Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fárveiku ungbarni þvælt á milli sjúkrahúsa þar sem faðirinn vinnur á Keflavíkurflugvelli: „Bíðum enn eftir svörum um hvað amar að barninu okkar“

Fárveiku ungbarni þvælt á milli sjúkrahúsa þar sem faðirinn vinnur á Keflavíkurflugvelli: „Bíðum enn eftir svörum um hvað amar að barninu okkar“
Myndin er úr safni

„Við fórum í einu og öllu eftir þeim ráð­legg­ingum sem okkur voru gefnar,“ segir ung móðir sex mán­aða gam­als drengs í sam­tali við Mannlíf.

Í gær birt­ist frétt á Suðurnes.net um það að for­eldrum barns­ins hefði verið mein­aður aðgangur með hann að Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja þar sem faðir drengs­ins vinnur á Kefla­vík­ur­flug­velli. Segir móð­irin að frétt­inni hafi verið deilt á sam­fé­lags­miðlum með þeirri gagn­rýni að þau hefðu fyrst átt að hringja í núm­erið 1700 í stað þess að mæta bara.

„Sonur okkar var búinn að vera með mikið kvef og ljótan hósta, en engan hita í tvo daga. Á föstu­dag fórum við með hann í Domus og fengum púst fyrir hann sem við áttum að gefa þrisvar á dag. Í gær fór honum svo versn­andi og mældi amma hans hann með háan hita og hringdi í 1700 til að fá leið­bein­ingar. Var okkur ráð­lagt að mæta á Barna­spít­ala Hrings­ins og láta skoða hann þar.“

Fjöl­skyldan býr á Suð­ur­nesjum og var kom­inn klukkan 18 í Reykja­vík og fór fað­ir­inn einn inn á spít­al­ann og sagði frá veik­indum son­ar­ins. Á meðan beið móð­irin með barnið út í bíl. Föðurnum hafði verið ráð­lagt að láta vita að hann ynni á bíla­leigu við Kefla­vík­ur­flug­völl og greindi hann frá því.

„Lækn­arnir tóku sér smá tíma í að ákveða hvað ætti að gera. Maðurinn minn kemur síðan út í bíl með þau svör að við eigum að hringja í 1700 og fá lækni heim, en hann var búinn að segja þeim frá að við byggjum í Reykja­nesbæ,“ segir móð­irin, og bætir við að fjöl­skyldan hafi verið komin að Álverinu á leið­inni heim þegar þau náðu sam­bandi við 1700.

Röng skilaboð á Barnaspítalanum

Í sím­tal­inu var þeim tjáð að 1700 sendi ekki lækni heim til þeirra í Reykja­nesbæ og Barna­spít­al­inn hefði ekki átt að vísa þeim frá. „Konan sem við töl­uðum við skráði athuga­semd um þetta undir kenni­tölu sonar okkar og ráð­lagði okkur, þar sem við erum komin lang­leið­ina heim, að fara á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja (HSS).“

Fjöl­skyldan kom síðan þangað og fað­ir­inn fór aftur einn inn meðan móð­irin og son­ur­inn biðu út í bíl. „Þarna er hann búinn að vera fár­veikur í bílnum í um tvo og hálfan klukku­tíma. Og við tekur 30 mín­útna bið í við­bót.“

Faðirinn tal­aði fyrst við fjöl­skyldu­með­lim sem starfar á HSS, sem ræddi síðan við yfir­hjúkr­un­ar­fræð­ing. „Tengda­móðir mín var síðan mætt líka til að lýsa hvernig ástandið á syni okkar var og ítrek­aði hún að það þurfi að skoða barnið. Síðan var okkur vísað inn um annan inn­gang, og þau sem tóku á móti okkur voru búin að setja upp grímur og slíkt. Eftir skoð­un­ina þá var eng­inn grunur um kór­óna­veiruna, heldur RS,“ segir móð­irin og segir þau hafa fengið sím­tal frá Barna­spít­al­anum með afsök­un­ar­beiðni og boði um að son­ur­inn fengi inn­lögn þar yfir nótt­ina.

Fjöl­skyldan stopp­aði við heima til að sækja mjólk handa barn­inu og fleiri nauð­synjar og voru komin aftur til Reykja­víkur um klukkan 23 um kvöldið, á Barna­spít­al­anum tók hjúkr­un­ar­fræði­nemi á móti heim og son­ur­inn var mældur. „Hann var laus við hita (mældur undir hand­ar­krika). Síðan tók við bið eftir lækni og hann skoðar barnið, hlustar og skoðar háls,“ segir móð­irin.

Fékk rúm og tengdur við mettunarmæli eftir rúmlega tveggja tíma bið

Móðirin segir lækn­inn hafa haft mestan áhuga á hvernig þeim var þvælt fram og til­baka og seg­ist hún hafa verið beðin um að end­ur­taka það nokkrum sinnum. Milli klukkan eitt og tvö um nótt­ina fékk sonur hennar síðan loks­ins rúm og var tengdur við mett­un­ar­mæli klukkan tvö um nótt­ina eftir að móðir hennar, sem komin var á spít­al­ann þeim til aðstoðar, fór og spurði.

„Hún fékk það svar að það væri hægt ef við vildum,“ segir móð­irin. „Okkar upp­lifun var sú að þau vildu frekar fá að vita hvað fór úrskeiðis, heldur en að reyna að kom­ast að hvað var að syni okkar.,“ segir móð­irin, en fjöl­skyldan fór frá Barna­spít­al­anum um eitt­leytið í dag með engin svör um hvað amaði að fimm mán­aða gömlum syni þeirra.

„Það skoð­aði eng­inn læknir hann áður en við fórum, og við eigum bara að koma aftur ef hann á erfitt með öndun,“ segir móð­irin. „Við höfum ennþá ekki fengið sím­tal eða svar við sýnum um hvað er að barn­inu okkar. Hann er ekki eins og hann á að sér, hann er með ljótan hósta og stíflaður, er væl­inn inn á milli.“

Bætir móð­irin við að þau hafi farið í einu og öllu að þeim ráð­legg­ingum sem þau fengu í upp­hafi, en ekki bara mætt á stað­inn, eins og þau hafa verið gagn­rýnd fyrir eftir að fréttin birt­ist í gær.

„Það sem ég skil ómögu­lega ekki er að pabb­inn sem vinnur við að hitta fólk frá löndum þar sem eru smit má standa inni á þessum stöðum, en barn sem þarf lækn­is­hjálp verður að bíða úti í bíl.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við