Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Lögreglumaður birtir launaseðilinn-Undrast skilningsleysi ríkisvaldsins: „Við lögreglumenn erum manneskjur“

Lögreglumaður birtir launaseðilinn-Undrast skilningsleysi ríkisvaldsins: „Við lögreglumenn erum manneskjur“
|Launa­seð­ill|

Hreinn Júlíus Ingv­ars­son 35 ára gam­all varð­stjóri í lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu veltir fyrir sér starf­inu og af hverju hann sinnir því enn, í færslu sem hann birti á Facebook í gær.

Færsluna skrif­aði hann á frí­vakt, þar sem hann sat einn heima með hugs­unum sínum, meðan konan hans var í vinnu og börnin þeirra í leik­skóla og grunn­skóla. Fríið var þó ekki vakta­frí, heldur kom í ljós að Hreinn hafði tognað í baki eftir hand­töku á síð­ustu vakt.

„Ég sit hérna heima hjá mér í fríi, eða þannig, og get velt þessu fyrir mér. Það var hrækt yfir mig blóði og hráka í gær, ég kýldur og þegar ég var að gera skýrsl­una á lög­reglu­stöð­inni þá fann ég fyrir miklum verk í mjó­baki. Við skoðun á slysa­deild kom í ljós að ég hafði tognað í bak­vöðva við hand­tök­una. Þannig það er frí í dag,“ segir Hreinn og undr­ast hann það skiln­ings­leysi sem lög­reglu­menn mæta gagn­vart rík­is­vald­inu við gerð kjara­samn­inga.

Það var hrækt yfir mig blóði og hráka í gær, ég kýldur

Hreinn segir í sam­tali við Mannlíf að hann hafi farið í lög­reglu­starfið þar sem hann vildi hjálpa fólki, en hann útskrif­að­ist sem lög­reglu­þjónn árið 2010. Hans meg­in­hugsun þegar hann hóf störf í lög­regl­unni 24 ára gam­all hafi verið og sé enn þörfin til að hjálpa sam­borg­urum sínum. Aðspurður um hvort að hann hafi alist upp við starfið svarar hann: „Góð spurn­ing og svarið er já og nei. Pabbi starf­aði um skamma stund sem H-maður á Siglu­firði (ólærður) og starf­aði í lög­regl­unni þar af og til í nokkur ár.

„Svo nátt­úru­lega snýst þetta starf yfir­leitt um að reyna tala við fólk og reyna að róa ástand með munn­inum og mér hefur alltaf þótt það spenn­andi, það er sama hversu ruglað ástandið er að geta rætt við fólk rólega og náð því niður eða fá það á nið­ur­stöðu sem allir geta sætt sig við.“

Segir Hreinn í færsl­unni að reyndur lög­reglu­maður hafi sagt við hann að ef Hreinn hafi viljað starf þar sem hann fengi þakkir og hrós fyrir störf sín, þá væri hann á röngum stað, og benti hann Hreini á að fara frekar í slökkvi­liðið.

Og ef þú værir 24 ára að hlýða þér 35 ára hvaða starf myndir þú fara í? „Leiklist allan dag­inn,“ svarar Hreinn hlæj­andi þeirri spurn­ingu blaða­manns. „Bara eitt­hvað ekki eins þungt.“

Svo nátt­úru­lega snýst þetta starf yfir­leitt um að reyna tala við fólk og reyna að róa ástand með munn­inum

Lögreglumenn eru manneskjur eins og allir aðrir

Hreinn segir starfið á margan hátt fal­legt og ákveðna róm­an­tík fel­ast í því. Hins vegar vegi erf­iðu spurn­ingnar þyngra. „Bara ef ég hefði getað sagt 24 ára strák­bján­anum að gera eitt­hvað annað er hugsun sem stundum læð­ist að mér,“ segir Hreinn.

„Málið er nefni­lega að við lög­reglu­menn erum mann­eskjur með okkar bresti, vanda­mál og til­finn­ingar eins og allir aðrir og erum kall­aðir til á verstu augna­blikum fólks. Til að geta leyst verk­efnin far­sæl­lega þurfum við oftar en ekki að sam­svara okkur skjól­stæð­ingnum, setja okkur í spor þeirra og vera með þeim í hvaða harm­leik sem fólk stendur frammi fyrir,“ segir Hreinn og segir það hafa valdið honum ýmsum vanda­málum í gegn um tíð­ina því lög­reglu­menn reyni að gera erf­ið­ustu stundir fólks bæri­legri.

Hreinn hefur lent í áföllum á lífs­leið­inni eins og fleiri og rekur áföll sín í færsl­unni. Hann hefur misst tví­bura­dætur, ömmur og afa, frænda og glímt við kvíða og alls­konar vanda­mál.

„Ég hef tvisvar, eftir að ég missti börnin mín, tekið þátt í end­ur­lífgun á unga­barni. Í fyrra mál­inu fékk ég hálf­gert tauga­á­fall því á meðan ég var að reyna að hnoða barnið til lífs fann ég sjálfan mig í hug­anum á sjúkra­hús­inu á Akureyri þar sem ég hélt á stelp­unum mínum og rank­aði við mér grát­andi á vett­vangi. Ég var ekki stoltur af mér þarna en reyndi að halda and­liti, ég sam­svar­aði mér of mikið. Það er ekk­ert hægt að flýja þessar til­finn­ingar,“ segir Hreinn, en segir lög­reglu­menn klára sín verk­efni sama hvernig þeim líður eða hvort þeir treysta sér í það eða ekki. Það gildir um þessi verk­efni líkt og önnur sem við glímum við á hverjum degi og stundum oft á dag.

Hreinn segir að honum sárni þegar starfs hans og fram­lag er ekki metið til launa. Hann seg­ist einnig eiga erfitt með að skilja hvernig ráða­mönnum og þá kannski sér­stak­lega for­sæt­is­ráð­herra tekst að gleyma lög­reglu­mönnum þegar kemur að hrósi og þökkum til fram­línu­stétta þessa lands sem margar hverjar hafa unnið þrek­virki í því ástandi sem von­andi er að líða undir lok. „Hvernig er hægt að gleyma orð­inu „lög­reglan“ þegar Ísland er á neyð­ar­stigi almanna­varna?,“ segir Hreinn og bætir við:

„Síðustu mán­uðir hafa verið gríð­ar­lega erf­iðir fyrir þjóð­ina og við sjáum það í þyngri og erf­ið­ari verk­efnum en rík­is­valdið virð­ist ekki getað sam­svarað sér lög­reglu­mönnum.“

Maður skilur samt þegar konan, vinir og fjöl­skylda spyrja af hverju ert þú í lög­regl­unni

Með færsl­unni birtir Hreinn launa­seðil sinn fyrir apríl, og tekur hann fram að hann reyni eins og hann getur að vinna bara dag­vaktir og taka ekki auka­vaktir þar sem hann er fjöl­skyldu­maður og vilji ekki að starfið bitni meira á fjöl­skyldu hans, en þarf.

Launa­seð­ill

„Maður skilur samt þegar konan, vinir og fjöl­skylda spyrja af hverju ert þú í lög­regl­unni. En ég er far­inn að skilja hver ég er með aldr­inum, hvers vegna ég stend í þessu. Öll mín reynsla innan og utan lög­regl­unnar getur von­andi hjálpað fólki á betri stað en það var á áður en ég kom á vett­vang. Við lög­reglu­menn vitum hver við erum og fyrir hvað við stöndum.“

Færsluna má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina