráða­birgða­lausn sem auð­velt er að fjar­lægja.,“ segir Margrét og segir að allt umfram það sem þarf í bíla­kaupin renni í hús­næð­is­sjóð Láru.

„Þetta eru tvo af Láru hjart­ans­málum og auð­vitað stöndum við með. Og þá er hægt að ímynda sér hversu mikil gleði upp­hófst hjá Lárunni okkar þegar henni var gert það ljóst að bíll­inn væri í höfn, og gott betur en það,“ segir Margrét.

„Það er bara frá­bært að leyfa land­anum að fylgj­ast með þess­ari ótrú­legu stúlku sem fer áfram á hug­rekki, bjart­sýni og jákvæðn­inni, ein­hverjir væru löngu búnir að leggja upp laupana, við hjónin erum agn­dofa yfir þessu öllu og yfir henni Láru líka. Hún elskar fólkið sitt á Facebook og hefur mik­inn hug til þeirra, þetta er ekki í fyrsta sinn sem þeir vinir hjálpa. Ég veit ekki hvar við værum stödd án þeirra, oft hefur ham­ar­inn verið svo hár að klífa yfir og þá er ómet­an­legt að mæta­hvatn­ingu og hlýju frá vinum, vanda­mönnum og jafn­vel blá ókunn­ugu fólki. Það hefur oft fleytt okkur yfir óyf­ir­stíg­an­legar aðstæður.“

Þeir sem enn eiga „ónot­aðar“ 500 krónur og vilja styðja við Láru geta lagt inn á neð­an­greindan reikn­ing:

Reikn­ingur: 322-13-110710
Kennitala: 100109-3950

„Lára vil skila kveðju til allra sinna góðu vina og þakkar þeim þús­und-milljón-trilljón fallt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina