Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Rúturnar teknar af númerum: „Þetta er mikið áfall“

Rúturnar teknar af númerum: „Þetta er mikið áfall“
|Gray Line

Gray Line ætlar ekki að segja upp starfs­fólki. Stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins er ánægður með útspil stjórn­valda. Umsvif fyr­ir­tæk­is­ins hafa dreg­ist saman um 99% og hóp­ferða­bíl­arnir hafa verið teknir af núm­erum.

Eitt stærsta ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki lands­ins, Gray Line, hefur tekið 80 pró­sent af rútum sínum af núm­erum. Þórir Garð­ars­son stjórn­ar­for­maður segir í sam­tali við Mannlíf að umsvif félags­ins séu í dag eitt pró­sent af því sem áður var.

Gray Line Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Hjá Gray Line starfa um 120 manns. Þórir segir að ekki standi til að segja upp fólki og þar muni mikið um það útspil stjórn­valda að gefa fólki kost á greiðslu 75% launa í gegnum atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóð. „Það fara allir í 25% laun hjá okkur,“ segir Þórir um stöð­una. Hann segir að þegar þriggja mán­aða upp­sagn­ar­fresti væri lokið þyrfti fyr­ir­tækið senni­lega á sínu góða starfs­fólki að halda á nýjan leik. „Þannig að það er ekki á stefnu­skrá hjá okkur.“

„Svo förum við inn í hýðið okkar og bíðum þetta af okkur“

Þórir segir að lang­flestir starfs­menn Gray Line séu fast­ráðnir. Hann segir að fáeinar ferðir hafi ekki verið blásnar af og fyr­ir­tækið reyni að koma til móts við þá ferða­menn sem enn séu hér á landi. „Svo förum við inn í hýðið okkar og bíðum þetta af okkur,“ segir hann um COVID-19. Þórir er bjart­sýnn á góða við­spyrnu og að ferða­manna­straum­ur­inn auk­ist hratt um leið og það versta er yfir­staðið. Aðspurður segir hann að ferða­menn eigi i lang­flestum til­vikum rétt á end­ur­greiðslu á þeim ferðum sem bók­aðar hafi verið. Hann segir að þeir séu almennt skiln­ings­ríkir vegna þeirrar stöðu sem upp sé komin.

Þórir Garð­ar­son Mynd / Aðsend

Þurfa lánsfé fyrir launum

Spurður hvernig Gray Line hygg­ist standa undir 25% af launa­kostn­aði með aðeins 1% umsvif svarar Þórir því til að út úr því verði að finna. „Við verðum að fá fullan launa­kostnað í mars, apríl og maí. 50% af inn­kom­unni fer í laun. Það þarf að vera ein­hver inn­koma til að borga fyrir það.“ Hann nefnir að senni­lega muni fyr­ir­tækið leita að lánsfé þegar línur skýrist. Hjá því verði ekki kom­ist.

„Þetta er eitt­hvað sem eng­inn átti von á. Við erum búnir að taka núm­erin af 80% af flot­anum okkar. Það munar um hverja krónu þegar svona ger­ist; trygg­ingar og bif­reiða­gjöld.“ Samkvæmt upp­lýs­ingum á vef fyr­ir­tæk­is­ins á Gray Line 70 hóp­ferða­bíla.

„Þetta er eitt­hvað sem eng­inn átti von á. Við erum búnir að taka núm­erin af 80% af flot­anum okkar. Það munar um hverja krónu þegar svona ger­ist; trygg­ingar og bif­reiða­gjöld.“

Þórir segir að greiðslu­fall erlendis, vegna ferða sem þegar hafa verið farnar, geri fyr­ir­tæk­inu stjórnvsömu­leiðis erfitt fyrir. Ferða­brans­inn sé ein stór keðja. „Reikn­ingar sem voru á eindaga í febr­úar hafa sumir hverjir ekki verið greiddir. En við erum ekk­ert að örvænta. Þetta er ákveðin keðja og þessi fyr­ir­tæki úti eru líka að fá afbók­anir. Þá kemur hökt á greiðslu­flæðið þeirra.“ Hann seg­ist hafa skiln­ing á þeirri stöðu. Öll fyr­ir­tæki séu að leita leiða til að fjár­magna sig.

Gray Line Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Áfall á áfall ofan

Þórir rifjar upp að í fyrra hafi ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki orðið fyrir miklu áfalli með falli WOW air. Þá hafi verk­falls­boðun sett strik í reikn­ing­inn. „Svo kemur þetta í ár. Þetta er mikið áfall en við vonum það besta.“ Hann seg­ist ekki hafa kynnt sér útspil stjórn­valda til hlítar en er ánægður með það sem hann hefur séð. „Þetta úrræði stjórn­valda er algjört lyk­il­at­riði.“

Spurður hvernig sum­arið lítur út, svarar Þórir því til að staðan breyt­ist ört þessa dag­anna. „Þetta er alltaf að ganga lengra og lengra inn í ver­tíð­ina.“ Hann bendir á að flestar sum­ar­ferð­irnar séu bók­aðar að vori til. Því sé skað­inn nú þegar nokkur, hvað sum­arið varðar.

„Apríl og maí eru farnir. Júní er í voða­lega litlum takti,“ segir Þórir þegar hann rýnir í kom­andi mán­uði. Hann seg­ist von­ast til þess að mark­að­ur­inn taki við sér þegar það versta er yfir­staðið og bindur miklar vonir við mark­aðsátakið sem stjórn­völd hafa boðað.
Þórir segir jákvætt við­horf ein­kenn­andi hjá fyr­ir­tækjum í ferða­þjón­ustu og starfs­fólki þeirra, á þessum erf­iðu tímum. „Það ganga allir í takt og saman erum við sterk­ari.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina