Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kári svarar Loga fullum hálsi og segir rök hans vera „slöpp“

Kári svarar Loga fullum hálsi og segir rök hans vera „slöpp“

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskr­ar erfða­grein­ing­ar, skrifar opið bréf til Loga Berg­manns og svarar þar pistli Loga sem birt­ist í sunnu­dags­blaði Morg­un­blaðs­ins. Svar sitt birtir Kári í Morg­un­blað­inu í dag undir yfir­skrift­inni „Ung­ling­ur­inn í fjöl­miðlum“.

Í pistli sínum um helg­ina skrif­aði Logi um áfeng­is­aug­lýs­ingar sem eru bann­aðar í fjöl­miðlum en eru á sama tíma áber­andi á Facebook og í erlendum miðlum. Logi skrifar einnig um þá stað­reynd að Íslend­ingar geti verslað áfengi á net­inu svo lengi sem það sé verslað frá útlöndum.

„Ef mig langar til að panta mér flösku af Reyka-vodka þá er það ekk­ert mál. Ég get pantað hana frá útlöndum. Mjög ein­falt allt saman. Fyrir utan smá­at­riðið sem felst í því að senda flösk­una til útlanda til að senda hana aftur til Íslands og fá hana senda heim til mín.

„Hvað ef 16 ára ung­lingur tekur bara við send­ing­unni fyrir mis­tök og hverfur sam­stundis á vit Bakkusar?“

Nú er sem sagt loks­ins komið fram frum­varp sem myndi leyfa íslenska net­verslun með áfengi. Með ströngum reglum og fyr­ir­vörum,“ skrifar Logi meðal ann­ars. Hann bætir við: „Einhver gæti sagt að þetta væru eðli­leg spor í átt að frelsi og eðli­legum við­skipta­háttum. En svo eru hinir sem segja okkur að auð­vitað sé það hræði­leg hug­mynd að hægt sé að senda áfengi. Hvað ef 16 ára ung­lingur tekur bara við send­ing­unni fyrir mis­tök og hverfur sam­stundis á vit Bakkusar?“

Logi endar pistil sinn á að segja að nú sé kom­inn tími til að treysta fólki: „Treystum fólki og setjum reglur sem eru skyn­sam­legar, frjáls­lyndar og umfram allt eðli­legar.“

Ekki forræðishyggja segir Kári

Í svari sínu byrjar Kári á að segja frá því að hann sé að verða 71 árs og hafi á lífs­leið sinni séð marga kunn­ingja glíma við sjúk­dóma sem tengj­ast áfeng­is­neyslu.

„Langtíma áhrif af ofneyslu áfengis eru auknar líkur á lifr­ar­bilun, háþrýst­ingi, hjarta­bilun, krabba­meini í vél­inda, krabba­meini í maga, krabba­meini í lifur og brisi, krabba­meini í blöðru og brjóstum og syk­ur­sýki og alls konar skemmdum í heila og úttauga­kerfi. Skamm­tíma áhrif áfeng­is­neyslu í óhófi eru ölvun, sem eykur líkur á ofbeldi alls konar og slysum. Algeng­ustu dán­ar­or­sök fólks á aldr­inum 15 ára til fer­tugs á Íslandi má rekja til neyslu fíkni­efna, þar sem áfengi spilar mikla rullu og oftar en ekki er það fíkni­efni sem menn byrja á og nota með öðrum efnum,“ skrifar Kári. Hann bætir við að neyslu áfengis í óhófi kosta heil­brigð­is­kerfið „meira en nokkuð annað“.

„Það er út af þessu, Logi, sem það væri óábyrgt að auka aðgengi að áfengi á Íslandi með því að leyfa íslenska net­verslun og ýta því kröft­ugar að fólki með því að leyfa áfeng­is­aug­lýs­ingar. Aukið aðgengi þýðir aukin neysla sem þýðir auk­inn allur sá vandi sem er rak­inn hér að ofan.“

Kári segir að rök Loga um að áfeng­is­aug­lýs­ingar séu sýni­legar á Facebook og í erlendum fjöl­miðlum og því ætti að leyfa þær í íslenskum miðlum vera „slöpp“.

„Sú rök­semd að það séu áfeng­is­aug­lýs­ingar í erlendum fjöl­miðlum og á fés­bók er slöpp í besta falli. Þær aug­lýs­ingar skapa vanda sem slíkar, sem rétt­læta á engan hátt íslenskar aug­lýs­ingar, sem myndu bæta gráu ofan á svart.“

„…í fyrsta lagi ef þú færir á AA fund kæm­istu að raun um að alkinn verður að gera sér grein fyrir því að hann getur ekki treyst sjálfum sér þegar kemur að áfengi.“

Hann segir það sama eiga við um rökin um að lands­menni geti verslað vín á erlendum net­versl­unum. „Það væri skyn­sam­leg­ast að loka fyrir hana með laga­setn­ingu í stað þess að bæta ofan á hana íslenskri net­verslun og meira áfengi ofan í þá sem síst skyldi. Logi, þetta er ekki spurn­ing um að hafa vit fyrir fólki með íþyngj­andi for­ræð­is­hyggju. Þetta er svipað því og að hafa hámarks­hraða á vegum úti.“

Kári segir málið ekki snú­ast um for­ræð­is­hyggju heldur „fyr­ir­byggj­andi lækn­is­fræði“.

„Í lok greinar þinnar seg­irðu: „Treystum fólki og setjum reglur sem eru skyn­sam­legar, frjáls­lyndar og umfram allt eðli­legar.“ Logi, félagi og fóst­bróðir, í fyrsta lagi ef þú færir á AA fund kæm­istu að raun um að alkinn verður að gera sér grein fyrir því að hann getur ekki treyst sjálfum sér þegar kemur að áfengi. Þangað til er hann í bráðri hættu,“ skrifar Kári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina