Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Nammilandsfarar brjáluðust á meðan bresk blaðakona naut lífsins

Nammilandsfarar brjáluðust á meðan bresk blaðakona naut lífsins
Mynd af Chloe / Skjáskot Facebook

Lokun sæl­gæt­is­bara í versl­unum Hagkaups varð til þess að stjórn­laus reiði greip um sig meðal Nammilands­fara í vik­unni. Á meðan skemmti blaða­konan Chloé Pantazi sér kon­ung­lega á Íslandi.

Góð vika – Chloé Pantazi
Margir hafa upp­lifað skrítna daga eftir að kór­ónu­veiran skæða skaut upp koll­inum á Íslandi og settar voru reglur um sam­komu­bann, en í til­felli bresku blaða­kon­unnar Chloé Pantazi sem kom hingað í lang­þráð frí á dög­unum virð­ist þetta hafa gert ferð­ina eft­ir­minni­legri. Á vef­síðu Insider, þar sem Pantazi starfar, lýsir hún m.a. hvernig Airbnb-gest­gjafi bauð henni stærri íbúð fyrir sama verð, þar sem gestur hafði afbókað, og hvernig hún og vin­kona hennar nutu þess að heim­sækja hverja nátt­úruperluna á fætur annarri í algjörum friði, bless­un­ar­lega lausar við ötraðir, tafir, læti og kaós sem eru ein­kenn­andi fyrir stað­ina undir venju­legum kring­um­stæðum. Engin truflun við Geysi eða í Bláa lón­inu þar sem stöll­urnar nutu þess að hafa lónið nán­ast út af fyrir sig. Meira að segja heim­ferðin reynd­ist óvenju­lega þægi­leg, sú hljóð­látasta sem Pantazi seg­ist hafa farið í, enda flug­vélin nán­ast tóm. Fríið ógleym­an­legt.

Slæm vika – Nammilands­farar
Óhætt er að segja að áhrif langvar­andi sam­komu­banns séu nú farin að koma í ljós. Þótt flestir reyni eftir bestu getu að hlíta fyr­ir­mælum yfir­valda með bros á vör og sýna sam­stöðu og náunga­kær­leik, þá hafa skertar flug­sam­göngur, heima­klipp­ingar, enda­laus inni­vera og ótak­mark­aðar gæða­stundir með fjöl­skyld­unni reynt á þol­rif margra. Það sann­að­ist vel í vik­unni þegar lokun sæl­gæt­is­bara í versl­unum Hagkaups varð til þess að stjórn­laus reiði greip um sig meðal Nammilands­fara sem höfðu ætlað að bjarga geð­heils­unni með heim­sókn á bar­inn. Eftir frestun á EM og for­dæma­lausa aflýs­ingu á Eurovision var eins og eitt­hvað brysti skyndi­lega innra með fólki þegar Nammilandi var lokað, fyrr en til stóð, og sæl­gæti á 70 pró­sent afslætti var fjar­lægt úr hill­unum. Fram­kvæmda­stjóri búð­anna við­ur­kenndi að við­skipta­vinir hefðu brjálast og reyndi að verja ákvörð­un­ina en fólk er eyði­lagt. „Guð minn góður höfum við ekki gengið í gegnum nóg,“ skrif­aði örviln­aður Twitter-not­andi. Já, lok­unin er reið­ar­slag fyrir marga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina